Morgunblaðið - 01.05.2020, Qupperneq 17
17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2020
Málflutningur kínverskra stjórn-
valda vegna COVID-19-faraldursins
staðfestir að gjörbreyting hefur orðið
á framgöngu þeirra á alþjóðavett-
vangi. Kínverjar sögðust áður vilja
læra af öðrum þjóðum án þess að
blanda sér í málefni þeirra. Diplómat-
ar þeirra lágu þó ekki endilega á
skoðunum sínum og þeir gátu verið
harðir í horn að taka. Skilyrði sem ís-
lenskum stjórnvöldum voru sett þeg-
ar Kínaforseti kom hingað árið 2002
voru mörg sérkennileg. Á sínum tíma
lét kínverski sendiherrann öllum ill-
um látum vegna samskipta íslenskra
stjórnmálamanna við stjórnvöld á Ta-
ívan. Ráðamenn erlendra ríkja eru
settir í kínverskan skammarkrók
ræði þeir við við Dalai Lama – og
fleira má nefna.
Þessu hafa margir kynnst eftir
áratuga löng samskipti við kínverska
stjórnarerindreka. Þegar Kínverjar
opnuðu hér sendiráð fyrir tæpri
hálfri öld (1972) vakti verulega at-
hygli hve sendiherra þeirra var mikið
í mun að fræða íslenska viðmælendur
sína um hættuna af hernaðarlegum
umsvifum og útþenslu Sovétmanna á
Norður-Atlantshafi. Það væri Íslend-
ingum fyrir bestu að treysta samstarf
sitt við Bandaríkjamenn og standa
vörð um aðildina að NATO. Boðskap-
urinn var þá í andstöðu við yfirlýsta
stefnu vinstristjórnarinnar sem sat
hér á landi og vildi loka varnarstöð
Bandaríkjamanna á Keflavík-
urflugvelli.
Nú blanda kínverskir diplómatar
sér í opinberar umræður innan ein-
stakra landa með hörðum aðfinnslum
við fjölmiðla séu þeir taldir vega að
Kína. Dæmi um framkvæmd þess-
arar stefnu má sjá á blaðamanna-
fundum, í hringborðs-
umræðum og
samtölum í alþjóð-
legum sjónvarps-
stöðvum.
COVID-19-
blekkingar
Samhliða opinberri
áróðursherferð til að
bæta hlut Kína vegna
COVID-19-faraldurs-
ins hefur verið hert á
kínverskri sókn með
miðlun upplýsinga í
netheimum. Þar er leitast við að
bæta hlut Kína á kostnað annarra
ríkja, einkum Bandaríkjanna, en
raunar allra sem vekja reiði í Peking.
Fréttaritarar erlendra fjölmiðla eru
reknir skýringalítið frá Kína svo að
stjórnvöld sitji ein að efni frásagna
og frétta.
Kínverski sendiherrann í Reykja-
vík skammaði leiðarahöfund Morg-
unblaðsins á dögunum fyrir að vega
ómaklega að Kína vegnaCOVID-19-
faraldursins. Í Fréttablaðið skrifaði
sendiherrann síðan grein 15. apríl til
að vekja efasemdir um að veiran ætti
í raun uppruna í Wuhan í Kína. Í
grein í Fréttablaðinu 27. apríl flettu
Þorgeir Eyjólfsson og Hrafn Magn-
ússon ofan af blekkingum sendiherr-
ans. Starfshópur Þjóðaröryggisráðs
sem fjallar um upplýsingafalsanir
hér á landi vegnaCOVID-19 hlýtur
að fara í saumana á framlagi kín-
verska sendiherrans.
„Stríðsúlfar“
Af nýjustu áróðursherferðinni má
ráða að Kínverjar vilji hafa sitt fram
á kostnað þess sem gegn þeim stend-
ur. Fyrir Kínverjum vakir ekki að
finna sameiginlegan flöt eða sam-
starfsleið. Í einu af mál-
gagni Kínastjórnar Glo-
bal Times er nýju
stefnunni lýst á þennan
veg (16. apríl 2020):
„Þeir dagar eru fyrir
löngu liðnir þegar Kín-
verjar hlýddu skipunum
um að sýna undirgefni.
Vaxandi virðing Kína í
heiminum krefst þess að
Kínverjar gæti þjóð-
arhagsmuna sinna á
ótvíræðan hátt. Það sem
í raun býr að baki því að
Kínverjar eru nú sagðir ganga fram á
alþjóðavettvangi í anda „stríðsúlfa“
er breytingin á styrkleikahlutföllum
milli Kína og Vesturlanda. Þegar
Vestrið hefur ekki lengur getu til að
verja hagsmuni sína grípur það í ör-
væntingu sinni til framkomu í al-
þjóðasamstarfi sem minnir á fót-
boltabullur og reynir þannig að
viðhalda dvínandi virðingu sinni. Þeg-
ar vestrænir diplómatar falla í ónáð
finna þeir bragðið af „stríðsúlfa“-
diplómatíu Kínverja.“
Orðið „stríðsúlfar“ er sótt til kín-
verskra kvikmynda, Wolf Warrior I
frá 2015 og Wolf Warrior II frá 2017
þar sem bardagahetjur halda heiðri
Kínverja á loft. Þessar myndir eru
ekki á Netflix en þar má þó finna
margar kínverskar kvikmyndir sem
verðugt er að skoða vilji menn kynn-
ast því hvernig litið er á útlendinga af
þeim sem lúta ritskoðun kínverska
kommúnistaflokksins.
Árekstur menningarheima
Þegar margt af því er skoðað sem
nú er dreift með blessun kínverskra
ráðamanna minnir það á efni bók-
arinnar The Clash of Civilizations
and the Remaking of the World Or-
der - Árekstrar menningarheima og
endurgerð heimsmyndarinnar sem
Samuel P. Huntington, prófessor við
Harvard-háskóla, sendi frá sér árið
1996.
Í öllu því sem síðan hefur gerst í
heimsmálunum hafa ráðamenn á
Vesturlöndum forðast að skilgreina
átök með vísan til ólíkra menningar-
heima og lagt ofuráherslu á að hafna
þjóðernishyggju og halda þeim hóp-
um í skefjum sem höfða til hennar á
stjórnmálavettvangi einstakra ríkja.
Lýsingar Huntingtons á afstöðu
forystumanna Kína til Bandaríkj-
anna um miðjan tíunda áratug síð-
ustu aldar sýna að þar spruttu engin
kærleiksblóm. Í ágúst 1995 sagði Ji-
ang Zemin Kínaforseti – sem hingað
kom 2002 og söng O sole mio í Perl-
unni – að óvinveitt vestræn öfl hefðu
„ekki eitt andartak horfið frá sam-
særi sínu um að vesturvæða og
„sundra“ landi okkar“. Árið 1995 var
sagt að meðal kínverskra valda-
manna og fræðimanna væri almenn
samstaða um að Bandaríkjamenn
reyndu „að sundra landsyfirráðum í
Kína, kollvarpa stjórnmálum lands-
ins, halda því hernaðarlega í skefjum
og ónýta efnahag þess“.
Huntington segir að uppgangur
nýs stórveldis raski alltaf stöðugleika
og stígi Kína fram sem öflugt veldi
verði umbrotin meiri en menn hafi
áður kynnst á seinni helmingi ann-
arrar þúsaldarinnar. Hann vitnar í
LeeKuanYew, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Singapúr, sem sagði 1994:
„Umfang tilfærslu Kína í veröldinni
er svo risavaxið að heimurinn verður
að finna nýtt jafnvægi eftir 30 til 40
ár. Það er ekki unnt að láta eins og
þarna sé hver annar stórlax á ferð.
Þetta er mesti stórlaxinn í mann-
kynssögunni.“
Stórlaxinn birtist
Styrkja eða veikja sögulegu at-
burðirnir núna „ríkið í miðjunni“? Í
einflokkslandi undir manni með al-
ræðisvald þarf risaátak til að halda
1.400 milljónum manna í skefjum,
vakni grunsemdir um að leynt sé út-
breiðslu mannskæðrar veiru. Tökin
eru því hert innan lands með stór-
efldri stafrænni eftirlitstækni. Utan
lands er spurt hvort kínverskur efna-
hagur standi áfram undir fjárfest-
ingum alræðisherrans, belti og braut.
Málsvarar Kínastjórnar segja að
lítið þýði fyrir Bandaríkjamenn, 250
ára þjóð og aðeins fjórðung af fjölda
Kínverja, að reyna að hafa vit fyrir
Kínverjum með meira en 4.000 ára
gamla stjórnmálamenningu sína. Þá
hafi Kínverjar lært að sýni þeir veik-
leika vaði Vestrið yfir þá eins og á
niðurlægingaröldinni. Nú þegar
skammir dynji á Kínverjum úr vestri
segi þeir: Enn eina ferðina. Þetta sé
því til þess eins fallið að festa kín-
versku stjórnina í sessi, hún eigi allt
sitt undir eldmóði meðal þjóðarinnar
gegn þeim sem traðki á henni á tím-
um erfiðleika. Þess vegna sé ýtt undir
þjóðernishyggju og hörku gagnvart
öðrum.
Lifum við nú rosalega umbrota-
tíma vegna kínverska stórlaxins?
Eftir Björn Bjarnason » Af nýjustu áróðurs-
herferðinni má
ráða að Kínverjar vilji
hafa sitt fram á kostnað
þess sem gegn þeim
stendur.
Björn Bjarnason
Höfundur er fyrrv. ráðherra.
Kínverski stórlaxinn byltir sér
Það eru ótrúlegar
fjárhæðir sem renna
úr okkar sameiginlegu
sjóðum til þess að
styðja við einstaklinga
og fyrirtæki þessa
dagana. Allt í einu
verður heilsa og fram-
færsla mikilvægari en
allt annað, forgangs-
röðunin verður skýr
og verðmætamatið
sömuleiðis. Hér á landi
eru það ekki hermenn eða lögregla
sem beita sektum og refsingum til
að hemja útbreiðslu faraldursins
heldur er treyst á almenning, að
hann fari að tilmælum og hegði sér
samkvæmt hagsmunum heildar-
innar. Okkar hetjur klæðast hvítum
sloppum og varnarbún-
aði. Við stöndum saman
og verjum hvert annað,
sérstaklega þá sem eru
í viðkvæmri stöðu
heilsu sinnar vegna, og
við hlúum jafnframt að
andlegu hliðinni og við-
urkennum þannig hina
flóknu þræði sem gera
okkur að manneskjum.
Þannig hefur heims-
faraldurinn dregið
fram styrkleika ís-
lensks samfélags og
þeirra grunnstoða sem við höfum
byggt upp í sameiningu.
Hvað ef við höldum áfram á þess-
ari braut? Hvernig myndi það líta út
ef við settum heilsu, velferð og
framfærslu alltaf í forgang? Hvað ef
við höldum áfram að meta það fólk
sem sinnir sjúkum og veikum, þrífur
heimili, vinnustaði og skóla og held-
ur utan um börnin okkar? Hvað ef
við hugsuðum um hagsmuni heildar-
innar alltaf, ekki bara þegar veira
ógnar heimsbyggðinni?
Við stöndum á krossgötum og
höfum val um hvernig við höldum
áfram héðan. Um allan heim er ver-
ið að hugsa grunngerðir samfélaga
upp á nýtt. Lönd sem búa að sterkri
og opinberri heilbrigðisþjónustu
standa margfalt betur að vígi en hin
sem hafa leyft markaðsöflunum að
læsa klóm sínum í heilbrigði og vel-
ferð. Lönd sem eiga sterkar verka-
lýðshreyfingar og öflug almanna-
samtök eru betur undir það búin að
breyta atvinnuleysi í atvinnutæki-
færi. Stærsta ógnin sem nú steðjar
að íslensku efnahagslífi er mikið og
langvarandi atvinnuleysi. Við höfum
þekkinguna, reynsluna og innviðina
til að takast á við það. Uppbygg-
ingin þarf að byggjast á skýrri
framtíðarsýn sem tekur mið af
breytingum sem verða á atvinnu- og
lifnaðarháttum með tilkomu nýrrar
tækni og vegna nauðsynlegra að-
gerða gegn loftslagsbreytingum. At-
vinnusköpun þarf meðal annars að
eiga sér stað í nýsköpun og tækni,
uppbyggingu innviða og skapandi
greinum.
Við finnum strauma alls staðar í
heiminum sem hugsa upp á nýtt,
efast um það sem var og sjá fyrir
sér öðruvísi framtíð en nútíð. Sér-
hagsmunaöflin eru vel á verði og
reyna nú að sölsa undir sig meira en
áður. Við þessu þarf að reisa varnir.
Hugmyndir um að selja opinberar
eignir og nauðsynlega innviði á
brunaútsölu eiga að tilheyra fortíð-
inni.
Á baráttudegi verkalýðsins –
þeim fyrsta í rúma öld sem alþýðan
flykkist ekki út á götur – reisum við
kröfur um nýtt og betra samfélag.
Við ákveðum hver framtíðin á að
vera og leggjum af stað þangað.
Sjálfbærni, full atvinna, jöfnuður og
jafnrétti eru okkar leiðarstef. Gleði-
legan 1. maí.
Eftir Drífu Snædal » Á baráttudegi verka-
lýðsins – þeim fyrsta
í rúma öld sem alþýðan
flykkist ekki út á götur
– reisum við kröfur um
nýtt og betra samfélag.
Drífa Snædal
Höfundur er forseti ASÍ.
Velferð í skugga veiru
Veturinn sem nú er að líða hefur
verið sá erfiðasti í langan tíma.
Veðrið hefur minnt okkur rækilega á
hvar á hnettinum við búum og ljóst
var að við vorum að sigla inn í sam-
dráttarskeið eftir átta ára samfellt
hagvaxtarskeið. Á síðustu sex vikum
hefur umhverfið síðan gjörbreyst og
staðan á íslenskum vinnumarkaði er
orðin grafalvarleg. Covid-19-
faraldurinn hefur haft gríðarleg
áhrif á okkur öll og fram undan eru
miklar áskoranir fyrir íslenskt sam-
félag. Heilu atvinnugreinarnar eru
lamaðar og ljóst að fjöldi fyrirtækja
hefur orðið fyrir eða mun verða fyrir
miklum og jafnvel óyfirstíganlegum
vanda.
Við í ríkisstjórninni höfum nú þeg-
ar kynnt gríðarlega umfangsmiklar
aðgerðir með það að markmiði að
verja efnahagslífið eins og hægt er.
Það sem er ekki síður mikilvægt er
að við kynntum einnig félagslegar
aðgerðir fyrir tæpa 5,7
milljarða króna, sem
eru hluti af aðgerða-
pakka ríkisstjórnar-
innar, og er ætlað að
veita mótvægi vegna
þeirra áhrifa sem far-
aldurinn hefur á við-
kvæma hópa í sam-
félaginu.
Mikil áhrif á börn
Í þeim aðstæðum
sem nú eru uppi er
aukið álag á öllu sam-
félaginu og þá ekki
síst mikilvægustu einingu þess, fjöl-
skyldunni. Kvíði og streita skapast
gjarnan í tengslum við samkomu-
bann, efnahagslegar áskoranir og
minna aðgengi viðkvæmra hópa að
stuðnings- og þjónustukerfum.
Þótt Covid-19-veiran virðist ekki
herja á börn með sama hætti og
marga aðra hópa skapar faraldurinn
ýmiskonar áskoranir þegar kemur
að öryggi og velferð
barna. Röskun á rútínu
getur reynst börnum
sérstaklega erfið og
rannsóknir hafa sýnt
að ofbeldi eykst þar
sem álag er mikið á
fjölskyldur. Þetta hef-
ur verið raunin í far-
öldrum síðustu áratuga
og nýlegar upplýsingar
frá Kína og Ítalíu hafa
einnig sýnt aukningu í
þessum málum á með-
an faraldurinn hefur
gengið yfir.
Markmiðið er skýrt
Í þeim aðgerðum sem við í ríkis-
stjórninni kynntum nýlega er lögð
sérstök áhersla á stuðning við við-
kvæma hópa. Markmiðið er skýrt:
við ætlum að standa með fólki og
fjölskyldum og verja heimilin. Um
er að ræða gríðarlega umfangsmik-
inn aðgerðapakka sem inniheldur
margvíslegar aðgerðir þar sem við
ætlum að hjálpa þeim hópum sem
eru í viðkvæmri stöðu að komast í
gegnum þessa óvissutíma. Þær að-
gerðir sem við ætlum að ráðast í eru:
Koma til móts við foreldra og
aðra umönnunaraðila langveikra eða
fatlaðra barna, sem þurfa að sinna
aukinni umönnun vegna Covid-19,
með tímabundnum greiðslum.
Stuðningur við aldraða, fjöl-
skyldur fatlaðra barna og börn af er-
lendum uppruna efldur verulega.
Stuðningur við tómstundir
barna af lágtekjuheimilum þar sem
jöfn tækifæri þeirra til íþrótta- og
tómstundastarfs verða tryggð.
Áframhaldandi aukinn kraftur í
aðgerðir gegn heimilsofbeldi á Ís-
landi og um ofbeldi gegn börnum.
Átak í náms- og starfsúrræðum
fyrir atvinnuleitendur þar sem fjár-
veitingar til Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs verða auknar.
Fjölgun sumarstarfa um 3.500
fyrir námsmenn 18 ára og eldri sem
eiga engan eða takmarkaðan rétt til
atvinnuleysisbóta.
Frá upphafi Covid-19-faraldurs-
ins höfum við lagt áherslu á það að
styðja við viðkvæma hópa, en það
eru þeir hópar sem verða fyrir hvað
mestum áhrifum af faraldrinum.
Fólkið og fjölskyldur landsins eru
dýrmætasta eign samfélagsins og
þess vegna ætlum við áfram að vinna
að aðgerðum til að bæta stöðu við-
kvæmra hópa á næstu vikum og
mánuðum.
Að lokum vil ég óska lands-
mönnum öllum til hamingju með
baráttudag verkafólks.
Stuðningur við viðkvæma hópa
Eftir Ásmund Einar Daðason »Markmiðið er skýrt:
við ætlum að standa
með fólki og fjölskyld-
um og verja heimilin.
Ásmundur Einar
Daðason
Höfundur er félags- og
barnamálaráðherra.