Morgunblaðið - 01.05.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Mikil aukning var á sölu áfengis í
Vínbúðunum í nýliðnum aprílmánuði
borið saman við sama mánuð í fyrra.
Alls nam söluaukningin rétt tæpum
28%.
Tölur frá ÁTVR sýna að allt í allt
seldust 2.167 þúsund lítrar fyrstu 29
dagana í apríl borið saman við 1.697
þúsund lítra á sama tímabili árið
2019. Stöðug aukning hefur verið í
sölu í Vínbúðunum í ár en fyrir
skemmstu greindi Morgunblaðið frá
því að salan jókst um 7,9% fyrstu
þrjá mánuði ársins. Salan tók greini-
lega mikinn kipp í apríl og má gera
ráð fyrir að þar komi fram áhrif
samkomubanns og breyttra lífshátta
landsmanna.
Á sama tíma má greina að sala á
áfengi í komuverslun Fríhafnarinnar
í Leifsstöð hefur algerlega hrunið í
apríl. Samdráttur í lítrum talið nem-
ur alls 98% miðað við sama mánuð í
fyrra. Í síðasta mánuði seldust 3.975
lítrar af áfengi þar á bæ samanborið
við 195.452 í fyrra.
Mikil söluaukning á léttvíni
og handverksbjór
Ef rýnt er í sölutölur Vínbúðanna
má sjá að sala á rauðvíni hefur aukist
mikið, eða um 49%. Sama gildir um
hvítvín en landsmenn keyptu 41%
meira af hvítvíni en árið á undan.
Sala á lagerbjór og sterku áfengi
jókst talsvert og sala á freyðivíni og
kampavíni jókst um 46%. Þá jókst
sala á öðrum bjórtegundum en
lagerbjór hlutfallslega mjög mikið,
eða um 72,5%. Eins varð mikil aukn-
ing í sölu á því sem flokkað er sem
blandaðir drykkir en sala á ávaxta-
víni stóð því sem næst í stað.
Áfengissala rýkur upp
Um 28% söluaukning milli ára í Vínbúðunum Um það bil 50% söluaukning á
rauðvíni og litlu minni á hvítvíni og kampavíni Hrun í áfengissölu í Leifsstöð
Áfengissala í aprílmánuði 2019 og 2020
98% sam-dráttur
í sölu í komuverslun
Fríhafnarinnar frá
apríl 2019
Sala á áfengi í
Vínbúðunum í apríl, lítrar
Sala á áfengi í komuverslun
Fríhafnarinnar í apríl, lítrar
Tegund 2019 2020 Breyting 2019 2020 Breyting
Bjór 1.272.200 1.556.100 +22% 114.581 2.602 -98%
Rauðvín 148.900 222.500 +49% 31.700 537 -98%
Hvítvín 89.100 125.300 +41% 13.099 194 -99%
Sterkt áfengi 18.400 21.100 +15% 22.191 415 -98%
Annað 84.400 119.200 +41% 13.881 227 -98%
Samtals 1.696.600 2.167.100 +28% 195.452 3.975 -98%
28% meiri sala í Vínbúðunum í
apríl 2020 en á sama tíma í fyrra
Heimild: Vínbúðin
og Fríhöfnin
Dóra Ólafsdóttir, sem er 107 ára
gömul og elst Íslendinga, hafði sam-
band við Morgunblaðið í gær og vildi
hvetja íslensku þjóðina með erindi
úr ljóði Gríms Thomsen, Á fætur.
Táp og fjör og frískir menn
finnast hér á landi enn,
þéttir á velli og þéttir í lund,
þrautgóðir á raunastund.
Djúp og blá
blíðum hjá
brosa drósum hvarmaljós;
norðurstranda stuðlaberg
stendur enn á gömlum merg.
Dóra er dyggur lesandi Morgun-
blaðsins, fylgist vel með þjóðmálum
og hefur skoðun á þeim. „Við eigum
ekki að samþykkja þriðja orkupakk-
ann,“ sagði hún ákveðið þegar rætt
var við hana í tilefni af 107 ára af-
mæli hennar 6. júlí 2019.
Dóra fæddist í Sigtúnum á Kljá-
strönd í Grýtubakkahreppi í Suður-
Þingeyjarsýslu. Hún var talsíma-
vörður á Akureyri frá 1936 til 1978,
en flutti suður þegar hún var 100
ára. Dóra býr nú á hjúkrunarheim-
ilinu Skjóli í Reykjavík.
gudni@mbl.is
Hvetur þjóðina áfram
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
107 ára Dóra
les Morgunblaðið
daglega og
fylgist með.
Ingólfur Þórarinsson, eða Ingó veð-
urguð, efndi til brekkusöngs við
gítarundirleik með heimilisfólki í
menningarsal Hrafnistu í Hafnar-
firði í gær.
Ingó hefur stýrt brekkusöng á
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í
nokkur ár og kann því til verka. Vel
var tekið undir í söngnum enda
mörg þekkt og vinsæl sönglög á
dagskránni. Útilegustemning var í
salnum og búið að skreyta sviðið
með viðlegubúnaði af ýmsu tagi.
Starfsfólk var sumt í hefðbundnum
útilegufatnaði, lopapeysum, ullar-
sokkum og jafnvel gúmmískóm.
Áætlað er að um 330 manns víðs-
vegar um húsið hafi notið brekku-
söngsins, að því er fram kom á
heimasíðu Hrafnistu. Morgunblaðið/Eggert
Brekku-
söngur á
Hrafnistu
Guðni Einarsson
Freyr Bjarnason
Þessi mánaðamót eru þau lang-
þyngstu sem komið hafa nokkru
sinni hjá Vinnumálastofnun. „Þetta
er langt umfram það sem maður
hefði getað ímyndað sér. Maður
hefði líka aldrei trúað því að flug-
vélafloti heimsins yrði kyrr vikum
saman,“ sagði Unnur Sverrisdóttir,
forstjóri Vinnumálastofnunar. Alls
munu um 55 þúsund manns fá
greiðslur frá stofnuninni um þessi
mánaðamót og verður þeim dreift á
nokkra daga. „Okkur reiknast til að
þetta séu um það bil tólf milljarðar
um þessi mánaðamót,“ sagði Unnur.
Vinnumálastofnun fékk tilkynn-
ingar um hópuppsagnir frá 51 fyrir-
tæki í apríl og vörðuðu þær 4.210
starfsmenn, þar af 2.140 hjá Ice-
landair. Unnur sagði að þessar tölur
gætu mögulega hækkað og verður
það ljóst eftir helgina. Nánast öll
fyrirtækin sem tilkynntu um hóp-
uppsagnir eru í ferðaþjónustu og
hafa orðið fyrir miklu tekjufalli.
„Það kemur ekki á óvart að þau vilji
reyna að minnka rekstrarkostnað-
inn eins mikið og þau geta,“ sagði
Unnur.
Á atvinnuleysisskrá í almenna
kerfinu hjá Vinnumálastofnun voru
í gær 18 þúsund manns og 37 þús-
und í minnkuðu starfshlutfalli. Þau
sem var sagt upp störfum nú fyrir
mánaðamótin fara flest á atvinnu-
leysisskrá í ágúst, nema atvinnu-
ástandið batni í millitíðinni. „Von-
andi rætist úr þá og við fáum ekki
allt þetta fólk á skrá,“ sagði Unnur.
Stór hluti þeirra sem var sagt upp
nú var í minnkuðu starfshlutfalli.
Unnur bendir á að minnkað starfs-
hlutfall verði óbreytt í maí og júní
og síðan verði dregið úr því og það
muni gilda út ágúst.
Fordæmalaus uppsagnahrina
„Þetta er einstakt í sögunni,“
sagði Gylfi Dalmann Aðalsteinsson,
dósent við viðskiptafræðideild Há-
skóla Íslands, um uppsagnahrinuna
sem dunið hefur yfir og það að nán-
ast heil atvinnugrein, ferðaþjónust-
an, skuli vera undir í þeim þreng-
ingum sem nú ganga yfir.
Þyngstu mánaðamót
sem sögur fara af
Alls fá 55 þúsund manns greiðslu frá Vinnumálastofnun
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ferðaþjónusta Greinin hefur sagt
upp þúsundum starfsmanna.
Halla Bergþóra
Björnsdóttir mun
taka við embætti
lögreglustjórans
á höfuðborgar-
svæðinu. Dóms-
málaráðherra
hefur skipað
hana í embætti
frá 11. maí næst-
komandi. Halla
var valin úr hópi
þriggja umsækjenda til að gegna
starfinu. Hún var metin hæfust um-
sækjenda af hæfnisnefnd. Alls sóttu
fjórir um embættið, en einn þeirra,
Jón H.B. Snorrason, dró umsókn
sína til baka. Halla Bergþóra er
lögfræðingur að mennt og hefur
gegnt embætti lögreglustjórans á
Norðurlandi eystra frá árinu 2015.
Þar áður gegndi hún embætti
sýslumanns á Akranesi frá árinu
2009.
Halla
skipuð lög-
reglustjóri
Halla Bergþóra
Björnsdóttir