Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Blaðsíða 20

Ægir - 2019, Blaðsíða 20
20 „Við höfum verið að leggja áherslu CoolSeal kassann sem nýja lausn fyrir flutning á ferskum fiski í stað frauð- plastsins. Kassinn er úr 100% endur- vinnanlegu efni og hefur vakið áhuga fiskframleiðenda bæði hér á landi og erlendis. Sem dæmi fékk kassinn mjög góðar viðtökur á sjávarútvegssýning- unni í Boston nú í mars,“ segir Brynj- ar Viggósson, framkvæmdastjóri sölu- sviðs Samhentra. Fyrirtækið sérhæfir sig í umbúðalausnum og á einnig dótt- urfélagið Vörumerkingu sem sérhæfir sig í framleiðslu límmiða, stafrænni prentun, áprentuðum plastfilmum, ál- lokum og álfilmum hvort heldur er fyrir sjávarútveg, annan matvælaiðn- að eða aðrar atvinnugreinar. Umtalsverður sparnaður í flutningskostnaði Samhentir hafa samstarf við innlenda fiskframleiðendur um prófanir á CoolSeal kassanum. Kassinn er framleiddur úr po- lypropylene efni og hentar bæði til flutn- ings á ferskum og frosnum afurðum. Auk þess að vera að fullu endurvinnanlegt er efnið í kassanum 100% vatnshelt, kass- inn heldur lögun sinni vel og er saman- brjótanlegur sem sparar mikið í kostnaði við flutning umbúðanna til matvæla- framleiðenda. „Við skynjum að margir útflytjendur Samhentir ehf. Umhverfisvænn CoolSeal kassi til flutnings á ferskum fiski ■ Brynjar Viggósson, framkvæmdastjóri sölusviðs Samhentra, með CoolSeal kassann sem er lausn fyrir útflutning á ferskum fiski.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.