Morgunblaðið - 29.05.2020, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2020
VINNINGASKRÁ
68 9589 22444 33747 43477 53504 62607 69266
267 9602 22877 33850 43588 53515 63243 69291
466 9720 23064 34430 44633 53863 63500 69707
943 9987 23160 34956 44657 55193 64191 71628
1100 10062 23576 35237 45058 56015 64199 71695
1692 10203 24427 35331 45327 56110 64235 71806
1878 10547 24474 35584 45501 56179 64268 72332
2643 10618 24650 35606 45817 56496 64304 72529
2694 10781 24852 35824 45922 56507 64334 72883
2865 10876 25117 35971 46075 56592 64412 72919
2915 11173 25513 36086 46459 56659 64473 73032
2938 11421 26034 36193 46750 56806 64922 73240
3089 12708 26271 36281 47367 56950 64950 73346
3489 12846 26316 36591 47512 57196 65276 74897
3654 13223 26732 37333 48123 57330 65312 75125
4022 13720 26760 38146 48458 57809 65428 76001
4151 14170 26766 38353 48519 58104 65553 76042
4368 14638 26777 38415 48536 58317 65572 76128
4540 14896 27278 38670 48702 58534 65752 76581
5037 15200 27468 38688 48755 58830 65975 76793
5048 15389 28082 38808 49319 59035 66334 76870
5431 15622 28188 38873 49532 59404 66626 76920
5746 16645 28353 38874 49552 59428 66635 77072
6236 16759 28381 39539 49767 59848 66716 77384
6564 17380 28396 40052 50034 59910 66950 77479
7003 17396 29195 40116 50072 60569 66983 77749
7285 17575 29275 40302 50557 60571 67128 77885
7429 17773 29458 40306 50779 60748 67166 78894
7447 17947 30046 40426 51360 60831 67753 79127
7749 18647 30905 40511 51412 61075 68088 79276
8076 18678 31219 40716 51944 61630 68102 79339
8391 19868 31341 40745 52074 61694 68280
9092 20385 31545 40993 52408 61940 68362
9160 20413 31645 42053 52546 62258 68377
9429 21288 32442 42404 52559 62260 68389
9439 21883 32924 42740 52666 62338 68829
9523 22169 33526 43306 53094 62476 69087
1158 10261 19655 33159 43428 54548 58967 72243
1372 11885 19742 34129 45011 55558 60825 72437
2508 11891 21125 35740 46563 55626 61448 74011
2741 12710 21977 36126 47244 55775 61794 74455
3668 13520 23625 36531 48194 56262 63448 75376
4417 15228 23898 36871 48510 56742 63568 76083
5293 15626 24337 37058 48601 56869 65688 76336
5761 15930 26032 37683 48759 57017 66431 79019
6673 16917 26524 37871 49025 57074 67680 79302
8501 17299 27467 38493 49682 57369 67871
8850 17419 27738 40597 50109 57446 70306
9333 18101 29375 42259 50236 58417 71823
9507 19370 30288 42798 54382 58496 71838
Næstu útdrættir fara fram 4., 11., 18., 25. júní & 2. júlí 2020
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
8251 31737 71451 74507 75484
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
2799 21153 25866 34929 48781 65235
4932 21880 30692 40468 54480 67185
14645 23644 32411 40772 55277 72535
18469 24773 33203 41131 61103 79444
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
7 1 4 0 3
4. útdráttur 28. maí 2020
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Fjölmenn mótmæli voru á götum
Minneapolis og fleiri borga í Banda-
ríkjunum í fyrrinótt vegna andláts
George Floyd, en hann lést eftir að
lögreglumaður þrýsti að hálsi hans
með hné sínu þannig að hann kafnaði.
Var þetta annar dagurinn í röð sem
mótmæli blossuðu upp vegna málsins.
Atvikið hefur vakið mikla reiði
víða í Bandaríkjunum, sér í lagi meðal
blökkufólks, en það telur morðið á
Floyd einungis vera enn eitt dæmið
um það hvernig lögreglumenn þar í
landi misnoti völd sín þegar kemur að
samskiptum við minnihlutahópa.
Mótmælendur gerðu meðal ann-
ars aðsúg að lögreglustöðinni þar sem
lögreglumennirnir sem komu að mál-
inu unnu, en þeim var sagt upp störf-
um á þriðjudaginn. Mótmælin urðu
þó ekki jafnhörð og fyrri daginn, en
þá beitti lögreglan táragasi og
gúmmíkúlum til þess að dreifa
reiðum mannfjöldanum.
Alríkislögreglan kölluð til
Saksóknarar í Minneapolis
sögðu í gær að þeir hefðu kallað til
bandarísku alríkislögregluna FBI til
þess að rannsaka málið, en upptaka
náðist af atvikinu þar sem fjórir lög-
reglumenn sjást handtaka Floyd, en
honum var gefið að sök að hafa notað
falsaðan seðil til smáinnkaupa.
Heyrist Floyd lýsa því yfir að
hann geti ekki náð andanum, á meðan
lögreglumennirnir skipa honum að
standa upp. Allir lögreglumennirnir
fjórir hafa nú verið reknir.
Jacob Frey, borgarstjóri
Minneapolis, segir það hins vegar
ekki nóg. „Af hverju er maðurinn sem
drap George Floyd ekki í fangelsi? Ef
þú hefðir gert þetta, eða ég, værum
við nú bak við lás og slá,“ sagði Frey.
Bridgett, systir Floyds, kallaði einnig
eftir því að lögreglumennirnir yrðu
ákærðir fyrir morð, og Ben Crump,
lögfræðingur fjölskyldunnar, sagði
ljóst að engin ástæða hefði verið til að
beita lífshættulegu ofbeldi við hand-
tökuna.
„Þetta hlýtur að vera kornið sem
fyllir mælinn. Allir eiga skilið rétt-
læti,“ sagði Crump. „Við getum ekki
haft tvö réttarkerfi, eitt fyrir svarta
og annað fyrir hvíta.“
AFP
Mótmæli Mikil reiði er nú í Bandaríkjunum vegna andláts George Floyd, sem lést í viðskiptum sínum við lögregluna.
Mikil reiði vegna
lögregluofbeldis
Vilja að lögreglumennirnir verði ákærðir fyrir morð
Stjórnvöld í Bretlandi, Bandaríkjun-
um, Kanada og Ástralíu fordæmdu í
gær frumvarp Kínverja um ný þjóð-
aröryggislög í Hong Kong, og sögðu
það ganga í berhögg við þær alþjóð-
legu skuldbindingar sem Kínverjar
hefðu tekist á hendur þegar Bretar
afhentu þeim yfirráðin yfir Hong
Kong.
Sagði í yfirlýsingu ríkjanna fjög-
urra að ákvörðun Kína um að
þröngva lögunum upp á Hong Kong
væri í beinni andstöðu við samkomu-
lag Breta og Kínverja, sem væri bind-
andi að lögum og skráð hjá Samein-
uðu þjóðunum og að sá lagarammi
sem settur er með lögunum græfi
undan hugmyndinni um að Kína og
Hong Kong væru „eitt ríki með tvö
kerfi“.
Yfirlýsingin var gefin út í kjölfar
þess að kínverska alþýðuþingið sam-
þykkti frumvarp kínverskra stjórn-
valda um þjóðaröryggislögin, en til-
gangur laganna er sagður sá að koma
í veg fyrir mótmæli á borð við þau
sem skóku Hong Kong-borg á síðasta
ári.
„Villimannsleg“ ákvörðun
Skrifstofa kínverska utanríkis-
ráðuneytisins í Hong Kong mótmælti
í gær ákvörðun Mike Pompeos, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, en
hann lýsti því yfir að Hong Kong nyti
ekki lengur þeirra réttinda sem borg-
inni áttu að vera tryggð til ársins 2047
samkvæmt samkomulagi Breta og
Kínverja.
Yfirlýsing Pompeos gerir banda-
rískum stjórnvöldum kleift að nema
úr gildi þær sérstöku viðskiptaíviln-
anir sem Hong Kong hefur notið sem
sérstakt sjálfstjórnarríki, og sagði í
tilkynningu Kínverja að ákvörðun
Pompeos væri sú „villimannslegasta,
ósanngjarnasta og óskammfeilnasta“
sem tekin hefði verið.
David Stilwell, yfirmaður Asíumála
í bandaríska utanríkisráðuneytinu,
sagði að það færi eftir ákvörðunum
Donalds Trumps Bandaríkjaforseta
hvaða aðgerðir yrði ráðist í vegna yf-
irlýsingarinnar, en áréttaði að Banda-
ríkjamenn vildu ekki valda íbúum
Hong Kong skaða. „Þessi ákvörðun
var tekin af stjórnvöldum í Peking,
ekki Bandaríkjunum,“ sagði Stilwell.
Lam fagnar frumvarpinu
Carrie Lam, héraðsstjóri Hong
Kong, sem þótt hefur draga taum
Kínverja, lýsti því yfir í gær að hún
fagnaði frumvarpinu. Sagði Lam að
hún ætlaði sér að auka bæði löggæslu
og menntun innan borgarinnar til
þess að auka þjóðaröryggi.
Frumvarpið hefur hins vegar mætt
mikilli andspyrnu innan borgarinnar,
og hafa fjölmargir streymt út á götur
til þess að mótmæla því síðustu daga.
Claudia Mo, lýðræðissinnaður
þingmaður í Hong Kong, sagði við
AFP-fréttastofuna að frumvarpið
markaði endalok borgarinnar. „Þeir
eru að skera í burtu sál okkar og taka
í burtu þau gildi sem við höfum alltaf
haft í mestum hávegum.“
Frumvarpið samþykkt
Enskumælandi ríkin segja Kínverja ganga í berhögg við
alþjóðlegar skuldbindingar sínar gagnvart Hong Kong
AFP
Hong Kong Xi Jinping, forseti Kína,
greiðir atkvæði með frumvarpinu.
Staðfest var í fyrradag að rúmlega
100.000 manns hefðu látist í Banda-
ríkjunum af völdum kórónuveir-
unnar, samkvæmt talningu banda-
ríska háskólans Johns Hopkins.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
minntist hinna látnu í gær og sendi
fjölskyldum og vinum þeirra sam-
úðarkveðjur sínar.
Rúmlega 1,7 milljónir manna
hafa nú smitast af kórónuveirunni í
Bandaríkjunum, en það eru fleiri en
í nokkru öðru ríki. Alls hafa 5,7
milljón staðfest smit komið upp í
heiminum öllum, og um 356.000
manns hafa látist af völdum veir-
unnar til þessa. Áætlað er að um 2,3
milljónir manna hafi náð sér.
Rúmlega 100.000 látnir úr kórónuveirunni
BANDARÍKIN