Morgunblaðið - 01.05.2020, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2020
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„OG HVERT ÞYKIST ÞÚ VERA AÐ FARA?”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera tekið
fagnandi.
„KÆRA SPURÐU HUNDINN,
HVAÐA DRYKKUR ER BESTUR
MEÐ HUNDAMATNUM?”
VOFF! VOFF! VOFF!
VOFF! VOFF! VOFF!
Í ALVÖRU?
SKÁL AF KÖLDU
KLÓSETTVATNI?
PABBI, ÉG ÞARF AÐSTOÐ VIÐ HEIMANÁMIÐ …
HVERSU MIKIÐ VEISTU UM SÖGULEGA ATBURÐI
FYRRI ALDA?
HANN VEIT NÓGU MIKIÐ TIL ÞESS AÐ ENDURTAKA
ÞÁ EKKI!
„ÖLLUM AÐGERÐUM FYLGIR ÁHÆTTA. SJÁÐU
BARA ÍGOR. ÉG KLÚÐRAÐI ALGERLEGA
BOSSASTÆKKUNINNI HJÁ HONUM.”
Hjálmar Jónsson skrifar í Leir-inn: „Verð að birta hér
hnyttni og húmor vinar míns, Karls
Kristensens“:
Ég kemst ekki út að keyra,
hvað þá nú heldur meira.
Ég kúldrast hér inni
með konunni minni.
Hún er voðaleg þessi veira.
Þórarinn Eldjárn yrkir:
Að hundsa svona hæstvirtan
háæruþróaðan nútímann
og demba ’honum í kófið kalt
það kórónar allt.
Því spyr ég, vonda veira,
var það nokkuð fleira?
Ingólfur Ómar skrapp á þriðju-
dag upp að Esjumelum eftir vinnu
og naut þess að láta sólina skína á
sig þar sem hann sat í brekkunni og
horfði yfir Kollafjörðinn:
Blómstur grær um hlíð og hjalla
hvíslar blærinn þíðum óði.
Birtu slær á brúnir fjalla
blikar sær í geislaflóði.
Og í fyrradag skrifaði Pétur
Stefánsson: „Sólin skín glatt þenn-
an daginn í dýrðlegri vorblíðu.
Fuglarnir syngja og blómin taka
við sér“:
Sólarljóminn signir grund
í sælli rjómablíðu.
Fuglar óma, létt er lund,
lifna blómin fríðu.
Á föstudag skrifaði Ólafur Stef-
ánsson í Leirinn ljóðið „Óáran“:
Út í vorið ætla að ganga,
efla hugarfrið.
Þó að viðsjál veira herji,
veiti engin grið.
Vítt um heiminn vígi falla,
varnar háð er stríð.
Landamæri lokast sjáum,
leið er þessi tíð.
Flugi gleymum, gleði dvínar,
gengur svo um stund.
Hljóð er raust í hita dagsins,
halda má ei fund.
Sem í fjötra færð sé þjóðin,
finnur engan takt.
Allt sem gert er Grýla tekur,
gengur lífið skakkt.
Verður betra, víst er haustar,
veiran deyr þá út.
Getum aftur glaðst þá saman,
gleymist vol og sút.
Þjóð af slíkum þrautum lærir,
að þrauka súrt og rammt.
En fram í kreppu napra nagar
nauman hungurskammt.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Viðsjál veira og
sól skín á hjalla
1931, en hún hefur starfrækt fyrir-
tækið ásamt manni sínum alla tíð.
Þau eru búsett í Kópavogi. For-
eldrar Friðrikku voru hjónin Bald-
vin Ágústsson, sjómaður á Hofsósi,
og Jóna Geirmundsdóttir húsmóðir.
Börn Heimis Brynjúlfs og Frið-
rikku eru 1) Inga Jóna, f. 28.3. 1950,
fyrrverandi blómakaupmaður, bú-
sett í Hveragerði, gift Ársæli B. Ell-
ertssyni prentara og eiga þau fjögur
börn; 2) Baldvin Gunnlaugur, f.
22.12. 1951, prentari, búsettur í
Reykjavík, var kvæntur Þórlaugu
Guðmundsdóttur, sem er látin, og
eiga þau fjögur börn; 3) Guð-
mundur, f. 7.2. 1954, heildsali, bú-
settur í Reykjavík, hann á eina dótt-
ur; 4) Hafdís Harpa, f. 6.12. 1955,
húsmóðir í Þýskalandi, gift Friðriki
Berndsen umboðsmanni. Hún á tvo
syni með Samúel Grétari Hreins-
syni sem er látinn; 5) Brynjúlfur, f.
22.4. 1960, atvinnurekandi í Svíþjóð,
kvæntur Rósu Magnúsdóttur hús-
móður. Hann á fjögur börn. Barna-
börnin eru orðin 15, barnabarna-
börn eru 25 og barnabarna-
barnabörn 4.
Systkini Heimis Brynjúlfs: Har-
aldur Kristófer, f. 16.1. 1921, d. 6.9.
2004, sölustjóri í Reykjavík; Guð-
mundur Kristján, f. 29.6. 1922, d.
27.11. 2008, forstjóri á Akureyri;
Hannes, f. 21.4. 1926, d. 4.4. 1931;
Birgir Jóhann, 27.3. 1929, d. 10.7.
2014, tannlæknir í Reykjavík; Hann-
es, f. 21.9. 1932, d. 27.6. 2007, málari
í Reykjavík; Sigríður Hafdís, f. 16.6.
1936, kennari, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Heimis Brynjúlfs voru
hjónin Jóhann J. Kristjánsson, f.
7.6. 1898, d. 3.10. 1974, héraðslæknir
á Grenivík og í Ólafsfirði, og Inga
Guðmundsdóttir, f. 30.3. 1896, d.
22.10. 1970, húsfreyja.
Heimir Brynjúlfur
Jóhannsson
Guðrún Magnúsdóttir
húsfreyja á Hofi og Eskifirði
Runólfur Þorsteinsson
bóndi á Hofi í Norðfirði
Elín Björg Runólfsdóttir
ljósmóðir í Khöfn, Rvík og á Eskifirði
Guðmundur Pétursson
nuddlæknir í Kaupmannahöfn,
Reykjavík og á Eskifirði
Inga Guðmundsdóttir
húsmóðir á Grenivík og í Ólafsfirði
Jóhanna Einarsdóttir
húsfreyja í Hlíðarhúsum
Pétur Jónasson
landfógetaskrifari í Hlíðarhúsum í Reykjavík
Ólafur Ketilsson
rútubílstjóri og sérleyfishafi
Guðmundur Kristjánsson
prentsmiðjueigandi í Reykjavík
Kristín Hafliðadóttir húsfreyja
á Álfsstöðum á Skeiðum
Sigurliði Kristjánsson
annar eigenda Silla og Valda
Sigríður Brynjúlfsdóttir
húsfreyja á Birnustöðum
Hafliði Jónsson
bóndi á Birnustöðum á Skeiðum
Sigríður Hafliðadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Kristján Þórarinn Einarsson
sjómaður og trésmiður í Reykjavík
Vigdís Diðriksdóttir
húsfreyja á Eiríksbakka
Einar Gunnarsson
bóndi á Eiríksbakka
í Biskupstungum
Úr frændgarði Heimis Brynjúlfs Jóhannssonar
Jóhann J. Kristjánsson
héraðslæknir á Grenivík og í Ólafsfirði
Hringdu í síma 580 7000 eða farðu áwww.heimavorn.is
HVARSEMÞÚERT
SAMSTARFSAÐILI
Öryggiskerfi
15:04 100%