Skessuhorn


Skessuhorn - 04.03.2020, Qupperneq 11

Skessuhorn - 04.03.2020, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 4. MARs 2020 11 Philippe Ricart sýnir 52 spjaldofin bókamerki á Bókasafni Akraness Sýningin hefst föstudaginn 6. mars n.k. kl. 15.00 og lýkur 28. mars. Allir velkomnir við opnun sýningar, heitt kaffi á könnunni. Sýningin er opin virka daga kl. 10:00-18:00 og á laugardögum kl. 11:00 – 14:00. Philippe setti sér það markmið að hanna og spjaldvefa eitt nýtt bókamerki í hverri viku á síðasta ári. Á sýningunni má sjá afraksturinn af þeirri vinnu. Bókasafn Akraness • Dalbraut 1 • s. 433 1200 bokasafn.akranes.is • bokasafn@akranessofn.is SK ES SU H O R N 2 02 0 Á þriðjudaginn í liðinni viku var stofnfundur AK-HVA foreldrasam- takanna haldinn í Brekkubæjarskóla á Akranesi. samtökin eru stofnuð af foreldrafélögum grunnskólanna á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit; þ.e. Brekkubæjarskóla, Grundaskóla og Heiðarskóla, í þeim tilgangi að skapa vettvang fyrir samtal og sam- starf foreldra á svæðinu. Með því má skapa öflugt tengslanet foreldra barna í þessum þremur skólum svo börnin tengist enn betur áður en þau svo koma saman í framhalds- skóla. skólastjórnendur skólanna þriggja opnuðu fundinn og voru sammála um mikilvægi þess að starfsmenn skóla, foreldrar og börn vinni saman að skólastarfinu. Bryn- dís Jónsdóttir, verkefnastjóri Heim- ilis og skóla, og Heiðrún Janusar- dóttir forvarnarfulltrúi, fluttu er- indi um gagnsemi og forvarnargildi foreldrasamstarfs. Þær söðu það mikilvægt að foreldrar séu samstíga í uppeldi og sýni samstöðu til að öllum börnum líði vel, enda þurfi heilt samfélag til að ala upp barn. Tinna steindórsdóttir, foreldri í Brekkubæjarskóla og fulltrúi úr foreldrafélagi skólans, setti enda- punktinn við stofnfundinn með formlegri stofnun samtakanna. Að því loknu var boðið upp á kaffi og kökur og foreldrar gátu spjallað saman sem er gott fyrsta skref að góðu samtali foreldra. arg síðastliðinn sunnudag voru við messu í Dómkirkjunni í Reykja- vík vígðir tveir prestar til starfa hjá Þjóðkirkjunni og tveir djákn- ar. Þeirra á meðal hlaut vígslu séra Þóra Björg sigurðardóttir, verð- andi prestur í Garða- og saurbæj- arprestakalli. Það var séra Agnes M. sigurðardóttir biskup yfir Íslandi sem framkvæmdi vígsluna og sr. Elínborg sturludóttir þjónaði fyr- ir altari. Þóra Björg sigurðardóttir er fædd í Reykjavík 1989. Hún lauk prófi í guðfræði frá Háskóla Íslands árið 2019 og Bs-prófi í sálfræði frá sama skóla 2016. Hún hefur starf- að sem ritari og æskulýðsfullrúi við Grafarvogskirkju frá árinu 2011 en komið að kristilegu starfi frá árinu 2008 m.a. á vegum KFUM og KFUK í Vatnaskógi og Ölveri. Hún er gift Geirlaugi sigurbjörnssyni. Þau eiga tvö börn og eru búsett á Akranesi. Auk séra Þóru Bjargar var sr. Jónína Ólafsdóttir ráðin til starfa við Garða- og saurbæjarprestakall, en hún er nú að ljúka störfum sem prestur á Dalvík. Þær Þóra Björg og Jónína munu báðar hefja störf 1. apríl næstkomandi og þjóna við hlið séra Þráins Haraldssonar sókn- arprests. Þóra Björg mun leggja áherslu á barna- og æskulýðsstarf í sókninni. mm Foreldrasamtökin AK-HVA formlega stofnuð Svipmynd frá fundinum. Ný stjórn AK-HVA. Prestar vígðir til starfa Séra Þóra Björg Sigurðardóttir. Fremsta röð frá vinstri: sr. Þóra Björg Sigurðardótitr, sr. Pétur Ragnhildarson, sr. Agnes M. Sigurðardóttir biskup, Jóhanna María Eyjólfsdóttir djákni, Anna Hulda Júlíusdóttir djákni, og þá miðröð frá vinstri: Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir, dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, sr. Karl V. Matthíasson, Þórey Dögg Jónsdóttir djákni, Rósa Kristjánsdóttir djákni, sr. Elínborg Sturludóttir. Aftasta röð: sr. Henning Emil Magnússon, sr. Þráinn Haraldsson, sr. Guðmundur Karl Ágústsson og sr. Sigurður Jónsson. Ljósm. kirkjan.is

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.