Morgunblaðið - 29.05.2020, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2020
skatturinn@skatturinn.is 442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Álagningar- og innheimtuseðlar
eru nú aðgengilegir á
þjónustuvefnum skattur.is
Álagningu skatta á einstaklinga er lokið
Barnabætur, sérstakur barnabótaauki, vaxtabætur
og inneignir verða greiddar út 29. maí.
Upplýsingar um greiðslustöðu veitir Skatturinn
og sýslumenn utan höfuðborgarsvæðisins.
Kærufresti lýkur 31. ágúst 2020.
Um 1.400 um-
sóknir bárust um
70 störf í Mini-
garðinum, nýjum
afþreyingarstað
við Skútuvog í
Reykjavík sem
opnaður verður í
sumar. „Þetta
eru fleiri um-
sóknir en við lét-
um okkur
nokkru sinni detta í hug að bærust.
Við bjuggumst við þó nokkrum um-
sóknum en engu í þeim mæli sem
raunin er,“ segir Sigurjón Steins-
son framkvæmdastjóri.
Auglýst var eftir fólki í þjónustu-
störf í móttöku, veitingasal, eldhúsi
og við afgreiðslu og rennt algjör-
lega blint í sjóinn um áhuga á störf-
unum. Viðtökurnar voru eins og að
framan greinir. „Við erum spennt
fyrir því að koma með eitthvað nýtt
og spennandi í skemmtanaflóruna
hér á Íslandi,“ segir Sigurjón um
Minigarðinn. Þar verður meðal
annars 18 holu innanhúsgolfvöllur,
veitingastaður og sportbar.
sbs@mbl.is
1.400 sóttu
um 70 störf
Minigarðurinn
opnaður í sumar
Sigurjón
Steinsson
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Loka þurfti íþróttavöruversl-
uninni Sportvörum í þrjár vikur
þegar heimsfaraldur kórónuveiru
stóð sem hæst. Að sögn eiganda
Sportvara, Eyþórs Ragnarssonar,
réð verslunin einfaldlega ekki við
stóraukna eftirspurn einstak-
linga. „Við færðum okkur yfir í
netverslun vegna þess að ágang-
urinn var svo mikill. Á tímabili
vorum við bara með heimsend-
ingar til að tryggja öryggi starfs-
fólks,“ segir Eyþór og bætir við
að verslunin hafi selt gríðarlegt
magn heimatækja meðan á
ástandinu stóð. Áætlar hann að
söluaukning í aprílmánuði hafi
verið um 300% samanborið við
sama mánuð í fyrra. „Þetta var
náttúrulega pínu sturlun í smá
tíma. Við bjuggum ágætlega að
því að hafa verið með góða stöðu
þegar þetta fór af stað. Það er þó
þannig að við hefðum ábyggilega
getað selt þrefalt til fjórfalt
magn vinsælustu varanna,“ segir
Eyþór.
Að sögn Eyþórs eiga seinni
tíma áhrif af völdum veirunnar
eftir að koma fram. Ekki sé ólík-
legt að sala til sveitarfélaga og
líkamsræktarstöðva kunni að
dragast saman. „Við erum mikið í
heildsölu, en það er ljóst að að-
ilar sem keypt hafa af okkur þar
þurfa að skera eitthvað niður.
Líkamsræktarstöðvar þurfa að
vinna upp tap sitt auk þess sem
gera má ráð fyrir að íþróttafélög
og sveitarfélög skeri niður á
þessu sviði. Þetta ástand var því í
raun gott vont,“ segir Eyþór.
300% söluaukning milli ára
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Sportvörur Eftirspurnin var gríðarleg þegar faraldurinn stóð sem hæst.
Loka þurfti Sportvörum um tíma sökum mikils ágangs
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
hafnað kröfu Stórólfshvolssóknar
um ógildingu á úrskurði áfrýjunar-
nefndar Þjóðkirkjunnar vegna
styrkveitinga úr jöfnunarsjóði sókna
til byggingar nýrrar kirkju á Hvols-
velli.
Sóknin fékk styrk úr sjóðnum á
árunum 2009 og 2010 og vilyrði fyrir
10 milljóna króna styrk fyrir árið
2011. Þegar á reyndi dró kirkjan lof-
orðið til baka á þeim forsendum að
sóknin hefði ekki fullnægt settum
skilyrðum.
Síðan hefur málið gengið á milli
úrskurðarnefndar og áfrýjunar-
nefndar og farið tvisvar sinnum fyrir
héraðsdóm. Sóknarnefndin vann
málið á fyrsta stigi, fyrir úrskurðar-
nefndinni, en kröfu hennar hefur
síðan verið hafnað fjórum sinnum af
áfrýjunarnefnd og héraðsdómi.
Kirkjan átti að vera við Suðurlands-
veg, í miðbæ Hvolsvallar.
Afneitað í
fjórða sinn
Vilja nýja kirkju
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Miðja Hin nýja kirkja bæjarins á að
rísa á miðsvæði Hvolsvallar.