Morgunblaðið - 01.05.2020, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2020
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Jearsybuxur st.22
Verð 5.990
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Veiði
Silunganet • Sjóbleikjunet
Fyrirdráttarnet • Bleikjugildrur
Nýtt á afmælisári
Kraftaverkanet • margar tegundir
25% afmælisafsláttur
af Stálplötukrókum fyrir
handfæraveiðar
Að auki fylgja silunganetum
vettlingar í aðgerðinni
Bólfæri
Netpokar fyrir þyngingu
Og eitthvað meira skemmtileg
Heimavík 25 ára
01.05.1995 - 01.05.2020
Tveir góðir úr nýju netunum
Reynsla • Þekking • Gæði
heimavik.is, s. 892 8655
Til leigu
Jörðin Hof í Vopnafirði
Þjóðkirkjan – Biskupsstofa auglýsir
til leigu jörðina Hof.
Jörðin er um 1.700ha að stærð en
á jörðinni stendur fallegt 284fm
íbúðarhús á tveimur hæðum.
Leigusali óskar eftir tilboðum fyrir
10. maí nk. Hlunnindi jarðarinnar
eruundanskilin.
Frekari upplýsingar og myndir má
nálgast á vef kirkjunnar;
www.kirkjan.is
Vantar þig
dekk?
FINNA.is
mbl.is
alltaf - allstaðar
✝ Margrét Sig-urrós Ingva-
dóttir fæddist 1.
nóvember 1946.
Hún lést á heimili
sínu 18. apríl 2020.
Móðir hennar var
Vigdís Bjarnadótt-
ir, f. 12. nóvember
1925, d. 9. júní
2007. Faðir hennar
var Ingvi Þorgeirs-
son, f. 4. október
1924, d. 3. nóvember 2002.
Bróðir var Þorgeir Ingvason
(látinn), hálfsystkin samfeðra
Guðmundur Karl Ingvason, Elín
Gerður Ingvadóttir (látin) og
Tryggvi Ingvason, hálfsystir
sammæðra Ragnheiður Björns-
dóttir (látin).
Börn Margrétar og fyrri eig-
inmanns hennar, Ágústs Mars
Valgeirssonar, eru: 1) Bára
Mjöll, f. 20. nóvember 1963,
maki Helgi Magnús Baldvins-
son. Börn þeirra eru Darri
Freyr, Elfa Rós og Birta Hlín.
2) Ómar Þór, f. 6. október 1965,
maki Margrét Rósa Sigurðar-
dóttir. Dóttir Margrétar og
stjúpdóttir Ómars Þórs er Elísa-
bet Ágústsdóttir. Seinni maður
Margrétar var Kristinn Guð-
mundsson og dóttir þeirra: 3)
Jóna Vigdís, f. 19. september
1972, maki Stefán Þorvaldsson.
Dóttir Jónu er Emilía Alexand-
ersdóttir og stjúpdóttir Ásthild-
ur Lilja Stefáns-
dóttir.
Langömmu-
börnin eru börn
Darra Freys
Helgasonar og
Berglindar Ólafs-
dóttur, Alexander
Snær, Árelía Sif og
Aron Jökull, og
stjúplangömmu-
börn eru börn
Elísabetar Ágústs-
dóttur og Maik Cichon, Carolin
Freyja, Sophie Sól og Eric
Thor.
Margrét fæddist í Reykjavík
og bjó þar fyrstu æviárin. Hún
fluttist ung með móður sinni og
Þorgeiri bróður sínum að
Saurbæ á Vatnsnesi í Húna-
vatnssýslu og þar bjuggu þau til
ársins 1962 en þá fluttust þau
aftur til höfuðborgarsvæðisins
og þar bjó Margrét alla tíð síð-
an. Margrét starfaði lengstan
hluta starfsævi sinnar sem
verslunarstjóri Bókabúðar
Braga í Lækjargötu og síðustu
20 ár starfsævinnar starfaði
hún á röntgendeild LSH í Foss-
vogi og hjá Hjartavernd.
Margrét Sigurrós var jarð-
sungin frá Kópavogskirkju 30.
apríl. Í ljósi aðstæðna í þjóð-
félaginu þurfti að takmarka
fjölda gesta í athöfninni og voru
eingöngu allra nánustu að-
standendur viðstaddir útförina.
Elsku hjartans mamma mín.
Mér er orða vant og ég sem
sjaldnast er þögul og tekst næst-
um því að grípa fram í fyrir sjálfri
mér. Ég sakna þín óendanlega
mikið og það vantar svo mikið í
lífið núna. Þú fórst svo brátt og
það er svo ósköp sárt að hafa ekki
getað kvatt þig þegar kallið kom,
setið þér við hlið og kreist hönd-
ina þína fast og sagt þér hversu
mikið ég elska þig. Haldið utan
um þig.
Þú gafst mér allt sem þú áttir
til að gefa mér. Þú varst alltaf til
staðar fyrir mig og kenndir mér
svo margt gott sem ég vona að ég
hafi náð að tileinka mér og taka
sem veganesti með mér út í lífið.
Þú varst falleg og blíð, hug-
rökk, þolinmóð, sterk, sjálfstæð
og vildir allt fyrir alla gera. Allir
voru jafnir í þínum augum öllum
tókstu vel og komst fram við þitt
samferðarfólk af alúð og virðingu.
Þú gafst okkur börnunum þín-
um og afkomendum okkar ótak-
markaða ást og gladdist með öll-
um okkar sigrum og varst
kletturinn okkar þegar við þurft-
um huggun og styrk.
Ég hélt við hefðum meiri tíma
saman elsku mömmugull. Við
hlökkuðum til vorsins og ætluð-
um að hjálpast að við að halda út-
skriftarveislu Emilíu saman, hafa
veislu úti og inni og skreyta allt
hátt og lágt. Þú kunnir svo sann-
arlega að halda glæsilegar veislur
og gleðjast og grínast, jafnvel á
erfiðum stundum.
Ég veit að þú elskaðir mig af
öllu hjarta og þú endaðir símtöl
okkar jafnan á því að segja „elska
þig“ eða „elska þig til heimsenda
og til baka“.
Ég veit líka að þú veist hvað ég
elskaði þig mikið, en núna óska ég
þess að geta sagt það við þig bara
einu sinni enn. Ég sagði við þig
fyrir ekki svo löngu að ég myndi
alltaf halda utan um þig og aldrei
sleppa þér.
Elska þig að eilífu og þakklát
fyrir að hafa átt þig sem mömmu
mína.
Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki
við hlið mér
og ég sakna þín á daginn þegar sólin
brosir við mér.
Og ég sakna þín á kvöldin þegar
dimman dettur á.
En ég sakna þín mest á nóttinni er
svipirnir fara á stjá.
Svo lít ég upp og sé við erum saman
þarna tvær
stjörnur á blárri festingunni sem færast
nær og nær.
Ég man þig þegar augu mín eru opin,
hverja stund.
En þegar ég nú legg þau aftur, fer ég á
þinn fund.
(Megas)
Þú verður alltaf hjá mér elsku
ástin mín.
Þín
Jóna Vigdís.
Elsku amma og langamma.
Það var ólýsanlega sárt að
heyra hvað þú kvaddir okkur
skyndilega. Enn meira þegar það
var ljóst að okkur voru engir veg-
ir færir að fá að vera viðstödd til
að kveðja þig í hinsta sinn. Sú til-
hugsun, að geta ekki fengið að
kveðja þig í faðmi fjölskyldunnar,
varð meira íþyngjandi með hverj-
um deginum sem leið frá því að
fréttirnar bárust.
Hins vegar, þegar á leið vik-
una, varð mér hugsað til þess að
nú binda þig engin jarðnesk bönd.
Þessi bönd sem binda okkur hin
við landsvæði og láta höfin skilja
okkur að. Láta aðstæður þessara
síðustu tíma hindra för okkar.
Eftir því sem mér varð meira
hugsað til þess varð ég viss um að
þú hefðir komið til okkar og verið
hjá okkur; mér, Berglindi, Alex-
ander, Árelíu og Aroni. Við fund-
um öll fyrir nærveru þinni, kær-
leikanum og gleðinni sem þú
komst með. Það kom örlítil ljós-
glæta í dimmuna sem fylgdi þess-
um þungu fréttum.
Við huggum okkur mikið við
það að við komum í heimsókn fyrr
á árinu, fengum að knúsa þig og
kyssa og eiga góða stund saman.
Þessa stund munum við bera með
okkur svo lengi sem við lifum.
Við hugsum hlýlega til allra
samverustundanna sem við átt-
um saman gegnum árin; þegar þú
hélst á langömmubörnunum
fyrst, þegar þú knúsaðir okkur og
kysstir og gafst allan þinn kær-
leik frá þér í hvert skipti sem
börnin fengu að stökkva í faðm-
inn þinn. Þessar stundir eru þær
sem börnin okkar, langömmu-
börnin þín, bera alltaf með sér.
Þessi kærleikur verður alltaf til
staðar.
Elsku amma. Elsku besta
amma mín. Hvað ég mun sakna
þín. Hvað ég mun vera lengi að
átta mig á því að ég geti ekki
hringt, að ég geti ekki leitað til
þín fyrir heiðarlegu og hrein-
skilnu ráðin þín, samtölin sem
gátu verið yfir heilu kvöldstund-
irnar til að ræða daginn og veg-
inn, allt og ekkert, þau voru dýr-
mæt, þau voru ómetanleg.
Ég gæti svo lengi talið upp öll
þau skipti sem ég gat farið sem
ungur strákur til þín, í ömmuf-
aðm, í „bræðraorlof“ eins og við
kölluðum það. Aðeins að komast í
óskipta athygli, einstakt dekur og
ævintýraferðir. Jákvæðnina,
kærleikann og knúsin ber ég með
mér í hjartastað.
Ég vona að þú hvílir í friði. Ég
vona að þú sért í ró. Að þú sért á
þessum ósnertanlega endastað
sem okkur öll langar til að hugsa
til að sé til. Hvar sem sá staður er
þá veit ég að þú vakir yfir okkur,
þú ert hjá okkur og kemur með
ljós þegar myrkrið þyrmir yfir.
Þetta ljós lifir í minningunni um
þig.
Hvíl þú í friði, elsku amma,
elsku langamma.
Darri, Berglind,
Alexander Snær, Árelía
Sif og Aron Jökull.
Elsku besta hjartahlýja amma
mín, það er svo erfitt að hugsa sér
að þú sér farin frá mér. Það sem
við áttum margar góðar stundir
saman, allar okkar samveru-
stundir þegar ég var á spítalanum
og þú komst í heimsókn til mín
einn góðan veðurdag með Bósa
ljósár besta skinn, sem var svo
minn besti vinur í gegnum veik-
indin. Alltaf tókst þér að ná mér á
þitt band og varst alltaf með
„leyndarmálapakka“ sem þú vild-
ir ekki leyfa mér að opna fyrr en
mamma var farin. Stundum
brástu á það ráð þegar það var
erfitt að leyfa mömmu að fara
heim til að hvíla sig og sagðir að
það væri vond táfýla af henni og
hún þyrfti að drífa sig heim í bað.
Ég hafði alltaf svo gaman af því
að föndra, klippa og líma.
Þegar þú komst með límbands-
rúlluna og mér tókst að líma allt
rúmið mitt á spítalanum, en sem
betur fer höfðu hjúkkurnar húm-
or fyrir öllum uppátækjunum
okkar.
Í hvert einasta skipti sem við
Elfa fórum í helgarheimsókn til
þín í Grænatúninu þá hafði
mamma alltaf sagt við okkur
systurnar áður en við lögðum af
stað að við mættum ekki rella og
fá að biðja um að gista hjá þér, en
hún vissi vel að um leið og við
komum í innkeyrsluna væri hún
búin að tapa og við stukkum í
fangið á þér og fengum að hvísla
að þér leyndarmál: „Amma meg-
um við gista?“
Okkur þótti svo gott að vera
hjá þér, það var svo mikið sem
mátti ekki heima sem laut ekki
sömu lögmálum þegar við komum
til þín.
Aumingja Mússi, kattargreyið,
þurfti alltaf að víkja þegar skess-
urnar tvær mættu í heimsókn til
þín. Hans eina gleði var að við
höfðum gaman af því að gefa hon-
um að éta og þú settir mig upp á
eldhúsborðið til þess að hella í
skálina hans og passaðir að hann
myndi ekki hoppa upp á borðið
svo ég myndi ekki hendast niður
af hræðslu. Alltaf vorum við jafn-
hræddar við köttinn en þú brást á
það ráð að þú settir köttinn í poka
svo hann myndi ekki klóra okkur
og leyfðir okkur að dröslast með
hann um allt hús.
Öll Eurovision-kvöldin okkar,
svo ótalmörg skemmtileg kvöld
sem munu aldrei gleymast. Enda-
laust nammiát, endalaus gleði,
söngur og eintóm hamingju eru
orðin sem mér dettur fyrst í hug.
Meira að segja þegar ég var
orðin of stór til að gista kom ég
samt til þín að horfa á Eurovision,
að vísu skelþunn og hét því að ég
myndi aldrei drekka aftur, og það
sem þér þótti það fyndið að heyra
það.
Þú tókst alltaf öllum opnum
faðmi og varst svo ráðagóð, það
var svo gott að spjalla við þig og
ræða um lífið og tilveruna. Mér
finnst svo erfitt að hugsa til þess
að ég geti ekki hringt í þig og
heyrt í þér hlæja. Þú ert besta
amma sem ég gat hugsað mér, og
það eru forréttindi að hafa fengið
að kynnast þér. Ég veit að þú ert
komin á góðan stað og heldur
áfram að fylgjast með mér.
Ég mun alltaf elska þig – frá
heimsenda og til baka aftur. Þín
Birta Hlín.
Elsku besta fallega amma mín,
að setjast niður og skrifa fallega
um þig er efni í heila bók. Ég á
mínar allra bestu æskuminningar
um heimsóknir og gistingu hjá
þér, hjá ömmu voru nefnilega
engar reglur. Við vorum vakandi
fram á nætur að horfa saman á
bíómyndir, margar vel rauð-
merktar til að nýta þetta reglu-
leysi til hins ýtrasta, borðuðum
morgunkorn á miðnætti og á milli
skeiða töluðum við saman um allt
milli himins og jarðar. Það var
alltaf svo gott að tala við þig,
sama hvort ég var 5 ára eða 25
ára, þú varst með öll svörin og
bestu ráðin. Þegar ég var lítil
dramadrottning að reyna að
ákveða hvað ég ætlaði að vinna
við þegar ég yrði stór, sagðirðu
alltaf að þegar ég yrði 18 ára
myndum við setjast yfir þetta
saman. Mér fannst það frekar
ótrúlegt þá svona 7 ára þar sem
ég sagði: „Þú verður líklega löngu
dauð þá. amma.“ Ég gleymi aldr-
ei svipnum á þér þegar þú horfðir
á mig vel móðguð og sagðir að þú
ættir nóg eftir. afsakaðu mig,
enda varstu ekki nema rétt um
fimmtugt.
Helgarnar sem við áttum sam-
an í Grænatúninu voru alltaf svo
ævintýralegar. Við byggðum
saman hús úr stólum og lökum
inni í stofu. Eurovision-kvöldin
þar sem var sungið hástöfum með
og skipt um það með hverjum
maður hélt eftir stigagjöfinni, al-
gjörlega án athugasemda frá
dómaranum (þér). Aumingja
kötturinn Mússi var settur í poka
(því enginn þorði að snerta þetta
óarga kvikindi nema þú) og hann
borinn milli herbergja, sem var
eina leiðin til að halda á honum án
þess að vera bitinn eða klóraður í
hel. Stóri bakgarðurinn var eins
og heill ævintýraheimur með allt
frá gömlum sleðum til dauðra
gæsa hangandi utan á skúrnum
eftir veiðitúr hjá afa. Það mátti
hoppa í öllum rúmum og borða yf-
ir sig af sælgæti en það var ein
regla sem aldrei mátti brjóta, það
var bannað að rífast og slást sem
var að sjálfsögðu virt til hins ýtr-
asta (meðan þú sást til).
Öll símtölin sem við áttum voru
að lágmarki klukkutími og þar fór
fram allt frá ástarmálum upp í
pólitík. Það var svo ótrúlega
margt sem ég átti eftir að segja
þér og ræða við þig, mér fannst
við alltaf eiga nægan tíma. Ég
átta mig ekki ennþá á því að ég
geti ekki aftur tekið upp símann
og heyrt í þér eða kíkt yfir í diet
coke og spjall. Þvílík forréttindi
að eiga ömmu sem var líka ein
mín besta vinkona.
Ein setning situr alltaf efst í
huga mér þegar ég hugsa til þín:
„Ég elska þig alla leið á heims-
enda og til baka“, þar sem til
tunglsins var ekki nógu langt.
Það er svo lýsandi fyrir það
hvað þú varst hjartahlý og inni-
leg, það fór aldrei á milli mála
hversu mikið þér þótti vænt um
okkur.
Ég trúi því að þú sért núna á
fallegum stað með Lillu frænku
og haldir áfram að fylgjast með
mér. Þangað til við hittumst aft-
ur, elsku Magga amma mín.
Allt hið liðna er ljúft að geyma,
- láta sig í vöku dreyma.
Sólskinsdögum síst má gleyma,
- segðu engum manni hitt!
Vorið kemur heimur hlýnar,
hjartað mitt!
(Jóhannes úr Kötlum)
Elfa Rósin þín.
Margrét Sigurrós
Ingvadóttir