Ægir - 2019, Side 10
10
Aflaskipið Þórunn Sveinsdóttir VE er
komið til Danmerkur þar sem það
verður lengt. Togarinn var smíðaður í
sömu stöð í Skagen í Danmörku og af-
hentur árið 2010. Sigurjón Óskarsson,
útgerðarmaður, segir að með lenging-
unni fáist verulega stærra lestarrými
og það geri meðal annars að verkum
að hægt verði að lengja veiðiferðir.
„Skipið verður lengt um 6,6 metra og
kemur lengingin aftarlega á lestina
þannig að við fáum talsvert meira lest-
arrými að þessum breytingum loknum.
Og um leið fáum við meira rými á milli-
og togdekkum,“ segir Sigurjón. Aðspurð-
ur segir hann þetta verkefni hafa átt sér
nokkurn aðdraganda.
„Skipið fór í slipp í maí í fyrra og þá
varð óhapp þess valdandi að gat kom á
byrðinginn. Í september kom svo í ljós að
gera þyrfti betur við þessa skemmd og
skoða afleiðingar hennar. Það ýtti okkur
áfram með þá hugmynd að nota tæki-
færið í leiðinni og ráðast í að lengja skip-
ið. En við fáum talsvert meira skip að
þessu loknu, komum 560 körum í lestina í
stað 360 áður,“ segir Sigurjón en danska
skipasmíðastöðin áformar að ljúka verk-
inu um miðjan júní, jafnvel eitthvað fyrr
ef vel gengur.
„Við erum líka með fiskverkun og
þurfum að fá hráefni í hana á meðan á
breytingunum stendur. Það leystum við
með því að taka togarann Bylgju VE á
leigu í tvo mánuði þannig að hráefnisöfl-
unin er tryggð meðan á lengingu Þór-
unnar stendur.“
Merkilega gott fiskirí
„Fiskiríið að undanförnu hefur verið
ótrúlega gott og verið óvanalega góðar
gæftir í vetur. Miðað við þennan árstíma
er alls ekki hægt að kvarta. Ég hef oft í
gegnum tíðina upplifað mun verra veð-
urlag á þessum vetrarmánuðum,“ segir
Sigurjón.
Með lengdri Þórunni Sveinsdóttur
verður hægt að breyta róðarfyrirkom-
laginu, að sögn Sigurjóns. Landanir
skipsins hafa að jafnaði verið tvær í
viku en áætlað er að landa einu sinni í
viku eftir lengingu. Frá því skipið kom
árið 2010 hefur það verið afar aflasælt
og skilað rúmlega 40.000 tonnum á land.
„Sannast sagna er ég alveg hissa á
því hversu gott fiskiríið var í vetur og til
dæmis góð veiði á ýsu sem er okkur mik-
ið fagnaðarefni. Ýsugengd hér fyrir
sunnan landið hafði minnkað verulega á
síðustu árum og verið rætt um að stofn-
inn sé að færa sig norður fyrir land. Við
gleðjumst því yfir að sjá aukningu á
henni hér á suðursvæðinu á nýjan leik,“
segir Sigurjón. Aflamark Þórunnar
Sveinsdóttur VE í ýsu nemur 975 tonn-
um. Heildaraflamark skipsins á yfir-
standandi fiskveiðiári er tæplega 5.500
tonn.
Veiðigjöldin eru yfirdrifin
skattheimta
Mikið hefur verið rætt um stöðu smærri
útgerða að undanförnum, ekki hvað síst
í tengslum við breytingar á veiðileyfa-
gjöldum en talað var um við breytingar
gjaldanna á Alþingi að þau hafi verið
minni útgerðum afar þung. Sigurjón seg-
ir það rétt.
„Gjöldin hækkuðu mjög hratt og við
höfum þurft að greiða um 110 milljónir
króna árlega síðustu ár. Það er mjög
þungur skattur og er sannarlega skattur
sem leggst af fullum þunga á lands-
byggðina. Mér hefur þótt þetta yfirdrifin
skattheimta sem við finnum verulega
fyrir í rekstrinum. Ég er ekki farinn að
sjá ennþá hvernig þetta kemur út eftir
breytingar á lögunum í lok síðasta árs
en þarna hefur verið vel í lagt að und-
anförnum, svo vægt sé til orða tekið,“
segir Sigurjón.
Þórunn Sveinsdóttir VE
lengd í Danmörku
hefur skilað yfir 40 þúsund tonnum á land á rúmum 8 árum
■ Sigujón Óskarsson, útgerðarmaður, segir fiskirí og gæftir
hafa verið með besta móti að undanförnu. Aukin ýsuafli
fyrir suðurströndinni sé sérstakt gleðiefni.
■ Vel hefur aflast á Þórunni Sveinsdóttur VE frá því skipið
kom nýtt frá Danmörku árið 2010. Með lengingu um 6,6
metra verður hægt að koma rúmlega 50% fleiri kerum í
lest, eða alls 560. Myndir: Óskar P. Friðriksson
Fiskiskip