Skessuhorn


Skessuhorn - 24.06.2020, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 24.06.2020, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 24. JúnÍ 202028 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Tónlistardagskrá samtvinnuð lestr- um úr helgum ritum skapa Máríu- dægur, helgistund tileinkaða Maríu Guðsmóður sem fram fer í Staða- staðarkirkju á Snæfellsnesi fyrstu helgina í júlí. Frumflutt verða ný verk við gömul Maríukvæði í bland við klassíska helgitexta og sálma sem fluttir eru af Maríusystrun- um í Stykkishólmi og Hljómórum, tríói þriggja organista af Vestfjörð- um sem jafnframt leggja upp dag- skrána í samstarfi við sóknarprest- inn á Stað, sr. Arnald Mána. „Tilefnið er raunar margþætt, en kaþólikkar sækja reglulega í Maríu- lind á Hellnum sem er eini form- legi pílagrímastaður þeirra hér á landi. En kirkjan á Stað á Öldu- hrygg, Staðastað, var einnig helguð Maríu að fornu og ber þess merki enn í dag þar sem Maríumyndir eru áberandi í skreytingum henn- ar,“ segir séra Arnaldur Máni. Að sögn hans voru Íslendingar Maríu mjög trúir um aldir, löngu fram yfir siðbót raunar. „Lútherskir biskupar ortu jafnvel til hennar á latínu á 17. öld og sálmar henni helgaðir voru í sálmabókum lengi vel. En það sem er kannski enn áhugaverðara er að fyrir skömmu var gerð úttekt á inn- blæstri og efnistökum texta í nýjum tónverkum tónskálda á norður- löndum síðustu 50 árin, og þá var það ekki aðeins áberandi að íslensk tónskáld eru handgengnari trúar- legum textum heldur hafa textar með tengsl við Maríu, t.a.m. Mag- nificatinn, algjöra sérstöðu. Og það segir okkur kannski að mann- legt inntak og flókin merkingar- heimur Maríu guðsmóður tali enn til skapandi hliða í nútímamannin- um. Að minnsta kosti verða tvö ný verk frumflutt þann 5. júlí og helgi- stundin sjálf í raun nokkurskonar sögulína, sett upp eins og „stutt“ ferðalag um veröld Maríu,“ segir Arnaldur. Sögulína frá því „fyrir Krist“ til okkar daga „Verkið sem heild hefst á því að ungri stúlku eru boðuð tíðindi sem snúa veröldinni alveg á hvolf. Og það er í mannlegu samhengi sínu bara alvöru harmleikur og ávísun á tilvist á ákveðnum jaðri,“ segir einn skipuleggjenda stundarinnar, kór- stjórinn og tónlistarkonan Dagný Arnalds. „En María er um leið í gegnum söguna þessi ímynd allrar gæsku, þolgæðis, heilags ásetnings og trúmennsku sem lyftir henni á stall sem fólk tengdi við á fjarlægan og upphafinn hátt áður fyrr, en er kannski að meta á annan hátt í dag. Hin himneska drottning er líka ein- hvern veginn systir manns og dótt- ir, og mamma manns líka. Í henni eru skin og skuggar og miskunn og hjálparráð. Hún huggar,“ segir Dagný en tónskáldin tvö sem eiga ný verk á stundinni eru samstarfs- fólk hennar vestan frá Ísafirði, tón- skáldin Jón Gunnar Biering Mar- geirsson og Rúna Esradóttir, sem einnig eru organistar. „Það er þessi dulúð í kringum Maríu sem passar vel við leiðslu og svona „bjarta og hreina“ fegurð, sem við þörfnumst einmitt sérstaklega í trúarlegri tónlist,“ segir Rúna en lag hennar er samið við hið þekkta Maríukvæði María meyjan skæra sem mörg tónskáld hafa reynt sig við. „Það er einmitt mjög áhugavert að endurhugsa þennan klassíska arf og það er það sem er spennandi við starf organistanna, þessi túlkun arfs- ins á hverjum tíma sem viðheldur líka nýsköpun í kirkjutónlistinni,“ segir Rúna en sjálf hefur hún flutt margskonar tónlist opinberlega og stundað tónsmíðanám við tónlistar- deild LHÍ. „Það er mjög ferskt að fá að tala við konu og stelpu og móður sem er guðsmynd og syngja henni samt einmitt einhvern veginn lof því hún sé manneskja en ekki Guð, hún hafi þurft að ala upp dreng sem væri Guð, hugga hann grátandi og hughreysta. Er það ekki magnað en samt svo ótrúlega bara mann- legt hlutskipti sem verður hennar, “ bætir Rúna við. „Og frá örófi svo áfram, eftir að þurfa að þola allt og líða, er hún alltaf tilbúin, mætt til að hugga og reisa fólk við, kalla þau og halda áfram þó hún hafi staðið við krossinn þegar hinir voru farnir.“ Þær Rúna og Dagný segja „sögu Maríu“ raunar aldrei ljúka, því enn í dag starfi konur í hennar nafni sem hafa helgað sig trúnni, að hjálpa öðrum og bera ljós þangað sem myrkur er. Þessvegna sé mjög við- eigandi að Maríusysturnar frum- flytji á helgistundinni verk tileink- að Maríu, kirkjunni á Staðastað og þeim sjálfum. Auðmýkt og persónu- legt samband Tónskáldið Jón Gunnar Biering Margeirsson segir verkefnið hafa verið ljúfa áskorun. „Það er eitt- hvað eilíft í þeirri reisn sem hún býr yfir, eitthvað hreint í viskunni, æðruleysinu og þeim kvenlega kjarki sem býr í hinni lífsreyndu móður,“ segir Jón Gunnar en lag hans er við gamla Maríubæn, sem svipar til miskunnarbæna. „Það er eitthvað sem dregur mann inní þessa dulúðarstemningu við að kyrja þessi orð: Bið ég María bjargi mér burt úr öllum nauðum, annars heims og einnin hér ástmær Guðs, ég treysti þér, bið þú fyrir mér bæði lífs og dauð- um.“ „Maður fyllist einhverri auð- mýkt og sambandið er kannski einhvern veginn mannlegt og persónulegt, um leið og maður hvílir í skauti móður sinnar, ný- fætt barn og dáinn maður,“ bætir Jón Gunnar við angurvær. Hann hefur einnig samið ný lög við mikið af eldri sálmum en honum þykir gaman að semja verk fyrir sérstaka staði og tilefni sem þetta. Öll þrjú starfa sem organistar; á Flateyri, Þingeyri, Suðureyri og Súðavík en kenna líka í Tón- listarskóla Ísafjarðar. Í vetur hafa þau sem þríeyki staðið í útsetn- ingum og flutningi á eldri tónlist, trúarlegri og alþýðlegri og flutt í kirkjunum fyrir vestan, og munu á ferð sinni í tilefni Máriudægra troða upp á svæðinu undir merki Hljómóra einnig. Máríudægur - tónstund helguð minningu hinn- ar tignu meyjar - fer fram sunnu- daginn 5. júlí kl. 15 í Staðastað- arkirkju og er aðgangur ókeyp- is. Flytjendur eru þríeykið ásamt sóknarpresti og Maríusysturnar í Stykkishólmi, þær María Birhen ng ngiti, María Sabiduría de la Cruz og María de Pentecostés. Verkefnið fer fram undir merkj- um Menningarsjóðsins undir Jökli og er styrkt af Uppbyggingarsjóði Vesturlands. mm/amf Mærin helga tignuð með tónverkum Dagskrá tileinkuð Maríu Guðsmóður í Staðarhólskirkju Síðasta sumar fór fram messa í Staðastaðarkirkju í tengslum við pílagrímaför kaþólskra að Maríulind á Hellnum. Pílagríma- förin er farin um miðjan júlí ár hvert en Máríudægur, tónstund helguð hinni tignu mær, fer fram 5. júlí kl. 15. Tónlistarfólkið sem mun spila

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.