Morgunblaðið - 29.05.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.05.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2020 Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé hjarta heimilisins. Innanhússarkítektar og sérfræðingar í heimilistækjum keppast við að hanna hágæða eldhús sem standast tímans tönn, með virkni, gæði og sveigjanleika að leiðarljósi. Eldhúsið er fjárfesting til framtíðar – tryggðu þér raunveruleg gæði á hagstæðu verði. Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það er voðalega dauft yfir öllu. Tregt fiskirí og leiðindaveður að hrjá okkur. Við höfum ekki kynnst svona vetri áður,“ segir Sigurður Ingi Bjarnason, vélsmiður í Gríms- ey. Íbúum hefur fækkað stöðugt í Grímsey enda hefur kvótinn sem sjómennirnir hafa úr að spila minnkað mikið, síðast í haust með sölu útgerðar með 1.100 þorskígilda kvóta til Fjallabyggðar. „Það er ekkert voðalega bjart yfir þessu og ég veit ekki af hverju það ætti að vera það. Þetta byggist á fiskiríi. Ekki er bjart yfir því eins og er, leiðindaveður, lélegt verð og sá fiskur sem fæst er lélegur.“ Heldur er að fjölga á strandveið- um því tveir ungir menn úr Grímsey hafa keypt sér báta og ætla að vera á strandveiðum í sumar. Venjulega færist meira líf í strandveiðarnar í júní þegar aðkomubátar bætast í hópinn. Áfram á byggðakvóta Stór hluti kvótans hefur verið seldur úr Grímsey á síðustu árum. Þó eru eftir tvær útgerðir. Sigurður segir að þeir sem seldu kvótann fái byggðakvóta og geti haldið áfram, í breyttri mynd þó. Sigurður rekur vélsmiðju og seg- ist ekki finna svo mikið fyrir sam- drættinum. „Ég er duglegur að sækja mér verkefni og svo er ég að vasast í mörgu. Þetta er verst fyrir sjómennina sem stunda veiðarnar.“ Um 60 íbúar voru skráðir í Grímsey síðast þegar Hagstofan gaf út tölur um íbúafjölda. Mun færri eru þar þó að vetrinum. Þannig voru aðeins 6-7 í eynni þegar verstu veðr- in gengur yfir í desember. „Það fjölgaði hjá okkur þegar kórónu- veirufaraldurinn gekk yfir. Þá komu unglingarnir heim og fjölskyldur sem venjulega eru á Akureyri á vet- urna komu með börnin hingað. Við vorum öll saman í sóttkví og stund- um gleymdi maður sér þegar fólk kom úr landi því þá ætlaði maður að heilsa því með handabandi,“ segir Karen Nótt Halldórsdóttir, verkefn- isstjóri Brothættra byggða í Gríms- ey. Hún var áður skólastjóri og seg- ir að fólk hafi fundið fyrir því í vetur að þetta var fyrsti veturinn sem skóli var ekki starfræktur í Gríms- ey. Fáir ferðamenn Fáir ferðamenn heimsækja Grímsey þessa dagana og segir Kar- en það mikil viðbrigði. Venjulega hafi verið fullt af fólki á daginn, á milli ferða hjá ferjunni, en núna sé aðeins reytingur. Þá hafi skemmti- ferðaskipin ekki sést, hvað sem síð- ar verði. Þetta komi niður á starf- semi gistiheimilanna og veitinga- staðarins. Spurður um framtíðina segir Sig- urður: „Það fjölgar ekki og ekki hægt að segja að það sé bjart yfir byggðarlögum sem þessu. Maður sér ekki marga og er einmana. En það hefur aldrei dimmt svo mikið að ekki hafi birt upp aftur,“ segir hann. Ekkert voðalega bjart yfir þessu  Tregt fiskirí hef- ur áhrif á allt mannlíf í Grímsey Morgunblaðið/Golli Í höfninni Fátt gleður landann meir en að sjá falleg fley við bryggju nema ef vera skyldi að sjá þau mokfiska en það síðarnefnda er ekki raunin í Grímsey.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.