Skessuhorn


Skessuhorn - 04.03.2020, Síða 15

Skessuhorn - 04.03.2020, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2020 15 Þaktúður• Hurðastál• Áfellur• Sérsmíði• Viðgerðir• Málmsuða• www.blikkgh.is • blikkgh@blikkgh.is • Akursbraut 11b • 431-2288 Safnahús Borgarfjarðar Ebba Guðný Guðmundsdóttir, bókaútgefandi, heilsukokkur, fyrirlesari og umsjónarmaður þáttanna Eldað með Ebbu heldur fræðsluerindi um heilsu og næringu ungbarna. Þar fer hún yfir mikilvæg atriði sem gott er að hafa í huga þegar byrjað er að gefa litlu barni að borða og öll fjölskyldan mun njóta góðs af. Allir velkomnir Fræðsluerindið verður í Safnahúsinu að Bjarnarbr. 4-6 í Borgarnesi. Ókeypis aðgangur. 433 7200 - www.safnahus.is Ebba Guðný Guðmundsdóttir Fimmtudaginn 5. mars kl. 10.30 - Héraðsbókasafn Borgarfjarðar Heilsa og næring ungbarna SK ES SU H O R N 2 02 0 Grassláttur á opnum svæðum á Akranesi 2020-2022 Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í grasslátt á opnum svæðum í sveitarfélaginu á árunum 2020-2022. Verkið felst í grasslætti án hirðingar, allt að 14 sinnum hvert ár í 3 sumur. Grassvæði er um 430.000 m2. Samningstími er til 30. október 2022. Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi með því að senda tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, þar sem fram kemur heiti verks, nafn bjóðanda, netfang og símanúmer tengiliðs bjóðanda. Tilboð verða opnuð í Stjórnsýsluhúsi Akraness, Stillholti 16-18, 300 Akranes, miðvikudaginn 8. apríl 2020 kl. 11.00. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Magni, nýr dráttarbátur Faxa- flóahafna, kom til Reykjavík- ur á fimmtudaginn, en þar verður heimahöfn bátsins. Magni er 32 metra langur, tólf metra breiður og með tvær 2.025 kW aðalvélar, sem samsvara sam- anlagt 6.772 hestöflum. Togkraft- urinn er 85 tonn áfram og 84 tonn aftur á bak, sem jafngildir togkrafti allra hinna fjögurra dráttarbáta Faxaflóahafna samanlagt. Magni var smíðaður af hollenska fyrirtækinu Damen shipyards í skipasmíðastöð fyrirtækisins í Víet- nam. Áhöfn á vegum Damen sigldi bátnum til Reykjavíkur, þar sem hann var afhentur Faxaflóahöfnum. „Á næstu dögum og vikum mun báturinn verða tekinn út og geng- ið frá öllum pappírum, auk þess að koma bátnum á íslenskt flagg. síð- an tekur við þjálfun starfsmanna Faxaflóahafna á bátinn,“ segir á vef Faxaflóahafna. kgk stofnfundur PíNK - Pírata í Norð- vesturkjördæmi, var haldinn á sauðárkróki á sunnudagskvöldið. „Fundurinn var vel sóttur og ljóst að áhugi á starfi og stefnu Pírata fer vaxandi í kjördæminu. Halldóra Mogensen þingmaður Pírata stýrði fundi og eftir formlega stofnun var ráðist í kosningar í fyrstu stjórn félagsins en hana skipa: sunna Ein- arsdóttir formaður, Pétur Óli Þor- valdsson gjaldkeri, Jónas Lövdal, Jóhann Hjörtur stefánssons Bruhn, Magnús Kr Guðmundsson og Að- alheiður Alenu Jóhannsdóttir,“ seg- ir í tilkynningu. Að stjórnarkjöri loknu skiptist fólk í umræðuhópa þar sem fjallað var um heilbrigðiskerfið, frelsi til búsetu, undirstöður atvinnuvega og innviðaöryggi. Þá tóku ræðu- menn kvöldsins við en það voru þau Björn Leví Gunnarsson þing- maður Pírata og Eva Pandora Baldursdóttir fyrrv. þingmaður Pí- rata. Eftir fund var fyrsti óform- legi stjórnarfundur PíNK boðaður þar sem stjórn skipti með sér verk- um og hófst handa við að leggja grunn að starfi sem framundan er hjá félaginu. mm Árlegt kútmagakvöld Lionsklúbbs Grundarfjarðar var haldið í sam- komuhúsinu laugardaginn 22. febrúar síðastliðinn. Við það tilefni afhentu Lionsmenn peningastyrki til málefna í heimabyggð. Að þessu sinni hlutu styrki Ungmennafélag Grundarfjarðar, skotgrund - skot- félag snæfellsness, Klifurfell menn- ingarhús og Golfklúbburinn Vest- arr. kgk Magna siglt til hafnar. Ljósm. Faxaflóahafnir/ Gunnlaugur Rögnvaldsson. Magni kominn til hafnar Veittu styrki á kútmagakvöldi PíNK er nýtt félag Pírata í Norðvesturkjördæmi

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.