Morgunblaðið - 01.05.2020, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2020
1. maí 1980
Morgunblaðið greinir frá út-
hlutun viðurkenninga til
íþróttafólks fyr-
ir frammistöðu
á liðnum vetri
sem fram fer í
veitingahúsinu
Hollywood. Árni
Indriðason úr
Víkingi og Guð-
ríður Guðjónsdóttir úr Fram
eru valin besta handknatt-
leiksfólk tímabilsins og Krist-
ján Arason úr FH heiðraður
sem markahæsti leikmað-
urinn. Jón Sigurðsson úr KR
er besti körfuboltamaðurinn
og Kristinn Jörundsson úr ÍR
sá stigahæsti. Steinunn Sæ-
mundsdóttir er skíðamaður
ársins, Oddur Sigurðsson
frjálsíþróttamaður ársins og
Hugi Harðarson sundmaður
ársins.
1. maí 1982
Íslenska karlalandsliðið í
körfuknattleik sigrar Íra,
74:68, í C-keppni Evr-
ópumótsins í körfuknattleik, í
framlengdum leik í Edinborg.
Jón Sigurðsson jafnar á síð-
ustu sekúndu og Ísland
tryggir sér sigurinn í fram-
lengingunni. Torfi Magnússon
skorar 21 stig fyrir íslenska
liðið og Símon Ólafsson 16.
1. maí 1988
Handknattleiksmaðurinn
Kristján Arason er þýskur
meistari með
Gummersbach
sem gerir jafn-
tefli við Dort-
mund, 18:18, á
útivelli í
lokaumferðinni
og tryggir sér
með því titilinn.
Kristján
gerir fimm mörk í leiknum
og þar af síðasta mark liðsins
úr vítakasti undir lokin.
1. maí 1990
Eyjólfur Sverrisson skorar sitt
fyrsta mark í þýsku knatt-
spyrnunni, ný-
kominn inn á
sem varamað-
ur, þegar Stutt-
gart sigrar
Nürnberg, 4:0.
Markið skorar
hann með
skalla eftir hornspyrnu Ás-
geirs Sigurvinssonar. „Send-
ingin frá Ásgeiri kom á nær-
stöngina. Ég skaust fram
fyrir markvörðinn Köpke og
skallaði knöttinn í mark-
hornið,“ segir Eyjólfur við
Morgunblaðið.
1. maí 1991
Ísland sigrar Danmörku,
85:77, í fyrsta leiknum í und-
ankeppni Evrópumóts karla í
körfubolta í Laugardalshöll-
inni. Teitur Örlygsson skorar
19 stig fyrir íslenska liðið og
Pétur Guðmundsson 13.
1. maí 2005
Ólafur Stefánsson og félagar
í Ciudad Real sigra Barce-
lona naumlega, 28:27, á
heimavelli í fyrri úrslitaleik
spænsku liðanna í Meist-
aradeild Evrópu í handknatt-
leik. Ólafur skorar þrjú mörk
í leiknum.
Í þessum dálki í gær féll
niður hluti af setningu þar
sem fram átti að koma að
Guðjón Valur Sigurðsson
hefði skorað fjögur mörk fyr-
ir Essen í fyrri úrslitaleik
EHF-bikarsins gegn Magde-
burg árið 2005.
Á ÞESSUM DEGI
FJÖLNIR/FYLKIR
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Handknattleiksdeildir Fjölnis í
Grafarvogi og Fylkis í Árbæ til-
kynntu í vikunni að félögin myndu
sameina krafta sína og senda sam-
eiginlegt lið til leiks í meistara-
flokki kvenna, sem leikur í 1. deild,
frá og með næstu leiktíð. Skrifuðu
félögin undir samning sem gildir
næstu þrjú tímabilin.
Frá og með næsta tímabili mun
lið félaganna bera nafnið Fjölnir/
Fylkir. Morgunblaðið ræddi við
Davíð Arnar Einarsson, formann
handknattleiksdeildar Fjölnis, um
sameininguna.
„Við teljum að bæði þessi félög
séu í kjöraðstöðu til að nýta styrki
hvort annars til þess að verða
betri. Við erum með margar ungar
og flottar stelpur, bæði í yngri
flokkum og meistaraflokkum. Við
teljum að saman getum við orðið
sterkari fram á veginn. Ungu stelp-
urnar sem spila fyrir Fylki og
Fjölni geta nýtt það sem sam-
starfið býður upp á til að styrkja
sig og verða betri leikmenn,“ sagði
Davíð Arnar.
Gísli og Gunnar þjálfa
Þeir Gísli Steinar Jónsson og
Gunnar Valur Arason munu þjálfa
meistaraflokk og einnig 3. flokk
kvenna hjá Fjölni/Fylki. Gísli, sem
er frá Vestmannaeyjum, hefur und-
anfarin tvö ár þjálfað yngri flokka
kvenna hjá Fjölni og þá þjálfaði
hann yngri flokka hjá Fet IL í
Noregi í sex ár. Gunnar Valur er
uppalinn ÍR-ingur og lék m.a. með
liðinu í meistaraflokki og þá lék
hann einnig með Víkingi, Fylki og
Gróttu. Hann hefur þjálfað hjá ÍR
frá árinu 2014 og var hann tíma-
bundið í starfi aðalþjálfara meist-
araflokks kvenna árið 2015.
Liðið mun væntanlega spila
heimaleiki sína til skiptis í Dal-
húsum í Grafarvogi og Fylkishöll-
inni í Árbænum. Þá er Fjölnir
einnig með góða aðstöðu í Egils-
höll, sem hægt verður að nýta.
Verður bróðurlega skipt
„Það mun ráðast í sameiningu
hvar við spilum og æfum. Sú hug-
mynd er uppi að það verði leikið á
heimavöllum beggja félaga og að
skipta því bróðurlega á milli. Við
hjá Fjölni erum með flotta aðstöðu
í Dalhúsum og svo líka í Egilshöll-
inni sem við getum vonandi nýtt
okkur. Fylkishöllin er líka góður
staður til að vera á, svo við munum
nýta báða staði til að spila.“
Samstarf félaganna er ekki alveg
nýtt af nálinni því yngri flokkar
þeirra hafa áður unnið saman. Dav-
íð segir það ekki endilega tákna
neitt að Fjölnir sé á undan í nafn-
inu, Fjölnir/Fylkir. „Við höfum ver-
ið í samstarfi í yngri flokkum í ein-
hvern tíma hjá báðum kynjum.
Samstarfið hefur gengið mjög vel
og þetta hefur alltaf verið Fjölnir/
Fylkir og það er ekkert sérstakt á
bak við það, það er bara nafn sem
við ákváðum,“ sagði Davíð.
Stefnt á úrvalsdeildina
Hann segir að liðið ætli sér stóra
hluti á næstu leiktíð og er stefnan
sett á efstu deild, enda tvö stór fé-
lög að sameina krafta sína. „Það er
stefnan. Markmiðið er að vinna og
það er m.a. ástæðan fyrir því að við
erum að fara í samstarf. Við viljum
gefa okkar leikmönnum tækifæri á
að vera í alvöruumgjörð og alvöru-
liði sem getur keppt um það að
fara upp og festa okkur í sessi í
efstu deild,“ sagði hann.
Liðið verður fyrst og fremst
skipað leikmönnum sem eru upp-
aldir hjá félögunum, þótt ekki sé
útilokað að það verði styrkt með
utanaðkomandi leikmönnum. „Við
ætlum að gera þetta mikið til bara
með leikmönnum frá Fylki og
Fjölni, en svo gæti verið að við
þyrftum að styrkja okkur á ein-
hverjum stöðum en uppleggið er að
gera þetta á uppöldum leik-
mönnum.“
Vilja fara í bestu liðin
Gengi liðanna í 1. deildinni í vet-
ur olli vonbrigðum þar sem Fjölnir
var í níunda sæti með fjórtán stig
og Fylkir í því ellefta með sex stig
þegar tímabilið var blásið af vegna
kórónuveirunnar. Ungmennalið
Fram, Vals, ÍBV og Stjörnunnar
voru t.a.m. öll fyrir ofan, en það
eru nokkurs konar varalið skipuð
ungum leikmönnum. Davíð við-
urkennir að það hafi reynst erfitt
að byggja upp lið, þar sem leik-
menn söðli gjarnan um og gangi í
raðir bestu liða landsins.
„Það hefur verið erfitt und-
anfarin ár. Eins og sakir standa
eru átta lið í efstu deild og svo sjö
aðallið í 1. deild, en svo hefur verið
fyllt upp í hana með ungmennalið-
um. Það er erfitt fyrir félög eins og
Fjölni og Fylki, sem hafa byggt
upp á sínu eigin fólki, að halda sín-
um bestu leikmönnum. Með þessu
vonum við að það muni breytast og
við verðum með mjög samkeppn-
ishæft lið næsta vetur. Við höfum
verið að missa meistaraflokks-
leikmenn sem síðan spila í ung-
mennaliðum annarra félaga, sem er
leiðinlegt. Ég held að það sé rétt að
hafa átta lið í efstu deild, en svo
má spá hversu mörg lið eiga að
vera í 1. deildinni á móti og hversu
mörg ungmennalið. Það er ekki
endilega jákvæð þróun að hafa
svona mörg ungmennalið,“ sagði
Davíð. Fjölnir lék síðast í efstu
deild tímabilið 2017/18 og Fylkir
tímabilið á undan.
Styrkir bæði handboltann og
fjárhag félaganna
Davíð segir að ákvörðunin um
sameiningu sé fyrst og fremst tekin
með handboltann í huga, en auðvit-
að muni hún einnig hjálpa fjárhag
handknattleiksdeilda beggja félaga.
„Við getum sameinað krafta
tveggja meistaraflokka og að sjálf-
sögðu hjálpar það til að vera með
fleiri á bak við liðið, bæði sjálf-
boðaliða og styrktaraðila. Þetta er
sterkt utan frá og innan frá. Þetta
hjálpar frá a til ö,“ sagði Davíð við
Morgunblaðið.
Með þessari sameiningu verða
væntanlega sex meistaraflokkslið í
1. deild á næsta keppnistímabili,
miðað við að ekki verði aðrar
breytingar. FH fór upp í úrvals-
deild en Afturelding féll og verður
þá í 1. deild eins og Selfoss, Grótta,
ÍR, Fjölnir/Fylkir og Víkingur.
Fimm ungmennalið voru í deildinni
í vetur og þeim gæti því mögulega
fjölgað í sex þannig að tólf lið
myndu áfram skipa 1. deildina.
Stór félög
að sameina
kraftana
Fjölnir og Fylkir ætla að byggja upp
saman öflugan meistaraflokk kvenna
Morgunblaðið/Golli
Úrvalsdeild Fjölniskonur léku í úrvalsdeildinni fyrir tveimur árum og Fylk-
iskonur fyrir þremur árum. Sameiginlegt lið félaganna stefnir þangað.
Stórliðin Paris Saint-Germain og
Lyon hafa verið krýnd Frakklands-
meistarar í fótbolta. Frönsk stjórn-
völd ákváðu á þriðjudaginn að öll
íþróttakeppni í landinu myndi
liggja niðri til 1. september vegna
útbreiðslu kórónuveirunnar og í
kjölfarið á því batt franska knatt-
spyrnusambandið enda á keppnis-
tímabilið 2019-20. Titillinn er sá
sjöundi á átta árum hjá PSG í karla-
flokki og sá fjórtándi í röð hjá Lyon
í kvennaflokki. Hefur landsliðsfyr-
irliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir
verið orðuð við Lyon síðustu vikur.
Meistarar krýndir
í Frakklandi
AFP
Meistarar PSG er Frakklands-
meistari karla í knattspyrnu 2020.
Íþrótta- og Ólympíusambandi Ís-
lands verður falið að úthluta 450
milljóna króna stuðningi ríkisins til
íþróttahreyfingarinnar. Stuðning-
urinn byggist á þingsályktun um
fjárfestingarátak stjórnvalda til að
vinna gegn samdrætti í hagkerfinu
í kjölfar heimsfaraldursins, sem
samþykkt var á Alþingi 30. mars sl.
Mun það koma í ljós fljótlega hvern-
ig peningunum verði dreift til sér-
sambanda íþróttahreyfingarinnar
hér á landi, en ekki er útilokað að
hreyfingin fái frekari stuðning á
næstunni.
Falið að úthluta
450 milljónum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hlaup Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir
er ein fremsta íþróttakona landsins.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
ÍR mun halda áfram keppni í 1. deild kvenna í
handknattleik en í gær tilkynnti félagið að hætt
hefði verið við að leggja niður meistaraflokk
kvenna eins og áður hafði verið boðað.
ÍR-ingar skýrðu frá því í lok mars að félagið
myndi að óbreyttu hvorki tefla fram meistara-
flokki kvenna né ungmennaliði karla á næsta tíma-
bili, nema til kæmu auknar tekjur. Þær væru hins
vegar ekki fyrirsjáanlegar. Leikmönnum kvenna-
liðsins var tilkynnt þetta með bréfi frá stjórn hand-
knattleiksdeildarinnar. ÍR skýrði þá frá því að
vegna breytinga í efnahagslífinu neyddist félagið til
að draga saman kostnað, endurskipuleggja og
koma jafnvægi á rekstur deildarinnar.
Umtalsverð viðbrögð urðu við þessari ákvörðun
ÍR-inga og það hefur nú, mánuði síðar, skilað sér í
þeirri ákvörðun að kvennaliðið haldi áfram keppni
og spili áfram í 1. deildinni næsta vetur.
Finnbogi Grétar Sigurbjörnsson hefur verið ráð-
inn þjálfari liðsins en hann tekur við af Kristni
Björgúlfssyni sem hefur verið ráðinn þjálfari
karlaliðs félagsins, þar sem hann tekur við af
Bjarna Fritzsyni.
Finnbogi Grétar þekkir vel til hjá ÍR eftir að
hafa þjálfað lengi hjá félaginu, m.a. bæði karla- og
kvennaliðið. Hann var jafnframt aðstoðarþjálfari
kvennalandsliðs Íslands um skeið og hefur þjálfað
hjá HK, Selfossi og Fylki.
ÍR var í sjötta sæti af tólf liðum í 1. deild kvenna
þegar keppni var hætt 13. mars.
Kvennalið ÍR-inga heldur áfram keppni