Skessuhorn - 04.03.2020, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 4. MARs 2020 13
Auðarskóli
Ábyrgð – Ánægja – Árangur
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Auðarskóli óskar eftir að ráða í
eftirfarandi stöður kennara fyrir
skólaárið 2020-2021
Kennarastöður við Auðarskóla
Við Auðarskóla er laus 100% staða umsjónarkennara á unglingastigi og
100% staða umsjónarkennara á miðstigi fyrir skólaárið 2020-2021. Um er
að ræða stöður til framtíðar.
Einnig er laus til afleysingar 100% staða list- og verkgreinakennara skóla-
árið 2020-2021.
Umsjónarkennsla á unglingastigi, meðal kennslugreina eru:
· íslenska
· samfélagsfræði
· tungumálakennsla
· val
· smíði
Umsjónarkennsla á miðstigi stigi, meðal kennslugreina eru:
· íslenska
· náttúrufræði
· samfélagsfræði
· tungumálakennsla
List- og verkgreinakennari, meðal kennslugreina eru:
· textíll
· heimilisfræði
Mikilvægt er að umsækjendur búi að:
· færni í samskiptum
· frumkvæði í starfi
· sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum
· góðri íslenskukunnáttu
Einnig þurfa umsækjendur að vera tilbúnir að vinna eftir stefnu Auðarskóla í
teymiskennslu. Umsækjendur þurfa að hafa leyfisbréf til kennslu.
Umsóknir um starfið berist á netfangið keli@audarskoli.is. Með umsókninni
þurfa að fylgja ferilskrá og ábendingar um meðmælendur. Umsóknarfrestur
er til 1. apríl 2020.
Upplýsingar um starfið veitir Þorkell aðstoðarskólastjóri í síma 430 4757.
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Stykkishólmur 2019
Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu
Dekk & Smur, Nesvegi 5
Fimmtudaginn 12. mars
Föstudaginn 13. mars
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 438 – 1385
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
0
Guðjón s Brjánsson, þingmaður
samfylkingarinnar, lagði í síðustu
viku fram fyrirspurn á Alþingi til
félags- og barnamálaráðherra um
endurskoðun á lögum um stéttar-
félög og vinnudeilur. spurði hann
hvort fyrirhuguð væri heildarend-
urskoðun á lögum um stéttarfélög
og vinnudeilur, nr. 80 sem eru frá
árinu 1938. „Ef ekki, hyggst ráð-
herra beita sér fyrir endurskoðun
einstakra þátta laganna, t.d. mik-
ilvægra þátta þar sem ágreiningur
hefur risið um réttindi almennra
starfsmanna og þeirra sem tald-
ir hafa verið í sérstakri réttarstöðu
á vinnustað.“ spurði hann ráð-
herra jafnframt hvort réttindi fólks
á vinnumarkaði væru nægilega vel
tryggð gagnvart atvinnurekanda
þegar kemur að heimildum til upp-
sagnar. Auk þess hvort ráðherra
telji að lögin eigi að vera skýr um að
vinnuveitanda beri að greina mál-
efnalega, efnislega og ítarlega frá
ástæðum uppsagnar. Benti hann á
að eins og staðan er nú njóta ein-
ungis trúnaðarmenn og þungað-
ar konur réttinda þegar kemur að
uppsögnum starfsfólks, en dæmi
um að slíkt haldi jafnvel ekki.
Í svari Ásmundar Einars Daða-
sonar ráðherra kom fram að lög
um stéttarfélög og vinnudeilur eru
vissulega aldin og margt í þeim sem
þarfnist endurskoðunar með tilliti
til að lögin eru yfir 80 ára gömul.
Ekki hafi hins vegar verið farið í
heildar endurskoðun laga um stétt-
arfélög og vinnudeilur. Benti ráð-
herra á að aðilar vinnumarkaðarins
hefðu ekki farið fram á slíka end-
urskoðun, en það eru jú þeir sem
semja um kaup og kjör. Ráðherra
kvaðst tilbúinn að taka umræðuna
um slíka endurskoðun og vísaði til
ákvæðis sem finna má í grænbók
lífskjarasamninga frá því á síðasta
ári. mm
„stofnmæling botnfiska á Íslands-
miðum er hafin og stendur yfir
næstu þrjár vikur,“ sagði í tilkynn-
ingu frá Hafrannsóknastofnun síð-
astliðinn föstudag. Fjögur skip taka
þátt í verkefninu; togararnir Gnúp-
ur GK, Múlaberg sI og rannsókna-
skipin Árni Friðriksson og Bjarni
sæmundsson. Togað verður á tæp-
lega 600 stöðvum á 20-500 m dýpi
umhverfis landið. Verkefnið, sem
einnig er nefnt marsrall eða tog-
ararall, hefur verið framkvæmt með
sambærilegum hætti á hverju ári síð-
an 1985. Helmingur togstöðva var í
upphafi staðsettur af skipstjórum, en
öðrum stöðvum var dreift um miðin
með tilviljunarkenndum hætti.
Helsta markmið eru að fylgj-
ast með breytingum á stofnstærð,
aldri, fæðu, ástandi og útbreiðslu
botnfisktegunda við landið. Einnig
verður sýnum safnað vegna ýmissa
rannsókna, t.d. á mengunarefnum í
sjávarfangi. Erfðasýni verða tekin úr
nokkrum fisktegundum, athuganir
gerðar á botndýrum og mat lagt á
magn ýmiskonar rusls á sjávarbotni.
Í marsralli í fyrra hóf Hafrann-
sóknastofnun aftur merkingar á
þorski eftir nokkurt hlé. Í ár verður
þorskur merktur á Vestfjarðamið-
um og úti fyrir Norðurlandi. Fimm
til sjö rannsóknamenn eru á hverju
skipi auk áhafnar. Í leiðangri Bjarna
sæmundssonar verður rannsókna-
liðið alfarið skipað konum í fyrsta
skipti í 36 ára sögu verkefnisins.
Fylgjast má með ferðum skipanna
á hafro.is og þar sjást einnig tog-
stöðvar í marsrallinu.
mm
Kallar eftir endurskoðun laga
um stéttarfélög og vinnudeilur
Marsrall Hafró til stofnmælingar
á botnfiski er hafið
Yfirlit togstöðva í marsralli. Teikning: Hafro.is