Morgunblaðið - 01.05.2020, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2020
Útlit er fyrir að kylfingarnir Tiger
Woods og Phil Mickelson muni aftur
takast á í keppni til styrktar góðu mál-
efni og er fyrirhugað að keppnin verði í
maí. Í þetta skipti verða tvær frægar
kempur úr ameríska fótboltanum með
þeim. Ef af verður munu Tiger Woods
og Peyton Manning keppa gegn Phil
Mickelson og Tom Brady en frá þess-
um fyrirætlunum var skýrt um síðustu
mánaðamót. Ekki hefur ennþá verið
staðfest að viðburðurinn fari fram en
samkvæmt ýmsum golffjölmiðlum er
gert ráð fyrir því í maí. Tekjurnar munu
að þessu sinni renna til þeirra sem
berjast við kórónuveiruna.
Gunnlaugur Smárason mun ekki
stýra kvennaliði Snæfells í körfubolta
áfram en hann tók við liðinu fyrir tíma-
bilið. Gunnlaugur, sem lék lengi með
Snæfelli, var með liðið í sjötta sæti
Dominos-deildarinnar þegar tímabilið
var blásið af. Var hann aðalþjálfari
meistaraflokks í fyrsta skipti á síðustu
leiktíð og vann Snæfell átta leiki en
tapaði sextán.
Fredrik Larsson, fyrrverandi lands-
liðsmaður Svía í handknattleik, lést í
umferðarslysi á þriðjudaginn, aðeins
36 ára að aldri. Larsson var á ferðinni
á reiðhjóli þegar vörubíll ók á hann
með þeim afleiðingum að hann lést.
Hann lætur eftir sig sambýliskonu og
tvær dætur. Larsson lék 36 landsleiki
fyrir Svía og lék með þeim bæði á EM
2010 og HM 2011. Hann spilaði með
sænsku liðunum Skövde, Ystad IF,
Hammarby, Sävehof og Alingsås
snemma á ferlinum en síðan með Ara-
gón á Spáni, Gummersbach í Þýska-
landi og lauk ferlinum með Alingsås á
árunum 2014 til 2016 þegar hann
lagði skóna á hilluna vegna meiðsla.
Spænski körfuknattleiksmaðurinn
David Guardia hefur samið við Hatt-
armenn á Egilsstöðum um að leika
áfram með þeim á næsta tímabili en
þá verða þeir nýliðar í úrvalsdeildinni.
Guardia, sem er þrítugur og lék á ár-
um áður með bæði Valencia og Ali-
cante í efstu deild á Spáni, hefur verið
í röðum Hattar undanfarin tvö ár en
missti af stórum hluta tímabilsins
2018-19 eftir að hafa slitið krossband.
Hann kom á ný inn í lið Hattar síðasta
vetur og þá skoraði hann 12,3 stig og
tók 4,5 fráköst að meðaltali í leik
ásamt því að vera með 37% nýtingu í
þriggja stiga skotum. Þá hefur Króat-
inn Matej Karlovic sömuleiðis fram-
lengt samning sinn við félagið. Karlo-
vic skoraði 17,6 stig og tók 3,2 fráköst
að meðaltali í leik í vetur.
Hansi Flick hefur skrifað undir nýj-
an samning sem knattspyrnustjóri
Bayern München og mun stýra liðinu
næstu þrjú árin. Flick var aðstoðar-
þjálfari liðsins þegar Nico Kovac var í
brúnni hjá félaginu og var ráðinn í
hans stað þegar Kovac hætti störfum í
nóvember. Þá var hann ráðinn til loka
yfirstandandi tímabils.
Bayern hefur gengið
vel undir stjórn Flick
og unnið átján leiki af
21 frá því hann
tók við. Bayern
komst á topp
1. deildarinnar
eftir dálítið
basl framan af
tímabilinu og er
með fjögurra
stiga forskot
þegar níu
umferðum er
ólokið.
Eitt
ogannað
HLÍÐARENDI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Pétur Pétursson, þjálfari Íslands-
meistara Vals í knattspyrnu
kvenna, vonast til að endurfanga
stemninguna sem danska karla-
landsliðið bauð upp á sumarið 1992
þegar liðið varð Evrópumeistari í
fyrsta og eina sinn eftir 2:0-sigur
gegn Þjóðverjum í úrslitaleik á Ul-
levi-vellinum í Gautaborg í Svíþjóð.
Gríðarleg leikgleði einkenndi
danska liðið á EM 1992, þegar það
kom óvænt inn í lokakeppina á síð-
ustu stundu, og segir Pétur að
markmið sumarsins sé fyrst og
fremst að hafa gaman af því að spila
fótbolta eftir erfiðar undanfarnar
vikur vegna kórónuveirufaraldurs-
ins.
Valskonur, sem eiga titil að verja
á Íslandsmótinu, geta byrjað að æfa
á nýjan leik hinn 4. maí næstkom-
andi, sjö leikmenn í einu, en ekki
fjórir eins og var upphaflega gert
ráð fyrir þegar tilslakanir á núver-
andi samkomubanni voru fyrst í
umræðunni.
„Við erum byrjaðir að undirbúa
næstu vikur og hvernig við viljum
hafa hlutina,“ sagði Pétur í samtali
við Morgunblaðið. „Að endingu er
það samt alltaf þannig, eins og stað-
an er í það minnsta, að við megum
ekki ennþá spila og æfingarnar
verða þess vegna alltaf öðruvísi en
þessi hefðbundna fótboltaæfing.
Að sama skapi get ég alveg viður-
kennt að það hentar okkur mun bet-
ur að geta æft saman sjö og sjö,
frekar en fjórar saman í hóp, og það
er mjög jákvætt. Ég held að það
geti allir verið sammála um að það
er leiðinlegt að æfa einn til lengdar
og það verður því gott fyrir stelp-
urnar og liðið að hittast enda erfitt
að skapa góða liðsheild þegar liðið
hittist aldrei.“
Stórkostlegur styrktarþjálfari
Pétur viðurkennir að það hafi
verið skrítið að fjarþjálfa liðið en
ítrekar að Jóhann Emil Elíasson,
styrktarþjálfari Valsmanna, hafi
unnið kraftaverk undanfarnar vik-
ur.
„Við hjá Val erum mjög heppin
því við erum með einstaklega góðan
mann í Jóhanni Emil styrktarþjálf-
ara. Öll þjálfun liðsins hefur meira
og minna legið hjá honum undan-
farnar vikur og hann hefur sinnt
stórkostlegu starfi fyrir félagið á
þessum erfiðu tímum.
Við höfum lítið gert, hinir þjálf-
ararnir, enda lítið sem hægt er að
gera kannski. Við í þjálfarateyminu
höfum svo bara fylgst vel með öllum
tölum sem stelpurnar hafa skilað
inn í gegnum Playertek-æfingavest-
in. Það er gott að geta nýtt sér
tæknina almennilega og við sjáum
það svart á hvítu hvað þarf að laga
og hvar þarf að bæta í.“
Einn dag í einu
Valskonur áttu að hefja leik í úr-
valsdeildinni, Pepsi Max-deildinni,
30. apríl síðastliðinn gegn KR á
Hlíðarenda. Upphafsleiknum var
hins vegar frestað vegna kórónu-
veirunnar en KSÍ greindi frá því í
síðustu viku að til stæði að hefja
leik í úrvalsdeildinni 16. júní næst-
komandi og þá væntanlega með leik
Vals og KR.
„Já, 16. júní er dagsetning sem
við erum með á bak við eyrað en
það getur margt breyst. Þangað til
því verður slegið föstu að tímabilið
hefjist 16. júní munum við bara taka
einn dag fyrir í einu.
Þegar nær dregur sumri og júní
megum við alveg eiga von á því að
fá staðfestar dagsetningar og þá
breytist hugurinn kannski meira.
Núna er þetta allt frekar óljóst og
við erum því ekki að stressa okkur á
þessu þangað til þar að kemur.“
Mikilvægt að njóta
Pétur ítrekar að markmið sum-
arsins sé að hafa gaman eftir erf-
iðar síðustu vikur. Þá segir þjálf-
arinn óvíst hvort liðið muni styrkja
sig áður en mótið hefst en rekstur
félaganna í landinu hefur verið afar
erfiður vegna heimsfaraldursins.
„Eins og staðan er núna höfum
við ekkert skoðað það að bæta við
leikmannahópinn. Ég er ánægður
með hópinn eins og staðan er í dag
en það er ennþá eitthvað í að mótið
hefjist og hlutirnir geta verið fljótir
að breytast í fótboltanum.
Síðustu vikur hafa ekki verið
skemmtilegasti tími sem maður hef-
ur upplifað. Að sama skapi hefur
hann sýnt manni hvað maður á í fót-
boltanum. Maður fattar hversu mik-
ilvægur fótboltinn er í lífi manns og
hvað þetta skiptir miklu máli, bæði
fyrir krakka og fullorðið fólk.
Þess vegna langar mig bara að
taka þetta sumar eins Danirnir
gerðu ’92 þegar þeir fóru beint á
ströndina, urðu Evrópumeistarar
og nutu þess í botn. Ég vil bara
njóta þess að vera kominn aftur á
völlinn en að sjálfsögðu viljum við
árangur líka og það er alltaf á bak
við eyrað,“ sagði Pétur Pétursson í
samtali við Morgunblaðið.
Með Dani sem fyrirmynd
Pétur Pétursson horfir til leikgleði Dana 1992 þegar hann undirbýr
Íslandsmeistara Valskvenna fyrir óvenjulegt Íslandsmót á komandi sumri
Morgunblaðið/Hari
Meistarafögnuður Valskonur tolleruðu þjálfarann Pétur Pétursson eftir að þær tryggðu sér Íslandsmeistaratit-
ilinn síðasta haust. Það var fyrsti meistaratitill þeirra í níu ár og nú stefna þær að titilvörn í sumar.
Joe Anderson, borgarstjóri í Liver-
pool, hvatti í gær til þess að bund-
inn verði strax endi á keppni í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
og óttast stórslys ef leikið verði
áfram. Sagði hann að stuðnings-
menn myndu ekki hlusta á fyr-
irmæli yfirvalda og hópast saman
við Anfield, heimavöll Liverpool, og
fagna þegar liðið verður Englands-
meistari. Félagið var ekki sátt við
ummælin og birti yfirlýsingu á
heimasíðu sinni þar sem kom m.a.
fram að hann hefði lítið í höndunum
til að byggja fullyrðingar sínar á.
Yfirlýsing vegna
borgarstjórans
AFP
Anfield Félagið var ekki sátt við
ummæli borgarstjórans.
Valur og KR hefja keppni í úrvals-
deild karla í fótbolta, Pepsi Max-
deildinni, laugardaginn 13. júní
samkvæmt útvarpsþættinum Fót-
bolti.net, svo framarlega sem gefið
hafi verið grænt ljós af yfirvöldum
um að keppni geti hafist. Þar var
sagt að búið væri að dagsetja leiki
fyrstu umferðar deildarinnar, eng-
ir þeirra fari fram á sama tíma og
allir sýndir beint á Stöð 2 Sport.
Reiknað sé með því að samkomu-
bann verði á þeim tíma miðað við
100 manns. Um viku síðar myndi
úrvalsdeild kvenna fara af stað.
Reykjavíkurslag-
urinn 13. júní?
Morgunblaðið/Hari
Hlíðarendi Valur og KR mætast í
fyrsta leik Íslandsmótsins.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Líkurnar á að haldið verði áfram
með keppnistímabilið 2019-20 í
stærstu fótboltadeildunum í Evr-
ópu virðast fara minnkandi dag frá
degi.
Efstu deildirnar á Spáni, Þýska-
landi, Englandi og Ítalíu eru þó all-
ar áfram með það sem markmið að
freista þess að hefja keppni á ný í
maí eða júní.
Ákvörðun Frakka á þriðjudag
um að blása tímabilið af hefur
greinilega hreyft við mörgum en
áður höfðu Hollendingar tekið
sömu ákvörðun. Í báðum tilvikum
var um að ræða ákvörðun stjórn-
valda um að engin keppni færi fram
til 1. september.
Ensku úrvalsdeildarfélögin koma
saman á fundi í dag þar sem reynt
verður að komast að niðurstöðu um
framhaldið. Þar stendur til að
reyna að hefja keppni í úrvalsdeild-
inni 8. júní og félögin hófu æfingar
með takmörkunum í þessari viku.
Sífellt fleiri draga þó í efa að þetta
séu raunhæf markmið.
Ítalir eru í viðbragðsstöðu en
íþróttamálaráðherra landsins sagði
í gær að ef félögin í A-deildinni
gætu ekki komið sér saman um
raunhæfa áætlun um sóttvarnir í
kringum æfingar og keppni myndi
ríkisstjórnin lýsa því yfir að tíma-
bilinu væri lokið.
Þjóðverjar frestuðu í gær áform-
um sínum um eina viku eftir að
stjórnvöld frestuðu viðræðum. Nú
er miðað við að reyna að hefja
keppni þar í landi 16. maí í stað 9.
maí.
Líkur á áframhaldi virðast fara minnkandi