Skessuhorn


Skessuhorn - 24.06.2020, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 24.06.2020, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 24. JúnÍ 2020 23 í hita í nokkra daga,“ svarar Friðrik og grettir sig. „Það var líka ekkert hægt að fá sér ferskt vatn að drekka heldur var eina drykkjarvatnið soð- ið í stórum katli og allir gerðu sér te úr því. En þegar manni er svona heitt er ekki gott að drekka heitt svo ég var alltaf að reyna að kæla vatnið en það var varla hægt. Þetta var því alveg mjög sérstakt,“ segir hann. Blessun að vera ótengdur Hvernig var að vera svona alveg ótengdur umheiminum? „Ég dýrk- aði það og held að mig hafi vantað það á þessum tíma og ég er viss um að það hafi verið mesta blessunin við þessa ferð, að fá að vera þann- ig séð ekki til ef svo mætti segja,“ svarar hann. Í lestinni kynnt- ist Friðrik allskonar fólki, sum- ir stoppuðu stutt við en aðrir voru með honum í nokkra daga á ferða- lagi. „Flestir nota lestina bara fyr- ir hluta af leiðinni en sumir voru að fara lengri leið og þeim kynntist maður alveg ágætlega. Þarna voru allir í sömu stöðu, allir jafn ótengd- ir og engin sem komst í sturtu og allir sem sváfu og vöktu á und- arlegum tímum og svona. Mað- ur fór því bara að spjalla og kynn- ast,“ segir Friðrik en hluta af ferð- inni varði hann með hópi krakka á aldrinum 14-20 ára sem voru á tón- leikaferðalagi með tónlistarskólan- um sínum í Mongólíu. „Þetta var skemmtilegur hópur og kennarinn þeirra var rosalega flottur kall sem talaði þokkalega ensku og var mjög kammó. Þau fengu að geyma hljóð- færin sín í mínu herbergi því ég var einn í herbergi. Þau voru nátt- úrulega svo ung að þetta var engin djammferð hjá þeim en ég gat alveg fengið mér ef ég vildi. Kennarinn þeirra samdi þá við mig um að ef ég væri alveg viss um að þau væru orð- in 18 ára mætti ég bjóða þeim að drekka smá inni í herbergi hjá mér. Þetta spurðist strax út og það end- aði með að þau tróðust inn til mín þar sem var sungið og haft gam- an. Við drukkum ógeðslega áfenga hestamjólk og þau sungu lög sem voru eins og mongólska útgáfan af Rósinni eða eitthvað,“ segir Friðrik og hlær. Reynslunni ríkari Aðspurður segir Friðrik tímann í lestinni hafa verið langan en að hann hafi drepið tímann með að spjalla við fólkið og njóta þess að slaka á. „Við vorum mikið að spila með rússneskum spilum, ansi skrýtnum spilum þar sem ásinn var kannski bara rós eða eitthvað og tölurnar alveg út í hött og ég skildi ekkert. Það töluðu fáir ensku og við vor- um að reyna að spila eitthvað flók- ið spil og eitthvað rugl. Þetta gat verið mjög skrautlegt,“ segir hann og hlær. „En mér fannst þetta gott, ég gat aldrei bara átt svona róleg- ar stundir þegar ég var í Kína, þar var mikið áreiti og mikill hraði en þarna var það eiginlega ekkert. Þess vegna fór ég eiginlega í lestina, það var algjör andstæða og ég gat and- að og slakað á,“ heldur hann áfram. Spurður hvort hann hafi kynnt sér lestarferðina vel áður en hann fór af stað neitar hann því. „Ég var held ég bara í furðulegu skapi og þetta var í raun bara kjánaleg ákvörðun sem ég pældi ekkert í. Ég vissi bara hversu lengi ég væri á leiðinni og hvaða leið ég myndi fara og hvar ég myndi stoppa. En annars var ég ekki mikið að spá í þessu, fannst þetta bara eitthvað sniðugt,“ svar- ar hann. „Ég held að maður fái bara eitt tækifæri til að fara í svona ævin- týri og eg er þakklátur fyrir að hafa látið verða af þessu. Ég er allavega víðsýnni, upplifuninni ríkari og hef sögur að segja,“ segir Friðrik og brosir. Endar alltaf þar sem er vont veður Aðspurður segist hann hafa ferðast frekar mikið. „Allavega í saman- burði við aðra Lunddælinga,“ segir hann og hlær. Hann hefur bæði far- ið í ferðalög á sólarstrendur Spán- ar, eins og margir Íslendingar, en að auki hefur hann farið í óhefð- bundari ferðalög þar sem sólin læt- ur minna sjá sig. „Þegar ég ferðast einn enda ég alltaf þar sem veðrið er vont. Veðrið er alltaf það síðasta sem ég spái í þegar ég er að ákveða hvert mig langi að fara. Áður en ég fór til Kína var ég um tíma á Írlandi og það ringdi í mánuð eftir að ég kom þangað. Það var bara rok og rigning allan tímann en ótrúlega gaman samt og ég er heltekinn af þessu landi. Þegar ég kom svo með Síberíuhraðlestinni til noregs var ég í Bergen, sem er alræmdur stað- ur fyrir rigningu. Að sjálfsögðu rigndi þar í góðan mánuð eftir að ég kom. Svo er ég nýlega kominn úr skiptinámi frá Hollandi þar sem rignir ótrúlega mikið og þar er líka mikið rok. Ég viðurkenni að næst væri ég alveg til í að kíkja á sól- ina,“ segir hann og brosir. Þá seg- ist hann ætla að ferðast um Ísland í sumar, eins og svo margir Íslend- ingar. „Ætli það sé ekki komið að því að kynna sér Ísland. Ég hef ekki komið sem fullorðinn á Austurland svo það er eins og útlönd fyrir mér, og þar er líka alltaf gott veður. Ætli ég verði ekki að kíkja þangað,“ seg- ir hann. Hélt að væri rugl í kennslukerfinu Þegar Friðrik sá fyrst einkunnina fyrir lokaritgerðina sína í BA nám- inu hélt hann að um rugl í kennslu- kerfinu væri að ræða. „Stundum fær maður bara „staðið“ eða „fallið“ og ég hélt þetta væri í raun bara staðið og rétt einkunn ætti eftir að koma svo ég beið bara rosa spenntur. Svo sé ég lítið viðhengi þar sem kom fram að þetta væri bara einkunnin og ég fékk bara hláturskast,“ seg- ir Friðrik sem fékk tíu í einkunn. „Ég bjóst ekki við þessu. Ég var vissulega ánægður með niðurstöð- una sem ég fékk í ritgerðinni en var samt svo upptekinn af því sem ég myndi vilja gera betur næst svo mér datt ekki í hug að ég myndi fá hærri einkunn en átta,“ segir hann. En hvers vegna heldur hann að þessi ritgerð hafi fengið tíu? „Ég myndi halda að það sé bara því ég var með góða spurningu sem skiptir máli í dag og tímasetningin á ritgerðinni er góð. Ég ætlaði að tímasetja rit- gerðina fyrir Brexit, en það átti að gerast fyrir nokkrum mánuðum svo það var erfitt. En svo vegna Covid er Brexit allt frosið og ég náði að skila ritgerðinni rétt áður en það fer allt af stað, sem var bara heppni fyrir mig,“ svarar hann. Er Brexit lögmætt? Í BS ritgerðinni á Bifröst leitaðist Friðrik við að kanna lögmæti Brexit í lagalegum skilningi í ljósi stjórn- arstrúktúrs Bretlandseyja og rétt- lætingu Brexit í heimspekilegum skilningi. „Aðal þing alls Bretlands er í Westminster en svo eru smærri þing í Skotalndi og Wales, þetta eru eiginlega eins og lítil lönd inni í landi. Skotar eru til dæmis með eig- ið heilbrigðiskerfi. En það er mjög ójafnt hvernig valdið skiptist nið- ur í Bretlandi. Kerfið þeirra hefur þróast mjög hægt og það er í raun enginn lagagrunnur eins og stjórn- arskrá heldur eru bara sett lög yfir lög sem gerir þetta að eiginlega bara lagasúpu. Svo er Brexit eitthvað fyrirbæri sem í einföldu máli þýðir að eitthvað muni breytast hjá þeim en það segir í raun ekkert hverjar breytingarnar verða, sem stang- ast mikið á við þeirra strúktúr. Ég skoðaði hvort Brexit væri löglegt í ljósi ókláraðra mála og til dæmis hvaða réttindi Skotar hafa í þessu öllu, en þeir kusu að vera áfram í Evrópusambandinu. Svo skoðaði ég áhrifin sem Brexit hefur á Írland og norður Írland og þeirra sam- band varðandi Föstudagssáttmál- ann. En það er enn í fullum gangi ákveðin friðarprósess á Írlandi sem Brexit gæti ógnað,“ útskýrir Frið- rik. Hann komst að þeirri niður- stöðu að Brexit væri í raun löglegt fyrir utan að það brýtur Föstudags- sáttmálann því það er samning- ur milli landa. „Föstudagssáttmál- inn er samningu Bretlands við Ír- lands og fellur hann þá ekki beint undir bresk lög. En fyrir utan það stangast Brexit ekki beint á við lög í Bretlandi. Þetta er samt rosalega flókið, Skotar til dæmis hafa ekki nein ákveðin réttindi þegar kemur að svona samningum því þeir heyra bara undir Bretland og þó lögin séu bara í einni súpu og eitthvað gæti stangast á við ákveðin lög þá hefur þingið í Westminster rétt á að gera undantekningar þegar sérstakar að- stæður eru, sem Brexit er vissulega. En málið er að stærsta landið innan Bretlands, England, hefur öll völd- in því þar er tekin ákvörðun um hvenær þessar undantekningar eiga við. Skotar hafa í raun engin völd þannig séð.“ Engin hrein niðurstaða En hver var þá niðurstaða ritgerð- arinnar? „Í stuttu máli er Brexit lögmætt enda er engin stjórnar- skrá sem ver réttindi allra í Bret- landi. En á varðandi réttlætingu Brexit á heimspekilegum grunni er spurning hvort brotið sé til dæm- is á rétti Skota. Ef við horfum á þjóðaratkvæðagreiðsluna laut hún ekki sömu reglum og aðrar sam- bærilegar atkvæðagreiðslur í land- inu. Eins og þegar Skotar kusu um að fá þing árið 1979 stóðst það ekki því kosningaþátttakan náði ekki 40% þeirra sem voru á kjör- skrá og það er lágmarkið til að at- kvæðagreiðslan sé gild. En varð- andi Brexit náði þátttakan ekki 40% en samt er talað um að þetta sé vilji þjóðarinnar, sem er líka sérstakt því niðurstaðan var ekki einu sinni svo afgerandi. Þjóðarat- kvæðagreiðslan var líka aldrei sögð eiga að vera bindandi en núna er talað um þetta eins og bindandi kosningu,“ svarar hann og bætir við að niðurstaða ritgerðarinnar sé í raun að það er engin hrein nið- urstaða. „Það er klárt mál að það vantar stjórnarskrá í Bretlandi. Lagagrunnurinn eða „stjórnar- skráin“ þeirra innan gæsalappa grefur undan strúktúrnum í land- inu og strúktúrinn grefur undan Brexit og Brexit grefur svo undan „stjórnarskránni þeirra“ og svona fer þetta bara í hringi,“ útskýrir Friðrik Þórsson að endingu. arg/ Ljósm. úr einkasafni Gyllta Hofið í Gandan – Ulaanbaatar. Síberíska sveitin. Sléttur Mongólíu. Díki í Zhujiajiao fyrir utan Shanghæ. Miðbær Shanghæ, svokallað Bund. Gandantegchenling klaustrið í Ulaanbaatar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.