Skessuhorn


Skessuhorn - 04.03.2020, Qupperneq 12

Skessuhorn - 04.03.2020, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 4. MARs 202012 Forsvarsfólk Ríkisstjórnarinn- ar kynnti síðastliðinn föstudag til- lögur átakshóps um úrbætur í inn- viðum. Þær hugmyndir fela með- al annars í sér að jarðstrengjavæð- ingu dreifikerfis raforku verði flýtt til 2025 í stað 2035, þ.e. að fram- kvæmdum við svæðisflutningskerfi raforku sem ekki eru á tíu ára kerf- isáætlun verði flýtt. Þrífösun verður innleidd samhliða jarðstrengjavæð- ingunni og áætlað að jarðstrengja- væðingin muni fækka truflunum í dreifikerfinu um 85% og að þær verði að mestu óháðar veðri. Þá verða leyfisveitingar framkvæmda í flutningskerfi raforku einfaldað- ar og skilvirkni aukin í varaafli fyrir raforku. Þá verða fjarskipti endur- skilgreint og efld auk þess sem upp- byggingu ofanflóðavarna verði lok- ið árið 2030. Fyrrgreindur átaks- hópur var skipaður í kjölfar fár- viðrisins sem gekk yfir norðanvert landið í desember síðastliðnum. Á næstu tíu árum verður framkvæmd- um flýtt fyrir 27 milljarða króna, bæði hvað varðar framkvæmdir í flutnings- og dreifikerfi raforku og í ofanflóðavörnum. Margvíslegt tjón varð af fárviðr- inu og ekki allt metið til fjár. Beint tjón raforkufyrirtækja, fjarskiptafyr- irtækja og stofnana ríkisins nam um einum milljarði króna, þar af um tveir þriðju hjá raforkufyrirtækjum. Tjón atvinnufyrirtækja, bænda og heimila liggur ekki fyrir og kemur ekki allt í ljós fyrr en síðar á árinu. Átakshópurinn fékk ráðgjafafyrir- tækið KPMG til að meta kostnað samfélagsins af stöðvun atvinnulífs um land allt í einn dag og var nið- urstaða þess mats að kostnaðurinn næmi 1,7 milljörðum króna á dag. Tíu áhersluatriði Átakshópurinn leggur auk framan- greinds til fjölmargar aðgerð- ir sem byggjast á stefnu stjórn- valda í viðkomandi málaflokkum, samþykktum stefnum og áætlun- um, áhættumati Þjóðaröryggis- ráðs og almannavarna og upplýs- ingum sérfræðinga, stofnana, fyr- irtækja og sveitarfélaga. samkvæmt mati hópsins mun heildarfjárhæð framkvæmda hins opinbera og inn- viðafyrirtækja í uppbyggingu inn- viða nema 900 milljörðum króna á næstu tíu árum. Helstu aðgerð- ir eru: 1. Jarðstrengjavæðingu dreifikerf- is raforku verði flýtt þannig að árið 2025 verði henni lokið að lang- mestu leyti í stað ársins 2035. 2. Tillögur til einföldunar og auk- innar skilvirkni í leyfisveitingum vegna framkvæmda í flutningskerfi raforku. 3. Framkvæmdum í svæðisflutn- ingskerfi raforku, sem ekki eru á 10 ára kerfisáætlun Landsnets, verði flýtt. 4. Trygging á framboði varma á suðurnesjum og höfuðborgar- svæðinu, í nafni almannahagsmuna og orkuöryggis, með könnun á varmastöð í Krýsuvík. 5. Grunnnet fjarskipta verði byggt upp með hliðsjón af aðgengi og ör- yggi og tengingu Íslands við um- heiminn 6. Öryggi verði haft í fyrirrúmi við allar ákvarðanir í samgöngu- málum. 7. Uppbyggingu ofanflóðavarna verði lokið árið 2030. 8. Efling almannavarnakerfisins og heildstæð vöktun náttúruvár. 9. Varaafl fyrir raforku og fjarskipti endurskilgreint og eflt. 10. samræmd stefnumótun í mál- efnum innviða og áætlunum ríkis- ins. Aðgerðaáætlun átakshópsins má finna á vefsíðunni www.innvid- ir2020.is. mm/ Ljósm. Rarik. Atvinnumálanefnd Dalabyggð- ar boðaði til fundar á þriðjudag- inn í liðinni viku með atvinnurek- endum og fyrirtækjum á svæðinu. Fundurinn var liður í átaksverk- efni til að styðja við hugmyndir og þróun í rekstri fyrirtækja á svæð- inu. Á fundinn mætti stefán Þór Helgason frá ráðgjafasviði KPMG og kynnti sviðsmyndagreiningu um þróun atvinnulífs sem unnin var nýverið fyrir samtök sveitarfé- laga á Vesturlandi. Í kjölfarið var vinnustofa þar sem unnin var hug- myndavinna og leitast eftir að fá sýn þátttakenda á því hvernig for- gangsraða eigi verkefnum á næstu fimm árum ásamt því að leita leiða til úrvinnslu. Í fundarboði kom fram að með þessu móti myndi fundurinn skila af sér skýrari vinnu sem verður til frekari úrvinnslu í framhaldinu. sm Fundur um atvinnumál í Dölum Unnið að viðgerðum á raflínum eftir óveðrið í desember. Flýta framkvæmdum til að bæta innviði landsins Lagt til að flýtt verði um tíu ár jarðstrengjavæðingu raforku Jarðstrengur plægður í jörð. Dráttar- og þjónustubáturinn Fosnakon- gen var við höfn í Rifi í síðustu viku en hann kom til Rifs vegna veðurs á leið- inni suður frá Vestfjörðum. Fosnakongen er tvíbytna sem smíðaður var 2015. Hann var leigður til ýmissa verka í tengslum við laxeldið á Vestfjörðum en báturinn er ekki einungis góður dráttarbátur held- ur er hann með tvo öfluga krana. Kran- arnir komu sér einnig vel við að hífa upp bátana sem sukku og skemmdust í snjó- flóðinu á Flateyri en snjóflóðið varð þess valdandi að flestir bátar í höfninni þar sukku í flóðbylgju um miðjan janúar. Þeg- ar þetta er skrifað er Fostnakongen kom- inn til Vestmannaeyja þar sem beðið er færis að sigla bátnum heim til Noregs. þa Fosnakongen leitaði vars í Rifi Framlag Íslands í Eurovision söngvakeppninni trónir í augnablik- inu í efsta sæti erlendra veðbanka. Eftir úrslitakvöldið á laugardaginn var ljóst að Daði og Gagnamagn- ið verður framlag Íslands, en lagið heitir Think about things. Þótt Ís- lands sé nú í efsta sæti veðbankanna er ljóst að margt getur enn breyst fram að keppninni í maí. Til dæmis þá hafa nokkur lönd ekki ennþá val- ið framlög sín til keppninnar. Engu að síður er upplagt fyrir landsmenn að njóta augnabliksins. mm Klukkan 14 síðastliðinn mánudag var framlag Íslands í efsta sæti þeirra sem tilbúnir eru að leggja fé undir úrslit í söngvakeppninni. Veðbankar spá góðu gengi Daða og Gagnamagnsins Daði Freyr og Gagnamagnið.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.