Morgunblaðið - 01.05.2020, Side 32
Ágúst Ólafsson baritón, Lilja Guðmundsdóttir sópran
og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari flytja sönglög
eftir Tsjækovskíj, Rachmaninoff og Borodin í beinni út-
sendingu úr Salnum í Kópavogi kl. 13 í dag á vef Stund-
arinnar, stundin.is og facebooksíðum Stundarinnar og
Menningarhúsanna í Kópavogi. „Dagskráin er full af
dramatík og tilfinningum enda eru laglínur rússnesku
tónskáldanna þriggja stórbrotnar,“ segir um tónleikana
sem eru hluti af dagskrá sem listamennirnir þrír ætl-
uðu að flytja á Tíbrártónleikum 21. apríl. Tónleikarnir
eru liður í dagskránni Kúltúr klukkan 13 sem Menning-
arhúsin í Kópavogi standa fyrir á mánudögum, mið-
vikudögum og föstudögum.
Full af dramatík og tilfinningum
FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 122. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Við teljum að bæði þessi félög séu í kjöraðstöðu til að
nýta styrki hvort annars til þess að verða betri. Við er-
um með margar ungar og flottar stelpur, bæði í yngri
flokkum og meistaraflokkum. Við teljum að saman get-
um við orðið sterkari fram á veginn. Ungu stelpurnar
sem spila fyrir Fylki og Fjölni geta nýtt það sem sam-
starfið býður upp á til að styrkja sig og verða betri leik-
menn,“ sagði Davíð Arnar Einarsson, formaður hand-
knattleiksdeildar Fjölnis, m.a. í blaðinu í dag. Fjölnir og
Fylkir senda sameiginlegt kvennalið til keppni. »26
Reykjavíkurfélög sameina krafta
sína í handboltanum næsta vetur
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Í samkomubanninu undanfarinn
rúman mánuð hefur Hilmar Haf-
steinsson keyrt út pítsur til við-
skiptavina Rauða ljónsins á Eiðis-
torgi á Seltjarnarnesi, en hann er
einn eigenda staðarins sem og Steik-
hússins við Tryggvagötu í Reykja-
vík, þar sem hann er veitinga- og
rekstrarstjóri. „Þetta hefur verið
skemmtileg tilbreyting, en nú þurf-
um við að gera
allt tilbúið á
Steikhúsinu áð-
ur en við opn-
um þar aftur á
miðvikudag,“
segir hann.
Þegar Hilm-
ar tók við sem
rekstrarstjóri
veitingastaðanna eftir að hafa út-
skrifast fyrst sem viðskiptafræð-
ingur frá Háskóla Íslands 2016 og
síðan sem framleiðslumaður frá
Menntaskólanum í Kópavogi 2018
átti hann ekki von á því að starfið
yrði nánast alfarið fólgið í því að
keyra út pítsur til viðskiptavina í
óákveðinn tíma á líðandi ári. En eng-
inn sá kórónuveirufaraldurinn fyrir,
allt í einu var komið á samkomu-
bann, Steikhúsinu var lokað og
Hilmar og Eyjólfur Gestur Ingólfs-
son yfirmatreiðslumaður fluttu sig
yfir á Rauða ljónið.
Opnar Steikhúsið á ný
Vegna samkomubannsins, sem
byrjaði um miðjan mars, var rólegt á
Rauða ljóninu, engar beinar útsend-
ingar frá enskum fótboltavöllum og
almennt lítið um að vera. „Við urðum
að bregðast við breyttu ástandi í
samfélaginu og þegar gestir okkar
gátu ekki lengur komið í mat til okk-
ar var ekki annað í stöðunni en að
fara með matinn til fólksins,“ segir
Hilmar. „Mér finnst gaman að vinna,
vinn mikið og nenni ekki að vera að-
gerðalaus heima. Þess vegna tók ég
að mér að sendast með matinn milli
klukkan fimm og níu á hverjum degi
og sé ekki eftir því – þetta hefur ver-
ið gaman.“
Rauða ljónið var ekkert nema
nafnið, þegar Hafsteinn Egilsson,
faðir Hilmars, keypti húsnæðið og
opnaði samnefndan stað aftur eftir
bankahrunið 2008. „Fjölskyldan stóð
að þessu saman og við opnuðum 1.
maí 2009,“ segir Hilmar, sem var í
námi í Verslunarskóla Íslands sam-
fara vinnu á staðnum. „Ég hef því
unnið á Rauða ljóninu í 11 ár þó ég
hafi meira verið á Steikhúsinu eftir
að ég útskrifaðist sem viðskipta-
fræðingur.“ Til nánari útskýringar
segist hann hafa mikinn áhuga á mat
og víni í hæsta gæðaflokki og þess
vegna hafi hann farið í framreiðslu-
nám samfara því að vinna á Steik-
húsinu. Þar hafi hann unnið sig upp
og þegar Níels bróðir hans, sem var
rekstrar- og veitingastjóri á Steik-
húsinu, tók við rekstri íbúðahótels
fjölskyldunnar á Tenerife, hafi hann
tekið við keflinu.
Útgöngubann hefur verið á Spáni
undanfarnar vikur, þó aðeins sé far-
ið að slaka á því, en þegar ljóst var
hvert stefndi kom Hafsteinn, sem
hefur verið Níels innanhandar við
reksturinn, heim frá Tenerife og að-
stoðaði Hilmar í útkeyrslunni. „Við
feðgarnir höfum verið á fullu í út-
keyrslunni,“ segir Hilmar um þjón-
ustuna sem lauk í gærkvöldi.
Tíminn hefur liðið hratt og nú ein-
beitir Hilmar sér að Steikhúsinu.
„Eftir á að hyggja var þetta frábær
hugmynd að snúa dæminu við, að
fara með matinn til fólksins,“ segir
hann. „Mér hefur alltaf þótt gaman
að vinna á Ljóninu og þetta var
skemmtileg nýbreytni en núna bíð
ég spenntur eftir því að geta opnað
Steikhúsið aftur.“ Hann segir samt
að reksturinn verði með breyttu
sniði til að byrja með, opið fimm
daga í viku frá klukkan 17-22, en lok-
að á mánudögum og þriðjudögum.
„Við vitum ekki hvað við erum að
fara út í og förum því varlega í sak-
irnar, en vonandi getum við haft opið
alla daga sem fyrst. Við megum hafa
50 manns inni í einu og hlýðum
Víði.“
Ljósmynd/Erling Ó. Aðalsteinsson
Vinna Hilmar Hafsteinsson fór með síðustu matarpantanirnar í gærkvöldi.
Pítsusendill í banninu
Rekstrarstjóri Steikhússins og Rauða ljónsins í nýju starfi