Morgunblaðið - 01.05.2020, Page 1
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Icelandair Group stefnir að því að safna rúmlega 29 millj-
örðum króna (200 milljónum bandaríkjadala) í aukið hlutafé
með hlutafjárútboði í júní. Stjórn félagsins mun leggja það til
við hluthafafund síðar í maí. Þetta kom fram í tilkynningu fé-
lagsins til Kauphallarinnar í gærkvöldi. Markaðsvirði félags-
ins við lok viðskipta í gær var tæpir 13 milljarðar króna.
Ríkisstjórnin samþykkti í gær mögulega veitingu lánalínu
eða ábyrgðar á lánum til Icelandair. Aðkoma stjórnvalda er
háð því að fullnægjandi árangur náist í fjárhagslegri endur-
skipulagningu félagsins. Gangi áform Icelandair eftir verður
þingmál um fyrirgreiðslu ríkisins lagt fyrir Alþingi.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að Icelandair
ætli að auka hlutafé og draga úr föstum kostnaði. Hann segir
að félagið sé að móta áætlun um endurreisn ferðaþjónustu
sem telja megi raunsæja eða jafnvel svartsýna fyrir næstu
1-2 ár. Á grundvelli hennar sé stefnt að því að félagið verði
sjálfbært um rekstrarfé í a.m.k. eitt ár. Mögulega þurfi fé-
lagið á lánalínu að halda til að styðja þessa áætlun á síðari
stigum. Verið sé að biðja ríkið um að ábyrgjast hana. Mögu-
leg upphæð mun ráðast af árangri við endurskipulagningu
fjárhags félagsins.
„Við höfum sagt að við séum tilbúin að ræða þetta gangi
annað eftir sem félagið áformar, söfnun hlutafjár og aðrar
aðgerðir til að auka framleiðni í félaginu,“ sagði Bjarni.
Geta haldið áfram eftir staðfestingu stjórnvalda
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði að yfirlýsing
ríkisstjórnarinnar væri mjög gott skref.
„Við höfum unnið að þessu verkefni í samráði við fulltrúa
ríkisstjórnarinnar. Nú er komin staðfesting frá ríkisstjórn-
inni um að við getum haldið áfram með það upplegg sem við
höfum unnið að,“ sagði Bogi. Hann sagði stefnt að því að
ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins og hluta-
fjárútboði fyrir miðjan júní.
Bogi sagði að stærðargráða á aðkomu ríkisins lægi ekki fyr-
ir. Hann sagði uppleggið væntanlega það að lánalína kæmi í
framhaldi af því að félagið lyki fjárhagslegri endurskipu-
lagningu, söfnun hlutafjár og því að uppfylla öll skilyrði.
Leita eftir 29 milljörðum
Icelandair tilkynnti um fyr-
irhugaða aukningu hlutafjár
með útboði í júní næstkomandi
Ríkisstjórnin samþykkti
mögulega veitingu lánalínu eða
ábyrgðar á lánum til Icelandair
Lánalína kæmi í framhaldi
af fjárhagslegri endurskipulagn-
ingu og söfnun hlutafjár
Icelandair sagði í tilkynningu til Kauphall-
ar í gærkvöldi að hlutafjárútboðið væri
mikilvægur liður í fjárhagslegri endur-
skipulagningu. Lagt er til að gefin verði út
allt að 30.000 milljón ný hlutabréf. Fjöldi
hluta er nú rúmlega 5.400 milljónir. Skil-
málar útboðsins, verð hluta og frekari
kynning á fjárhagsáætlun félagsins verða
kynnt á hluthafafundi.
Stjórn félagsins mun óska eftir því að nú-
verandi hluthafar gefi eftir forgangsrétt á
nýútgefnum bréfum. Útboðið verður því
opið almenningi og fagfjárfestum. Sam-
hliða útboðinu mun félagið kanna mögu-
leika á því að breyta skuldum í hlutafé.
Ljósmynd/Emil Georgsson
Hlutafjárútboðið á að vera opið almenningi og fagfjárfestum
F Ö S T U D A G U R 1. M A Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 102. tölublað 108. árgangur
SKRÁSETUR
LEIKLISTARSÖGU
VESTFJARÐA
ÁLFTIRNAR
KOMNAR Í
OLÍU Á STRIGA
VONAST TIL AÐ
ENDURFANGA
STEMNINGUNA
DAGLEGT LÍF 12 PÉTUR PÉTURSSON 27ELDHUGINN ELFAR LOGI 28
Umsvif hljóðbókarisans Storytel
margfölduðust á íslenskum markaði
milli áranna 2018 og 2019. Námu
rekstrartekjur fyrirtækisins yfir hálf-
um milljarði í fyrra. Það sem skil-
greint er sem „erlendur kostnaður“
dró afkomu félagsins niður um ríflega
150 milljónir. Forstjóri Pennans
gagnrýnir fyrirtækið í bréfi til ráða-
manna og segir félagið skjóta sér
undan skattgreiðslum hér á landi.
Það sé óþolandi á sama tíma og það
þiggi styrki frá ríkinu til starfsemi
sinnar sem hann segir í raun ekki út-
gáfustarf heldur smásölu.
Höfundarréttargreiðslur Storytel
á nýliðnu ári námu meira en 250 millj-
ónum króna og jukust um ríflega 160
milljónir milli ára.
Storytel Iceland er að fullu í eigu
Storytel AB en markaðsvirði þess í
sænsku kauphöllinni hleypur á
hundruðum milljarða íslenskra
króna. »16
Gagnrýnir
Storytel
„Þetta er langt umfram það sem
maður hefði getað ímyndað sér.
Maður hefði líka aldrei trúað því að
flugvélafloti heimsins yrði kyrr vik-
um saman,“ sagði Unnur Sverris-
dóttir, forstjóri Vinnumálastofn-
unar. Alls munu um 55 þúsund
manns fá greiðslur frá stofnuninni
um þessi mánaðamót. „Okkur reikn-
ast til að þetta séu um það bil tólf
milljarðar um þessi mánaðamót,“
sagði Unnur. Þessi mánaðamót eru
þau langþyngstu sem komið hafa
nokkru sinni hjá Vinnumálastofnun.
Tilkynningar um hópuppsagnir
bárust frá 51 fyrirtæki í apríl og
vörðuðu þær 4.210 starfsmenn, þar
af 2.140 hjá Icelandair. Þessar tölur
geta mögulega hækkað. »2
Tólf millj-
arða bóta-
greiðslur
Þung mánaðamót
hjá Vinnumálastofnun
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Gróft á litið höfum við náð að
tengja 70% þeirra sem hafa smit-
ast við annan einstakling. En svo
eru alltaf einhverjir sem vita ekk-
ert hvernig þeir urðu veikir,“ segir
Jónas Orri Jónasson, meðlimur í
smitrakningarteymi almanna-
varna.
Smitrakningarteymið hefur
fengist við það samhliða öðrum
störfum að kortleggja hvernig kór-
ónuveiran hefur farið í gegnum ís-
lenskt samfélag. Í dæmi sem Jón-
as tók saman fyrir Morgunblaðið
má sjá hvernig einstaklingur sem
smitaðist á skíðasvæði í Evrópu
smitaði manneskju í sínu nánasta
umhverfi. Þaðan var hægt að rekja
smit áfram og þegar upp var stað-
ið mátti tengja 20 smit við upp-
hafsmanneskjuna.
Jónas segir að erfitt geti reynst
að tengja saman þau 30% smita
sem eftir standa. Mörg þeirra eru
svokölluð yfirborðssmit og vís-
bendingar eru um að fólk hafi til
að mynda smitast á veitingastöðum
hér landi. „Þetta verður ábyggilega
rannsakað í þaula á næstu árum.“
Tuttugu smit tengd einum
Tekist hefur að tengja 70% kórónuveirusmita hér á landi
Morgunblaðið/Eggert
Skimun Mikil vinna hefur farið í að rekja kórónuveirusmit hérlendis.
MKórónuveiran »4