Morgunblaðið - 01.05.2020, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2020
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Christine Lagarde, seðlabankastjóri
Evrópu, varaði við því í gær að ríki
evrusvæðisins sæju nú fram á sam-
drátt á bilinu 5-12% á þessu ári.
Sagði hún að dýpt kreppunnar á
evrusvæðinu myndi að miklu leyti
ráðast af því hversu lengi þær neyð-
araðgerðir sem evruríkin hafa þurft
að ráðast í vegna kórónuveirunnar
myndu standa yfir.
Hagstofa ESB greindi frá því í
gær að samdráttur innan evrusvæð-
isins hefði numið 3,8% á fyrstu
þremur mánuðum ársins. Sagði La-
garde að tölurnar fyrir næsta árs-
fjórðung yrðu líklega enn verri, en
að í hagspám bankans væri gert ráð
fyrir að efnahagurinn gæti tekið við
sér fljótt eftir að faraldurinn er lið-
inn hjá.
Kreppa hafin í Þýskalandi
Stjórnvöld í Þýskalandi, stærsta
hagkerfi Evrópu, tilkynntu í gær að
atvinnuleysi hefði aukist mjög þar í
landi á síðustu vikum, og eru nú 2,6
milljónir manna á atvinnuleysisskrá
í Þýskalandi. Þá gera þýsk stjórn-
völd ráð fyrir 6,3% samdrætti á
þessu ári.
Angela Merkel Þýskalandskansl-
ari kynnti í gær frekari tillögur
stjórnvalda til að létta á neyðarað-
gerðum sínum vegna faraldursins.
Bænahús, leikvellir, söfn og dýra-
garðar eru nú á meðal þeirra staða
sem mega vera opnir í landinu, en
Merkel lagði áherslu á að þetta væri
eitt skref í baráttunni. „Það skiptir
áfram öllu máli að við séum áfram
öguð,“ sagði Merkel og bætti við að
fylgst yrði grannt með áhrifum nú-
verandi tilslakana.
Félögin bíða eftir ákvörðun
Merkel valdi hins vegar að bíða
fram yfir helgi með að ákveða hvort
opna mætti veitingastaði og skóla á
ný. Sagði hún að „skýr ákvörðun“
yrði tekin á miðvikudaginn í næstu
viku, sem næði þá einnig til þýsku
Bundesligunnar, efstu deildar Þjóð-
verja í knattspyrnu.
Félögin í deildinni vona að keppni
geti hafist í maí, og hafa þegar lagt
fram áætlun um hvernig þau muni
spila leiki sína fyrir luktum dyrum.
Evruríkin í vandræðum
Seðlabanki Evrópu spáir 5-12% samdrætti á þessu ári Merkel kallar eftir aga
AFP
Faraldur Grímuklæddir vegfar-
endur ganga framhjá höfuðstöðvum
evrópska seðlabankans í Frankfurt.
Breski uppgjafahermaðurinn Tom Moore fagnaði í gær
hundrað ára afmæli sínu. Moore, eða „Kafteinn Tom“
eins og hann er jafnan kallaður, varð þjóðþekktur í
Bretlandi þegar hann hóf fjársöfnun fyrir NHS, breska
heilbrigðiskerfið, vegna kórónuveirufaraldursins.
Rúmlega 30 milljónir sterlingspunda hafa nú safnast
fyrir tilstilli Moore, og heiðraði breski flugherinn,
RAF, Moore með því að láta tvær orrustuvélar af gerð-
unum Spitfire og Hurricane fljúga yfir heimili hans. Þá
gerði breski herinn Moore að heiðursofursta.
AFP
„Kafteinn Tom“ fagnaði hundrað árum
Joe Biden, tilvon-
andi frambjóð-
andi Demókrata-
flokksins í
bandarísku for-
setakosningunum
í haust, tilkynnti í
gær að hann hefði
sett nefnd á lagg-
irnar, sem á að að-
stoða hann við að
finna væntanlegt varaforsetaefni
sitt og um leið kanna bakgrunn
þeirra sem koma til greina.
Biden hefur heitið því að með-
frambjóðandi sinn verði kvenkyns.
Sú yrði þá önnur konan á eftir Ger-
aldine Ferraro, meðframbjóðanda
Walters Mondales 1984, til að bjóða
sig fram í embætti varaforseta.
Nokkur styr hefur staðið um Bid-
en síðustu daga eftir að fyrrverandi
aðstoðarkona hans, Tara Reade,
ásakaði hann um að hafa beitt sig
kynferðislegu ofbeldi snemma á
tíunda áratugnum. Framboð Bidens
hefur hafnað ásökununum, en Biden
hefur ekki talið ástæðu til að tjá sig
sjálfur um ásakanir Reade að svo
stöddu.
Biden hefur leit að
varaforsetaefni
Joe Biden
BANDARÍKIN
Boris Johnson,
forsætisráðherra
Bretlands, sagði í
gær að hápunkti
kórónuveirufar-
aldursins hefði
loks verið náð þar
í landi.
Johnson mætti
á daglegan upp-
lýsingafund rík-
isstjórnarinnar
um faraldurinn í fyrsta sinn síðan
hann kom aftur til starfa eftir að
hafa veikst af veirunni. Sagði John-
son að hann hygðist kynna áætlanir
sínar um afléttingu sóttvarnaað-
gerða í byrjun næstu viku, en Bretar
hafa ekki viljað slaka á aðgerðum
sínum líkt og nágrannaríki þeirra.
Rúmlega 166.000 manns hafa
veikst af veirunni og 26.711 hafa dá-
ið af völdum hennar í Bretlandi.
Boris kynnir aðgerð-
ir sínar í næstu viku
Boris Johnson
BRETLAND
Norski auðkýfingurinn Tom Hagen
áfrýjaði í gær úrskurði héraðsdóms
um að hann skyldi sæta fjögurra
vikna gæsluvarðhaldi vegna gruns
um að hann hafi myrt eða átt þátt í
morði eiginkonu sinnar, Anne-Elisa-
beth Hagen, sem hvarf sporlaust frá
heimili þeirra hjóna í október 2018.
Norskir fjölmiðlar greindu frá því
í gær að lögreglan hefði rannsakað
Hagen vandlega undanfarna mán-
uði. Lagði hún m.a. tímabundið hald
á bifreið hans frá þeim tíma er Anne-
Elisabeth hvarf, en Hagen seldi
hana nokkrum mánuðum eftir hvarf-
ið. Norska dagblaðið Verdens Gang
greindi svo frá því í gær, og hafði eft-
ir heimildum innan lögreglunnar, að
rannsóknarlögreglumenn hefðu
undir höndum erfðaefni úr Hagen,
sem gæti að sögn tengt hann við
hvarf Anne-Elisabeth.
Þá mun lítið magn af blóði úr
Anne-Elisabeth Hagen hafa fundist
á heimili þeirra hjóna í þorpinu Fjell-
hamar í Lørenskog og hefur lögregl-
an áður sagt að hún telji það geta
varpað ljósi á örlög hennar.
Svein Holden, verjandi Hagens,
segir hins vegar ekkert benda til
þess að Anne-Elisabeth hafi verið
myrt eða að Hagen sé viðriðinn hvarf
hennar. Tom Hagen mun hafa sent
lögreglunni ábendingar nokkrum
sinnum á þeim 18 mánuðum síðan
kona hans hvarf, þar sem hann viðr-
aði þær kenningar að keppinautar
hans vildu koma á hann höggi.
Lögreglan segir hins vegar nú að
hún líti svo á að Hagen hafi vísvit-
andi verið að reyna að koma lögreglu
af sporinu og um leið firra sjálfan sig
sök. Þá er gengið út frá þeirri kenn-
ingu að Hagen hafi ekki verið einn að
verki daginn sem Anne-Elisabeth
hvarf.
Hagen áfrýjaði
gæsluvarðhaldi
DNA úr Hagen
eitt af sönnunar-
gögnum í málinu
AFP
Morð Svein Holden, verjandi Hag-
ens, ræðir við fjölmiðla um málið.
Atlantshafsbandalagið greindi frá
því í gær að flugvélar á vegum
bandalagsríkjanna hefðu þurft að
fylgjast grannt með umferð rúss-
neskra herflugvéla undanfarna tvo
daga. Þannig báru pólskar orrustu-
vélar kennsl á tvær langdrægar
sprengjuþotur Rússa af gerðinni
Tu-160, sem flugu ásamt fylgdarliði
um Eystrasaltið á þriðjudaginn að
danskri lofthelgi, þar sem danskar
orrustuvélar mættu þeim, og til
baka til Rússlands.
Þá þurfti norski flugherinn bæði á
þriðjudag og miðvikudag að fylgja
eftir rússneskum flugvélum sem
voru á leiðinni suður yfir Norðursjó.
Í tilkynningu bandalagsins segir
að þessar eftirlitsaðgerðir banda-
lagsríkjanna sýni að þau séu viðbúin
öllu og reiðubúin að verja lofthelgi
sína, hvort sem heimsfaraldur er í
gangi eða ekki.
Fylgdu
rússneskum
þotum eftir
Bandalagsríkin
halda árvekni sinni
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Sölustaðir:
Hagkaup, Fjarðarkaup,
Melabúðin, Nettó, Heilsuhúsin,
Vegan búðin, Fiskkompaní,
Frú Lauga, Brauðhúsið og
Matarbúr Kaju á Akranesi
Íslenskur
jurtadrykkur