Morgunblaðið - 01.05.2020, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2020
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Bjartir og skýrir litirnir ímyndinni heilluðu mig.Svo finnst mér alltafskemmtilegt að mála það
sem fyrir augu ber úti í náttúrunni,“
segir Jarþrúður Jónsdóttir, lista-
kona á Selfossi. Á vinnustofu hennar
er margt skemmtilegt að sjá og
finna; svo sem verk í vinnslu á trön-
um og svo önnur sem eru fullgerð.
Þar á meðal er olíumynd af fjórum
álftum sem saman fljúga út í busk-
ann undir bláum himni. Af því lista-
verki er nokkra sögu að segja.
Stefndu til heiða
Hinn 28. mars síðastliðinn var
sá sem þetta skrifar staddur við
Laugarvatn. Tók þar myndir af álft-
um úti á vatninu og svo nokkrum
fuglum úr því geri sem hóf sig til
flugs og stefndi til heiða. Mynd af
tignarlegu og stefnumiðuðu flugi
þeirra var birt á Facebook og vakti
þar athygli. Raunar fanga álftir
gjarnan áhuga og eftirtekt, saman-
ber myndir, og ófá íslensk skáld
hafa gert þær að ljóðrænum tákn-
myndum í kveðskap sínum.
Jarþrúður hafði samband dag-
inn eftir að myndin var birt og bað
um frumgerð hennar í fullri upp-
lausn, sem var auðfengið. Hins veg-
ar var sett það skilyrði að segja
mætti í Morgunblaðinu söguna af
tilurð málverksins þegar fullgert
væri.
„Ég fylgist alltaf vel með lífinu í
kringum mig; fuglum, dýrum og
gróðri,“ segir Jarþrúður, sem er
garðyrkjufræðingur að mennt og
starfar í Blómavali á Selfossi. Hefur
hins vegar haft hægt um sig og verið
frá vinnu síðustu vikur vegna kór-
ónuveirunnar. Þess í stað varið
löngum stundum við trönurnar og
orðið mikið úr verki.
„Við fjölskyldan bjuggum lengi
í Auðsholti í Hrunamannahreppi og
þar á bökkum Hvítár eru álftir í
hundraðtali á vorin. Kvak þeirra er
fallegt og mér fannst alltaf notalegt
að vakna við þennan söng á morgn-
ana. Álftir eru mjög víða hér á Suð-
urlandi og ég veit að bændum finnst
fuglinn vera algjört skaðræði þegar
hann kemst í tún og akra og rífur
þar upp gróður. Flutt á mölina spái
ég þó lítið í slíkt og horfi til þess
hvað álftirnar – sem aðrir kalla svani
– eru fallegar að lit og lögun. Alveg
aðdáunarverðar,“ segir Jarþrúður.
Nokkur verk í einu
Síðan á unglingsaldri hefur Jar-
þrúður fengist við listsköpun; málað,
teiknað og fleira. Fyrst komst hún
þó á skrið í kúnstinni fyrir um tutt-
ugu árum, þá búsett í Danmörku.
Hélt svo áfram hér heima og sótti
tíma hjá Þuríði Sigurðardóttur, list-
málara og söngkonu, Ingu Hlöðvers-
dóttur á Eyrarbakka og fleirum.
Hefur reynt sig við akrýlmálun,
pastel- og vatnsliti en olíulitirnir
heilla þó mest.
„Ég er alltaf með nokkur verk í
vinnslu í einu; olíulitirnir eru lengi
að þorna og þá verður maður að geta
gripið í nokkrar myndir sitt á hvað.
Hér á vinnustofunni eru nú þegar
nokkrar myndir fullbúnar og enn
fleiri á heimili okkar,“ segir Jar-
þrúður sem hefur á ferlinum haldið
sýningar, ein og með öðrum. Gætu
sýningar orðið fleiri í framtíðinni.
Álftir á ljósmynd flugu inn á málverk
Álftirnar kvaka! Þær
flögruðu tignarlega yfir
Laugarvatn og hafa nú
komist í olíu á striga.
Aðdáunarverðir fuglar
og fallegt kvak, segir
Jarþrúður Jónsdóttir,
listakona á Selfossi.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Málverk Álftirnar eru fallegar að lit og lögun, segir Jarþrúður Jónsdóttir listakona, hér á vinnustofu sinni. Hún
hefur síðustu vikurnar verið frá vinnu vegna kórónuveirunnar og dundað sér við að mála þetta fallega verk.
Fyrirmynd Flögrað yfir Laugarvatn á fallegum degi á útmánuðum.
Ístað kröfuganga og útifundar ídag, 1. maí, sem er alþjóð-legur baráttudagur launa-fólks, stendur verkalýðs-
hreyfingin fyrir dagskrá í sjónvarpi
á RÚV sem hefst í kvöld kl. 19:40.
Þessi háttur er hafður vegna kór-
ónuveirunnar, en samkomubann lok-
ar á fjöldasamkomur. Þetta er í
fyrsta skipti síðan árið 1923 að ís-
lenskt launafólk safnast ekki saman
á þessum degi til að leggja áherslu á
kröfur sínar. Að dagskránni standa
BSRB, ASÍ, BHM og Kennara-
samband Íslands. Flutt verða hvatn-
ingarorð forystu verkalýðshreyfing-
arinnar. Meðal listamanna sem
koma fram eru Ragnheiður Gröndal,
Bubbi Morthens, Amabadama, Jói P
og Króli, Jakob Birgisson uppistand-
ari, KK og Lúðrasveit verkalýðsins.
Samstaða er afl gegn græðgi
„Það er einkennandi að þau sam-
félög sem hafa náð að vernda fólk
best gegn veirunni eru þau lönd þar
sem samfélagshugsun er ríkjandi í
stað þeirrar hugsunar að hver sé
sjálfum sér næstur,“ segir Drífa
Snædal, forseti ASÍ, í pistli sem hún
skrifar í tilefni af 1. maí. Viðbrögð
við veirufaraldrinum eru leiðarstef í
orðum Drífu sem segir vinnu, nám,
félagslíf og samskipti hafa breyst,
hugsanlega til frambúðar.
„Framtíðin sem við höfum búið
okkur undir, með aukinni áherslu á
tækni og grænar lausnir, er allt í
einu mætt nokkrum árum fyrr en
áætlað var og við stöndum frammi
fyrir spurningunni: hvernig ætlum
við að hafa framtíðina,“ segir Drífa
og ennfremur:
„Í öllum kreppum leita fjármagns-
eigendur tækifæra til að auka auð
sinn og komast yfir fyrirtæki, stofn-
anir og jafnvel heimili á brunaútsölu.
Eina aflið gegn slíkri græðgi er sam-
staða fólks og barátta fjöldahreyf-
inga. Við munum berjast gegn því að
endurreisnin verði byggð á að sam-
eignir okkar verði seldar eða að sleg-
ið verði af kröfum um laun og aðbún-
að vinnandi fólks.“
Ragnar Þór Pétursson, formaður
Kennarasambands Íslands, segir í
samtali við Morgunblaðið að nú sem
aldrei fyrr sé mikilvægt að hlúa að
viðkvæmum hópum í íslensku sam-
félagi, til dæmis þeim sem óttast um
afkomu sína, eru félagslega einangr-
aðir. Sérstaklega þurfi að gæta að
börnum og ungmennum og tryggja
að þau, sem koma til með að borga
vextina af björgunaraðgerðunum nú,
líði ekki fyrir þær aðgerðir sem farið
verður í.
Standa vörð um menntakerfið
„Það er mikilvægt í dag að standa
vörð um velferðarkerfið og mennta-
kerfið, ganga frá lausum kjarasamn-
ingum og skapa stöðugleika. Síðan
þurfum við að horfast í augu við það
að við vorum á margan hátt komin í
vandræði löngu áður en kórónu-
veiran nam hér land – og við verðum
í vandræðum löngu eftir að hún fer,
nema við ráðumst að rót marg-
víslegs vanda sem við stöndum
frammi fyrir,“ segir Ragnar.
sbs@mbl.is
Samfélagshugsun ríki
Baráttudagur! Dagskrá
á RÚV í kvöld í stað úti-
funda. Ný framtíð er
mætt, segir forseti ASÍ.
Morgunblaðið/Hari
Barátta Í kröfugöngu verkalýðsfélaganna í Reykjavík á sl. ári. Hver tími hef-
ur sitt svipmót og kórónuveiran kemur í veg fyrir að efnt sé til útifunda nú.
Drífa
Snædal
Ragnar Þór
Pétursson
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður
Við erum hér til að aðstoða þig! --
• Sérsmíðaðir skór
• Skóbreytingar
• Göngugreiningar
• Innleggjasmíði
• Skóviðgerðir
Erum með samning við
sjúkratryggingar Íslands
Tímapantanir í síma 533 1314