Skessuhorn


Skessuhorn - 04.03.2020, Page 27

Skessuhorn - 04.03.2020, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 4. MARs 2020 27 Pennagrein Þessi hluti Borgarfjarðar var til forna áfangastaður ferðamanna sem áttu leið um Kaldadal og Arnar- vatnsheiði. Efstu bæirnir Kalman- stunga og Húsafell voru vinsælir gististaðir, það var þingmannaleið til Þingvalla, og norður í Húna- vatnssýslu eða skagafjörð allt að tvær þingmannaleiðir. Í Kalman- stungu og Húsafelli var löngum seld gisting og annar greiði. Það var í frásögur fært þegar Danaprins gisti í Kalmanstungu fyrir nokkr- um öldum. stefán Ólafsson bóndi í Kalmanstungu 1858 - 1889 seldi greiða og gistingu. Grímur Thomsen minnist á Húsafell í kvæði sínu skúlaskeið. skúli sprengdi sörla sinn á bökkum Hvítár á flótta yfir Kaldadal. „sörli er heygður Húsafells í túni,” segir Grímur í kvæðinu. Á tuttugustu öldinni er Húsafell kunnur gististaður, bæði fyrir reis- endur og setugesti. Ásgrímur Jóns- son einn af ástsælustu listmálurum þjóðarinnar dvaldst á Húsafelli, fyrst á sumrin 1915 - 1917, og síð- ar á hverju sumri 4 -6 vikur í senn. Húsafellsmyndir hans eru þjóð- kunnar. Á Húsafelli dvöldu fleiri þjóðkunnir listamenn, Gunnlaugur scheving, Þorvaldur skúlason, Júlí- ana sveinsdóttir, Jón stefánsson og fleiri. Á sínum efri árum teiknaði Ásgrímur kirkju fyrir Húsafell og var hún reist upp úr 1960. Er hún mikið djásn og setur svip á staðinn. Á Húsafelli lagði Kristleifur bóndi niður búskap með búfé og byggði sumarhús fyrir gesti. Nú er á hans parti jarðarinnar mikil sum- arhúsabyggð, hótel og fjórar raf- stöðvar. Kristleifur var móðurbróð- ir Páls listamanns. Páll Guðmundsson ólst upp á Húsafelli. Hann nam málara- og höggmyndalist, bæði hér á landi og erlendis. Þegar hann hafði lokið námi í Þýskalandi 1986 settist hann að á Húsafelli. Hann er nú þjóð- kunnur fyrir listaverk sín, bæði úr steinum sem hann finnur í landinu og svo málverk og grafík. Einnig býr hann til steinhörpur úr hellu- grjóti og flautur úr birki og rabar- bara. Hann breytti fjósi og súrheys- gryfju í listasmiðjur og er sú nýting í stíl við það sem bændur hafa gert þegar þeir hafa breytt gripahúsum í gististaði. Má þar nefna hótelið á Kirkjubóli í Hvítársíðu. Þar bjó þjóðskáldið Guðmundur Böðvars- son á lítilli jörð. Hann jók tekjur sínar með list sinni og smíðum. síðar breyttu afkomendur hans úti- húsum í hótel þar sem allt er gert af smekkvísi og listfengi. Ekki má gleyma Fljótstungu þar sem um langt skeið hefur verið tekið á móti gestum í sumarhúsum og nú er þar haglega gerð aðstaða til að sýna gestum einn af hinum frægu hraun- hellum landsins Víðgelmi. Eiríkur Ingólfsson keypti skemmu og átti frumkvæði að því að hún yrði flutt að Húsafelli og þjónaði þar listaverkum Páls. Ara- synir fluttu hana úr Borgarnesi í heilu lagi að launum fyrir listaverk og stendur hún nú á sama hlaðinu og gamla fjósið og þar sýnir Páll myndverk sín og hljóðfæri og sóm- ir skemman sér vel. Aðdáendur Páls reistu hús fyr- ir liðinna tíma listaverk í steinum. Eru það legsteinar flestir höggn- ir eftir afkomendur séra snorra sem var prestur á Húsafelli 1757 - 1803. Elstur legsteinasmiðanna var sennilega séra Helgi Grímsson. Legsteinn yfir séra Grími Jónssyni föður hans er höggvinn úr rauðum steini úr Bæjargilinu, mesti dýr- gripur. Grafskrift er á latínu og á kanti steinsins má sjá hebreskt let- ur. sonur snorra Jakob hjó legstein yfir snorra föður sinn úr rauðum steini með langri grafskrift. Hann er nú mjög laskaður af veðrum og vindi. Þorsteinn sonur Jakobs var eftirsóttur legsteinasmiður. Verk hans sjást víða t.d. í snóksdal í Döl- um og á Möðruvöllum í Hörgárdal svo eitthvað sé nefnt. Annar sonur Jakobs snorrasonar, Gísli hjó leg- steina með grafskriftum og var einn óskemmdur í Húsafellskirkjugarði. Eru verk þessara legsteinasmiða haglega gerð og falleg. Legsteinahúsið var reist með byggingarleyfi skipulagsyfirvalda. Nú vill svo undarlega til að leyf- ið er afturkallað með þeim rökum að húsið þjóni ekki landbúnaði. Þetta ber skilyrðislaust að aftur- kalla. Á Húsafelli hefur ekki verið búskapur með skepnum í 50 ár, en öldum saman hefur Húsafell verið ferðamannastaður og ber að skipu- leggja með tilliti til þess. Páll hef- ur nú starfað á Húsafelli í milli 30 og 40 ár. Kirkjuból, Fljótstunga og Húsafell eru mikils virði fyrir land og þjóð og eiga yfirvöld allt að gera til að hlynna að slíkum stöðum. staður Páls á Húsafelli er lndsfrægt djásn og óskiljanlegt ef yfirvöld við- urkenna það ekki. Þorsteinn Þorsteinsson Vatnslitamynd Ásgríms Jónssonar af væntanlegri Húsafellskirkju. Hálsasveit og Hvítársíða „Undirbúningur gengur afar vel fyrir Landsmót UMFÍ 50+. Við erum reyndar á undan áætlun, búin að raða upp keppnisgreinum og sérgreinarstjórarnir eru klár- ir. Þarna ættu allir sem hafa gam- an af því að hreyfa sig að finna eitt- hvað við sitt hæfi,“ segir sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóra Ungmennasambands Borgarfjarð- ar. Hann og fleiri ungmennafélag- ar innan raða UMsB standa nú í ströngu við undirbúning móts- ins sem haldið verður í Borgarnesi dagana 19.- 21. júní næstkomandi. Landsmót 50+ hefur verið hald- ið árlega frá 2011. Það er fyrir þá sem verða fimmtugir á árinu og alla eldri. Mótið hefur verið haldið víða um land og er þetta í fyrsta skipti sem það verður í Borgarnesi. Þar er frábær aðstaða til íþróttaiðkunar eins og sannaðist á unglingalands- mótinu sem þar var haldið fyrir nokkrum árum. Unglingalands- mótið verður einmitt haldið það aftur sumarið 2022. Á Landsmóti 50+ verður boðið upp á 18 greinar af ýmsum toga. Meðal þeirra verður boccia, bridds, frjálsar íþróttir, golf, hestaíþróttir, knattspyrna, körfubolti, línudans, pílukast, pútt, pönnukökubakst- ur, ringó, skotfimi, stígvélakast og sund. En einnig hlaup. Skarðsheiðarhlaup ein af sérstöðum mótsins Meðal keppnisgreina á Landsmóti 50+ verður skarðsheiðarhlaup. Þá verður hlaupið um skarðsheiðar- veg um 19,76 km langa hlaupaleið þar sem fylgt er greinilegum stíg- um. Hún er því þægileg yfirferðar þrátt fyrir nokkra hækkun. Einnig er hægt að stytta leiðina um 5 km með því að aka eftir sæmilegum malarvegi fyrsta spölinn og hlaupa þá tæplega 15 km í heildina. Hlaup- ið hefst á skorholtsmelum í Mela- sveit. Það endar svo við Hrepps- laug í skorradal. „Þetta er mjög falleg leið í björtu og góðu veðri og flestir ættu að komast þetta. Hlaupið getur verið svolítið erfitt í fyrstu. Leiðin upp er stutt því fljót- lega fer að halla niður í móti,“ seg- ir sigurður sem þekkir hlaupaleið- ina yfir skarðsheiði vel enda hefur hún síðastliðin tvö ár verið einn af fjölmörgum viðburðum sem boðið er upp á í Borgarfirði í Hreyfiviku UMFÍ. Í þeirri viku fara þessa leið hlauparar jafnt sem gönguhópar og hjólreiðafólk. skarðheiðarhlaupið er annað af tveimur hlaupum sem í boði verða á Landsmóti UMFÍ 50+ í Borgar- nesi. Hitt er byggt á svokölluðum Flandraspretti, sem er 5 km götu- hlaup og haldið einu sinni í mán- uði í Borgarnesi. „Það skemmti- lega við hlaupin er að fólk á öllum aldri, sem treystir sér í þau geta tek- ið þátt, ekki aðeins þeir sem verða fimmtugir á árinu og eldri,“ segir sigurður. Nánar má lesa um mótið á vef- síðu þess: https://www.umfi.is/ verkefni/landsmot-50plus/. mm Sigurður Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri UMSB. Skarðsheiðarhlaup meðal keppnisgreina á Landsmóti 50+ í Borgarnes Vaskir hlauparar úr Borgarnesi. Björgunarsveitin Lífsbjörg í snæ- fellsbæ keypti á dögunum buggybíl sem mun nýtast sveitinni í störfum sínum. Buggy bifreiðar eru hann- aðar til þess að komast á staði þar sem flestir bílar komast ekki. Um er að ræða kraftmikill og glæsilegan bíl sem nýtast mun í útköllum við erfiðar aðstæður. Hefur bíllinn ver- ið á beltum í vetur og því einungis prufaður í snjó og ekki er búið að prófa hann á dekkjum. Nú er búið að fara á honum tvisvar sinnum upp á topp á snæfellsjökli og reyndist hann vel. þa Lífsbjörg fékk nýjan buggybíl

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.