Skessuhorn


Skessuhorn - 24.06.2020, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 24.06.2020, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 24. JúnÍ 202010 Laugardaginn 20. júní útskrifaði Vilhjálmur Egilsson rektor Háskól- ans á Bifröst 102 nemendur við há- tíðlega athöfn. nemendahópurinn samanstóð af nemendum úr við- skiptadeild, félagsvísinda- og laga- deild og Háskólagátt. Þetta var síð- asta útskrift Vilhjálms sem rektor við skólann en hann hefur gegnt því starfi frá 2013. Hátíðin markaði því ákveðin tímamót fyrir skólann, en Margrét Jónsdóttir njarðvík tekur við sem rektor nú í sumar. Í fararbroddi í fjarnámi Í útskriftarræðu sinni talaði Vil- hjálmur sérstaklega um þær undar- legu aðstæður sem sköpuðust í há- skólasamfélaginu vegna Covid 19 faraldursins í vetur og þá einstöku stöðu sem Háskólinn á Bifröst var í. „Háskólinn á Bifröst er vissulega í fararbroddi í fjarnámi núna með- al íslenskra háskóla. Við byggjum fjarnámið upp á eigin forsendum en erum ekki að reyna að flytja út skólastofuna. Við reynum að haga fjarnáminu þannig að nemandinn geti lært óháð stað og óháð tíma. Þetta er okkar forskot. Við feng- um sannarlega staðfestingu á for- ystu okkar í fjarnáminu í Covid 19 ástandinu í mars og apríl. Skóla- starfið hjá okkur gekk hnökralítið fyrir sig. Ekki þurfti að gefa afslátt af neinum kröfum. Aðrir skólar þurftu að reyna að nálgast það sem við erum að gera.“ Síðasta útskrift Vil- hjálms sem Rektors Þar sem Vilhjálmur er nú að kveðja skólann líkt og 102 útskriftarnemar kom hann víða við í ræðu sinni. „Sjö ára tími minn hér í skólanum hefur verið góður kafli í lífi mínu. Fyrstu árin voru miklir erfiðleikar. Rekst- urinn var þungur vegna mikils nið- urskurðar á framlögum ríkisins og afskrifta á útistandandi kröfum frá fyrri árum. En með áræðni, þraut- seigju og samstöðu tókst okkur að snúa rekstrinum og þróun skólans okkur í vil. Starfsfólk skólans gerði meira en skyldan bauð. Háskól- inn á Bifröst er orðin sterk stofn- un með mikil tækifæri og stendur nú á stökkpalli inn í framtíðina.” Það er því óhætt að segja að aukinn hatíðarljómi hafi legið yfir athöfn- inni á laugardaginn í tilefni þessa tímamóta. Vilhjálmur hefur unnið mikið starf fyrir skólann, á erfiðum tímum, og skilur við skólann með mesta fjölda nemenda og umsókna sem sést hefur á Bifröst. Verðlaun og útskriftarræður útskriftarverðlaun í grunnnámi hlutu Gísla Gamm úr viðskipta- deild og Friðrik Þórsson úr félags- vísinda- og lagadeild. Í meistara- námi hlutu útskriftarverðlaun þau Eva Hrund Einarsdóttur viðskipta- deild og Finnur Bjarnason, félags- vísinda- og lagadeild. útskriftar- verðlaun í Háskólagátt hlaut Hauk- ur Þór Sigurbjörnsson. Að auki fengu tveir nemendur felld nið- ur skólagjöld á haustönn vegna framúrskarandi námsárangurs, þau Bjarni Heiðar Halldórsson, við- skiptadeild og Líney Lilja Þrastar- dóttir. félagsvísinda- og lagadeild. Ræðumaður fyrir hönd grunn- nema viðskiptadeildar var Thelma Dögg Harðardóttir og fyrir hönd grunnnema félagsvísinda- og laga- deildar Kristófer Kristjánsson. Fyr- ir hönd meistaranema í viðskipta- deild flutti Monika Katarzyna Wa- leszcynska ávarp og Arnhildur Ásdís Kolbeinsdóttir fyrir hönd meistara- nema í félagsvísinda- og lagadeild, þá flutti Sigrún María Grétarsdótt- ir ræðu fyrir hönd háskólagáttar- nema. Karlakórinn Söngbræður und- ir stjórn Viðar Guðmundssonar sá um söngatriði við útskriftina við undirleik Birgis Þórissonar. Að at- höfn lokinni þáðu gestir léttar veit- ingar. mm/te Bændur víða um vestanvert land- ið byrjuðu slátt á þurrkdögunum í vikunni sem leið. Spretta er al- mennt að verða nokkuð góð og því ekkert því til fyrirstöðu að byrja að afla góðrar töðu. Samhliða því að tæki til sláttar og heyverkunar verða tæknivæddari og stórvirkari er algengt að bændur slái tún sín tvisvar eða jafnvel þrisvar yfir sum- arið og hámarka þannig fóðurgild- ið. Á meðfylgjandi mynd var Pét- ur Diðriksson bóndi á Helgavatni að hefja slátt í síðustu viku. Sláttu- breiddin á þessum búnaði er 8,5 metrar og er því hægt að slá um tíu hektara á klukkustund ef hrað- inn er 15 km. Ef allir 120 hektar- ar Helgavatnstúna væru slegnir í einni beit tæki það 12 klukkustund- ir. Til gamans má geta þess að fyr- ir til þess að gera fáum áratugum var sláttubreidd algengra sláttu- véla í eigu bænda einungis 1,35 eða 1,65 metrar. Afkastagetan hef- ur því margfaldast samhliða bætt- um tækjakosti. Helgavatnsbændur verka heyið í flatgrifjum og setja auk þess í útistæður. Spara með því háar fjárhæðir í plasti í samanburði við þá sem verka í rúllur eða stór- bagga. mm/ Ljósm. kh. Kristján Þór Júlíusson landbún- aðarráðherra og Guðfinna Harpa Árnadóttir, bóndi á Straumi í Hró- arstungu og formaður Landssam- taka sauðfjárbænda, hafa undirrit- að samkomulag um tilraunaverk- efni um heimaslátrun. „Markmið verkefnisins er leita leiða til þess að auðvelda bændum að slátra sauðfé heima til markaðssetningar þann- ig að uppfyllt séu skilyrði reglu- verks um matvælaöryggi og gætt sé að dýravelferð og dýraheilbrigði. Þannig er leitast við að bæta af- komu sauðfjárbænda, stuðla að bættri dýravelferð og sterkari teng- ingu á milli neytenda og íslenskra frumframleiðenda matvæla,“ segir í tilkynningu. Tillögur að fyrirkomulagi verkef- nisins voru unnar af aðgerðahó- pi sauðfjárbænda um heimaslátrun í samstarfi við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Ráðuneytið fer með stjórn verkefnisins og mun taka saman niðurstöður við lok þess. Auglýst verður eftir þátttak- endum á næstu dögum en áætlað er að sláturdagsetningar liggi fyrir í lok ágúst og að niðurstöður verkef- nisins liggi fyrir í árslok. Fyrirhugað er að bændur framkvæmi heimas- látrun sjálfir á bæjunum og opin- bert eftirlit verði framkvæmt af dýralæknum á vegum Matvælastof- nunar. Kjöt af gripum sem slátrað verður í tilraunaverkefninu verður ekki selt. mm Tilraunaverkefni um heimaslátrun Sláttur er nú víða að hefjast Vilhjálmur Egilsson rektor kveður nú skólann því Margrét Jónsdóttir Njarðvík tekur við starfi rektors í sumar. Brautskráning frá Háskólanum á Bifröst

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.