Morgunblaðið - 01.05.2020, Side 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2020
● Finnur Árnason,
forstjóri Haga, og
Guðmundur Mar-
teinsson, fram-
kvæmdastjóri Bón-
uss, hafa ákveðið
að hætta störfum
hjá fyrirtækjunum.
Þetta var tilkynnt
til Kauphallar Ís-
lands í gær. Þeir
munu sinna störfum sínum þar til arf-
takar þeirra hafa verið fundnir. Finnur
hefur verið forstjóri Haga í 15 ár eða frá
árinu 2005. Hann hóf hins vegar störf
hjá fyrirtækinu árið 1998. Guðmundur
hefur einnig átt langa samleið með
Bónus sem teygir sig eina þrjá áratugi
aftur í tímann.
Finnur hættir eftir 15 ár
sem forstjóri hjá Högum
Finnur Árnason
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gústaf Steingrímsson, hagfræðingur
í hagfræðideild Landsbankans, segir
ýmsar ástæður fyrir því að verðbólg-
an mældist meiri í apríl en bankinn
hafði spáð. Hins vegar sé ekki útlit
fyrir að verðbólgan fari á mikið skrið
næstu mánuði.
Verðbólgan
mældist 2,2% í
apríl en var 2,1% í
mars. Lands-
bankinn spáði
0,1% hækkun á
vísitölu neyslu-
verðs í apríl en
raunin var 0,48%
hækkun. Al-
mennt var spáð
0,1-0,3% hækkun
vísitölunnar í apríl.
„Við gerum ráð fyrir að verðbólga
verði frekar lítil næstu mánuði. Við
spáum því að hún verði um 2% í júlí.
Ef gengisáhrifin koma hins vegar
inn með mun þyngri hætti en við
væntum munum við sjá eitthvað
hærri verðbólgu. Við teljum þó ólík-
legt að hún sé að fara á flug.“
Mismunandi framlag undirliða
Hér á síðunni má sjá verðbólguspá
hagfræðideildar Landsbankans fyrir
næstu mánuði. Þar má líka sjá graf
sem sýnir framlag undirliða vísitölu
neysluverðs til verðbólgunnar í apríl.
Gulu punktarnir sýna spá hagfræði-
deildar Landsbankans fyrir viðkom-
andi lið. Matur og drykkur, nýir
bílar og húsgögn og heimilisbúnaður
hækkuðu umfram spá. Hins vegar
lækkaði verð á bensíni, fatnaði og
skóm minna en spáð var.
Gústaf segir aðspurður engin sér-
stök merki um að launahækkanir séu
að smitast meira út í verðlagið en
venjulega. Hægst hafi aðeins á 12
mánaða hækkunartakti launavísitöl-
unnar að undanförnu eftir ríflegar
launahækkanir síðustu ár.
„Vísitala launa hækkaði um 4,9% í
mars sem er vel undir meðallagi síð-
ustu ára. Við sjáum engin merki þess
að launin séu að koma meira fram í
verðlagi en verið hefur. Það eru fyrst
og fremst gengisáhrifin sem við van-
mátum að einhverju leyti. Það er
helsta ástæðan fyrir því að verðbólg-
an var meiri en við töldum,“ segir
Gústaf um ástæðurnar.
Erfitt að gera spár
Krónan hefur veikst töluvert
undanfarnar vikur vegna veirunnar.
Gústaf segir verðbólguspár alltaf
verða ónákvæmari þegar um er að
ræða ýkta atburði eins og nú.
„Það er meiri óvissa í spánum í
svona ástandi,“ segir Gústaf.
Þá bendir hann á að fasteignaverð
hafi hækkað meira en hagfræðideild-
in hafi vænst en hækkun þess skili
sér í aukinni verðbólgu. Gera megi
ráð fyrir að lækkun húsnæðislána-
vaxta að undanförnu sé ein skýringin
á hækkandi fasteignaverði. Líklegt
sé þó að áhrif lækkunar húsnæðis-
lánavaxta hafi ekki skilað sér inn í
verðið að fullu. Hins vegar kunni
veltan á markaðnum að minnka
næstu vikurnar vegna vaxandi at-
vinnuleysis. „Þá er líka spurning
hvort ástandið í hagkerfinu togi ekki
þyngra í þá átt að draga úr hækkun
fasteignaverðs,“ segir Gústaf.
Skila sér misfljótt
Áhrifin af gengisveikingunni skili
sér misfljótt í undirliðum vísitölunn-
ar. Að jafnaði skili gengisveiking sér
í mat og drykk með eins mánaðar töf.
Í sumum öðrum liðum geti hún skil-
að sér með enn meiri töf. „Töfin er
hins vegar ekki föst yfir tíma. Það
getur vel verið að kaupmenn telji að
gengisveikingin sé komin til að vera.
Þá eru þeir líklegri til að velta
gengislækkuninni strax út í verðlag-
ið í stað þess að bíða,“ segir Gústaf.
Hvað varðar bensínið spáir hag-
fræðideildin 3,5% verðlækkun í maí.
Loks segir Gústaf erfitt að spá um
gengishorfur. Óvissan sé enda mikil.
Jón Bjarki Bentsson, aðalhag-
fræðingur Íslandsbanka, bendir á að
Hagstofan hafi nýverið tilkynnt
hvernig hún myndi mæla verðbólgu
við þessar aðstæður. Þar sem viss
starfsemi liggi niðri sé síðasta virka
mæling notuð og ályktað sem svo að
það hafi ekki orðið verðbreyting.
„Þetta dempar þá heildarmæl-
inguna, enda hefur Hagstofan haldið
um tíunda hluta af neyslukörfunni
óbreyttum milli mælinga í apríl.
Meðan þetta ástand ríkir er líklegt
að verðbólgan mælist því heldur
minni en ella,“ segir Jón Bjarki.
Gengið leiðandi í verðbólguþróun
Sérfræðingur hjá Landsbankanum segir gengislækkun skýra meiri verðbólgu en bankinn spáði
Telur ekki horfur á að verðbólga aukist mikið næstu mánuði Spáir lækkun bensínverðs í maí
Verðbólga frá okt. 2019 og spá til júlí 2020
Ársverðbólga og mánaðarleg breyting á vísitölu neysluverðs
3,0%
2,5%
2,0%
1,5%
1,0%
0,5%
0%
-0,5%
okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí
2019 2020
Ársverðbólga
Mánaðarleg breyting
á vísitölu neysluverðs
Rauntölur Spá
+0,48%
2,2%
+0,3%
2,3%
+0,2%
2,1%
-0,4%
2,0%
Heimild: Hagfræðid. Landsbankans, Hagstofan
Undirliðir vísitölu neysluverðs í apríl 2020
Framlag undirliða til breytingar vísitölu milli mánaða, mars til apríl
-0,20% -0,15% -0,10% -0,05% 0% +0,05% +0,10% +0,15% +0,20%
Póstur og sími
Tómstundir og menning
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu
Aðrar vörur og þjónusta
Áfengi og tóbak
Heilsa
Reiknuð húsaleiga
Ferðir og flutningar – annað
Húsgögn, heimilisbúnaður o.fl.
Kaup ökutækja
Matur og drykkjarvörur
Bensín
Föt og skór
Hótel og veitingastaðir
Flugfargjöld til útlanda
H
ei
m
ild
: H
ag
fr
æ
ði
d.
L
an
ds
ba
nk
an
s,
H
ag
st
of
an
Samtals hækkun um
0,48%
frá mars til apríl
Rauntölur Spá
Gústaf
Steingrímsson
Hagnaður stoðtækjafyrirtækisins
Össurar nam 7 milljónum dollara á
fyrsta ársfjórðungi og dróst saman
um 50% frá sama tímabili í fyrra.
Nam hann 5% af veltu félagsins yfir
tímabilið. Í tilkynningu frá fyrir-
tækinu segir að faraldur kórónuveir-
unnar hafi haft áhrif á rekstrarnið-
urstöðuna.
Sala fyrirtækisins á fjórðungnum
nam 154 milljónum dollara, jafnvirði
20 milljarða króna. Dróst salan sam-
an um 2% í staðbundinni mynt og
innri vöxtur félagsins var neikvæður
um 5%. Sala dróst saman í marsmán-
uði á þeim mörkuðum þar sem ráð-
stafanir voru gerðar til að takmarka
útbreiðslu kórónuveirunnar.
Sala dróst saman um 4% í stoð-
tækjum og 7% í spelkum og stuðn-
ingsvörum. Segir félagið að áhrif
heimsfaraldursins séu svipuð á báða
flokka.
EBITDA niður um 8 milljónir
EBITDA á fyrsta fjórðungi var 22
milljónir dollara, jafnvirði 3 milljarða
króna eða 14% af sölu. EBITDA á
fyrsta fjórðungi 2019 nam 30 millj-
ónum dollara eða 19% af sölu.
Í byrjun apríl fékk Össur sam-
þykki frá samkeppnisyfirvöldum í
Bandaríkjunum til að ganga frá
kaupum á stoðtækjafyrirtækinu Col-
lege Park. Félagið hefur hins vegar
gengið frá samkomulagi sem frestar
endanlegum kaupum á félaginu en
stefnt er að því að þeim verði lokið
innan þriggja mánaða.
Félagið ítrekar í tilkynningu að
fjárhagsstaða félagsins sé sterk.
Þannig hafi félagið t.d. tryggt sér
aukna fjármögnun upp á 225 millj-
ónir dollara, jafnvirði 29 milljarða
króna í marsmánuði, og sjóðir félags-
ins auk óádreginna lánalína stóðu í
304 milljónum dollara í lok fjórð-
ungsins.
Heildareignir Össurar hf. námu
tæpum 1,1 milljarði dollara í lok
fyrsta ársfjórðungs og höfðu aukist
um tæpar 8 milljónir dollara. Skuldir
félagsins námu 554 milljónum doll-
ara. Eiginfjárhlutfall félagsins er
50%.
Hagnaður Össur-
ar helmingast
vegna veirunnar
Morgunblaðið/Eggert
Össur hf. Jón Sigurðsson
er forstjóri fyrirtækisins.
Fresta kaupum á College Park
● Guðmundur
Kristjánsson hefur
látið af starfi for-
stjóra Brims hf.
Guðmundur er
meirihlutaeigandi
Útgerðarfélags
Reykjavíkur sem
er langstærsti eig-
andi félagsins. Í til-
kynningu sem send
var Kauphöll Ís-
lands í gær kom fram að hann léti af
störfum af persónulegum ástæðum.
Kristján Þ. Davíðsson, stjórnarformaður
félagsins, hefur tekið tímabundið við
starfinu og mun gegna því þar til nýr
forstjóri verður ráðinn. Í fyrradag var
greint frá að Útgerðarfélag Reykjavíkur
hefði selt hlutabréf í Brimi fyrir 600
milljónir króna.
Guðmundur hættir
skyndilega hjá Brimi
Guðmundur
Kristjánsson
● Árni Sigur-
jónsson, yfirlög-
fræðingur Marels,
var kjörinn formað-
ur Samtaka iðn-
aðarins á aðalfundi
félagsins sem hald-
inn var í gær. Fékk
hann meirihluta
greiddra atkvæða
eða 71,5%. Ásamt
Árna í formannsframboði var Guðlaug
Kristbjörg Kristinsdóttir, stjórnar-
formaður Límtrés Vírnets og Securitas.
Árni er kjörinn til tveggja ára en hann tók
við af Guðrúnu Hafsteinsdóttur, mark-
aðsstjóra Kjöríss.
Ásamt Árna voru kjörin í stjórn þau
Arna Arnardóttir gullsmiður, Egill Jóns-
son hjá Össuri, Margrét O. Ásgeirsdóttir
hjá CRI, Valgerður H. Skúladóttir hjá
Sensa og Vignir S. Halldórsson hjá MótX.
Í stjórn sitja níu manns en kosið verð-
ur um fjögur stjórnarsæti til tveggja ára
á næsta ári.
Árni Sigurjónsson
kjörinn formaður SI
Árni Sigurjónsson
STUTT
KKV Investment
Management
Ltd. sem er dótt-
urfélag dóttur-
félags Kviku
banka hefur tek-
ið við stýringu
breska veðlána-
sjóðsins SQN As-
set Finance In-
come Fund.
Eignir sjóðsins
eru metnar á 390 milljónir punda,
jafnvirði 70 milljarða króna. Hluta-
bréf sjóðsins eru skráð á aðallista
Kauphallarinnar í Lundúnum.
Stjórn SQN var boðin út í febrúar
síðastliðnum og að undangengnu
tveggja mánaða valferli var KKV
valið til samstarfs. Samkomulagið
sem nú hefur verið undirritað er
óskuldbindandi en Kvika segir í til-
kynningu að gert sé ráð fyrir að
gengið verði frá formlegum samn-
ingum í maí og að KKV taki við
stýringu sjóðsins í byrjun júní.
KKV er nýstofnað félag sem sér-
hæfir sig í eignastýringu á sviði
sérhæfðrar lánastarfsemi.
SQN sjóðurinn er lánasjóður sem
veitir veðtryggð lán til lítilla og
meðalstórra fyrirtækja, að mestu í
Bretlandi, Evrópu og Bandaríkj-
unum. Segir í tilkynningu Kviku að
eftir að hafa notið mikilla vinsælda
meðal fjárfesta hafi sjóðurinn átt
undir högg að sækja að undanförnu
vegna erfiðleika við úrvinnslu
ákveðinna eigna.
Kvika tek-
ur við 70
ma. sjóði
Skráður veðlána-
sjóður í Bretlandi
Marinó Ö.
Tryggvason
1. maí 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 147.01
Sterlingspund 182.52
Kanadadalur 105.4
Dönsk króna 21.388
Norsk króna 14.157
Sænsk króna 14.335
Svissn. franki 150.88
Japanskt jen 1.3808
SDR 200.57
Evra 159.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 187.454
Hrávöruverð
Gull 1706.0 ($/únsa)
Ál 1465.0 ($/tonn) LME
Hráolía 20.66 ($/fatið) Brent