Morgunblaðið - 01.05.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2020
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér hættir til þess að fyllast leið-
indum yfir rútínu dagsins. Kannski þú ættir
að gera hlutina í annarri röð til tilbreytingar.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú er kominn tími til að fara út, hitta
skemmtilegt fólk eða finna sér nýtt áhuga-
mál. Ástarsamband byrjar vel og þú ert
full/ur bjartsýni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er löngu tímabært að þú sýn-
ir ástvinum þínum hvern hug þú berð til
þeirra. Málamiðlanir ættu að reynast auð-
veldar og það er líklegt að þú náir sam-
komulagi sem þú ert sátt/ur við.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú munt njóta þess að taka þátt í
hópíþróttum með vinum þínum næstu dag-
ana. Leitaðu að innblæstri í bókum, kvik-
myndum eða listaverkum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Allar breytingar eru eðlilegur þáttur af
tilverunni svo taktu þeim fagnandi. Veltu
vandlega fyrir þér þeim fjárfestingarkostum
sem í boði eru.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú átt eftir að koma samstarfs-
mönnum þínum á óvart með hugkvæmn-
inni. Lífið heldur áfram og þú þarft stöðugt
að muna að þakka fyrir það sem þú hefur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér býðst óvænt tækifæri til þess að
vinna þér inn peninga í dag. Heppni þín
eykst þegar líður á daginn. Þú hittir spenn-
andi manneskju í kvöld.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér finnst erfitt að sitja undir
gagnrýni fyrir verk sem þú telur þig hafa
leyst vel af hendi. Gott er að ræða saman
því samskiptaskortur er aldrei af hinu góða.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Notaðu daginn og njóttu þess
að vera í góðum félagsskap. Hafðu þitt á
hreinu því við þér hreyfir enginn eins og
stendur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ekki sitja ein/n heima í dag.
Skelltu þér út í göngu eða prófaðu gömlu
línuskautana. Þú færð símtal sem mun
færa þig aftur um mörg ár í huganum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Slepptu ekki tækifæri til að njóta
samvista við vini þína og vandamenn. Ekki
gera veður út af hlutunum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú getur ekki neitað að axla þinn
hluta ábyrgðarinnar þegar þú hefur stofnað
til samstarfs með öðrum.
60 ára Guðjón er
Reykvíkingur, ólst upp
á Bergstaðastræti og
í Breiðholti en býr í
Vesturbænum. Hann
er stúdent frá Fjöl-
brautaskólanum í
Breiðholti og lærði
bókmenntafræði við Háskóla Íslands.
Guðjón er blaðamaður hjá Fiskifrétt-
um.
Börn: Sonja Huld, f. 1987, Eva Sigrún,
f. 1990, Ari Ásgeir, f. 1997, og Alex-
ander Friðsteinn, f. 2014. Barnabörnin
eru orðin tvö.
Foreldrar: Guðmundur Guðjónsson, f.
1933, d. 2008, múrari, og Ástríður
Friðsteinsdóttir, f. 1933, d. 2016, vann
lengst við umönnunarstörf.
Guðjón
Guðmundsson
þess frá 2018. „Ég gaf safninu öll
tækin úr prentsmiðjunni minni en
við erum allir ellilífeyrisþegar sem
erum í stjórninni og höfum unnið
geipilega mikið að undirbúningi
þess. Meiningin er að hafa opið á
laugardögum og við ætlum að þreifa
okkur áfram með þetta,“ en safnið
var ég upphafsmaður að bókaflokkn-
um Forn frægðarsetur.“ Þá hóf
Heimir útgáfu bæjarmálablaðsins
Kópavogstíðinda 1980 og gaf það út
vikulega í fjögur ár.
Heimir er einn af stofnendum
bóka- og prentminjasafnsins Prent-
söguseturs og hefur verið formaður
H
eimir Brynjúlfur
Jóhannsson er fædd-
ur 1. maí 1930 á
Grenivík. Hann ólst
þar upp til 6 ára ald-
urs en fluttist þá með fjölskyldu
sinni til Ólafsfjarðar þar sem faðir
hans var héraðslæknir í 35 ár.
„Pabbi rak spítalann í Ólafsfirði. Við
bjuggum á efri hæðinni og spítalinn
var á neðri hæðinni. Ég ólst því upp
á spítala og stalst stundum niður til
sjúklinganna.“
Heimir gekk í barnaskólann í
Ólafsfirði og fyrsta bekk í gagn-
fræðaskólanum þar og fór svo í
Reykholtsskóla í Borgarfirði. Hann
fluttist til Reykjavíkur 1946 og hóf
þar nám í prentverki hjá föður-
bróður sínum, Guðmundi Kristjáns-
syni.
Eftir námið starfaði Heimir hjá
Rún í eitt ár og í Félagsprentsmiðj-
unni til 1956 en stofnaði þá ásamt
öðrum Stórholtsprent og starfaði
þar á árunum 1956-1960 og hjá
Prentsmiðjunni Ásrún frá 1960-
1964. Hann keypti Bókamiðstöðina
árið 1960 og hefur rekið hana til
dagsins í dag. Hann gefur ennþá út
bækur og tímarit.
Heimir Brynjúlfur var formaður
Byggingafélagsins í Miðdal 1962-
1968. „Ég byggði sumarbústað í
landi prentara í Miðdal 1956 og er
búinn að vera þar alltaf á sumrin.
Svo á ég annan bústað í Ólafsfirði
eftir föður minn og þar hef ég líka
verið á sumrin.“ Hann var formaður
starfsmannafélags Félagsprent-
smiðjunnar 1954-1956.
Heimir hlaut heiðursmerki Lions
– Presidents Appreciation Award
1980. Hann var heiðraður árið 1992
vegna starfa að líknar- og mann-
úðarmálum á vegum Lionsklúbbsins
Fjölnis og hlaut viðurkenninguna
Melvin Jones Fellow For Dedicated
Humanitarian Services, Lion Clubs
International Foundation.
Heimir hefur gefið út fjölda tíma-
rita, bæklinga og bóka allt frá 1948
til dagsins í dag. „Það er svo margt
sem ég get talað um,“ segir Heimir,
spurður út í útgáfusöguna. „Ég var
alltaf mikið í Vesturfarasögunni og
lét endurprenta Framfara sem var
fyrsta vikurit Vestur-Íslendinga. Svo
er sem stendur á bak við verslunina
Brynju á Laugaveginum þar sem
Bókamiðstöðin er einnig til húsa.
Heimir er forstöðumaður þess.
Fjölskylda
Heimir kvæntist 2. júní 1952
Friðrikku Baldvinsdóttur, f. 25.3.
Heimir Brynjúlfur Jóhannsson, útgefandi og fyrrverandi prentsmiðjustjóri – 90 ára
Systkini og makar Heimir ásamt konu sinni, systkinum og mökum þeirra við útför föður Heimis árið 1974.
Forstöðumaður Prentsögusafns
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Afmælisbarnið Heimir þegar hann var þriggja ára og nýleg mynd af
honum þar sem hann er staddur á Prentsögusafni.
Hjónin Friðrikka og Heimir á góðri
stund í Karíbahafinu.
Sjötug er í dag, 1. maí, Helga
Ragnarsdóttir. Helga hefur starfað
sem fjármálastjóri með eiginmanni
sínum Reyni Ólafssyni í rekstri Raf-
verkstæðis R.Ó. og síðar Nesraf ehf. í
um 40 ár. Helga ætlar að eyða afmæl-
isdegi sínum í faðmi fjölskyldu sinnar
sem telur tvö börn og sex barnabörn.
Árnað heilla
70 ára
50 ára Þorbergur
ólst upp á Húsavík
en býr í Reykjavík.
Hann er raf-
eindavirkjameistari
að mennt frá Iðnskól-
anum í Reykjavík og
vinnur hjá hátækni-
fyrirtækinu R1.
Maki: Ástrós Bryndís Björnsdóttir, f.
1976, ritari á Landspítalanum.
Dætur: Guðrún Margrét, f. 1999, Stef-
anía, f. 2002, Þorbjörg, f. 2007, og
Bryndís, f. 2012.
Foreldrar: Einar Þorbergsson, f. 1950,
d. 2014, kennari, og Stefanía Ósk Ás-
geirsdóttir, f. 1948, húsmóðir. Hún er
búsett á Seltjarnarnesi.
Þorbergur Ásgeir
Einarsson
Til hamingju með daginn
... stærsti uppskriftarvefur landsins!