Ægir - 2019, Blaðsíða 16
16
„Við erum öll að læra og kynnast gjör-
breyttu umhverfi í vinnslunni. Það
má segja að allir séu í öðruvísi starfi
en þeir voru áður, sérstaklega í
vinnslunni sjálfri en breytingarnar ná
til allra starfsmanna í húsinu. Að
sjálfsögðu eru þetta mjög spennandi
vikur, því er ekki að neita,“ segir Rósa
Guðmundsdóttir, framleiðslustjóri G.
Run sem gaf sér stund frá annríkinu
til að ræða breytingarnar og áskoran-
ir í þeirri hátækni fiskvinnslu sem
fyrirtækið hefur nú tekið í notkun.
„Ef ég horfi yfir sviðið í þessum
breytingum þá finnst mér að sá mikli
fjölbreytileiki sem er á öllum sviðum
vera stærsti ávinningurinn. Hvort held-
ur við erum að tala um breytt störf, fjöl-
breyttari afurðir, svör við kalli kaupenda
eða aðra þætti breytinganna. Við erum
að detta inn í nútímann í fiskvinnslu,
kveðja erfiðustu störfin og hlú að starfs-
umhverfinu,“ segir Rósa.
Inn í nýjan heim í einu stökki
„Flestir sem hafa gengið í gegnum stórar
breytingar í hliðstæðum fiskvinnslum
hafa tekið breytingarnar í áföngum en
hjá okkur má segja að við höfum klippt á
gömlu vinnsluna og síðan sett þá nýju í
gang nokkrum vikum síðar. Síðasti
vinnsludagur í gamla húsinu var 9. nóv-
ember og fyrstu prufukeyrslur í nýja
húsinu hófust síðustu dagana í janúar.
Ég hef grínast með að það sem er „gam-
alt“ hér í vinnslunni eru flökunarvélar
sem við áttum fyrir og svo við sjálf,
starfsfólkið! Og við erum jú ennþá í
Grundarfirði og heitum G.Run eins og
áður. Allt annað er glænýtt,“ segir Rósa
og hlær. Fyrir framleiðslustjóra eins og
hana hlýtur að vera spennandi að takast
á við gjörbreytt vinnsluumhverfi sem
býður upp á bitaskurð, afurðavinnslu í
fersku sem frystu og mikla tæknivæð-
ingu á öllum sviðum.
„Já, því er ekki að neita. Við vorum
áður frekar einsleit fiskvinnsla hvað af-
urðaframleiðslu varðar og því er það
mikil kúvending í hugsun fyrir okkur öll
að vera komin með þessa tækni og
möguleika. Afurðirnar sem við komum
nú til með að vinna verða nýjar,
vinnslutæknin allt öðruvísi, sem og allir
ferlar. Ég sé fram á að við gætum verið
að vinna allt að 20 framleiðslunúmer á
dag, sagt þó með þeim fyrirvara að við
erum bara rétt að byrja og sjáum ekki að
fullu ennþá hvað við getum gert. Það
ánægjulega er að geta betur orðið við
óskum markaðarins og viðskiptavina um
vörur. Út á það gengur þetta allt saman.
Í dag vilja kaupendur fá meira skorið
niður og nákvæmari stærðir og þyngd á
bitum í sama flokki. Þetta er eitthvað
sem mannshöndin getur ekki gert af
þeirri nákvæmni sem vatnsskurðarvél-
arnar gera fyrir okkur. Út frá fyrstu vik-
unum í vinnsluprófunum hef ég komist
að þeirri niðurstöðu að líklegast er
Inn í nútímann
í fiskvinnslu
Rósa Guðmundsdóttir, framleiðslustjóri G.Run, segir mikla áskorun fyrir
alla starfsmenn að læra á nýja tækni og gjörbreytt vinnuumhverfi
■ Sjálfvirknin í nýja húsinu víkur erfiðustu störfunum til
hliðar.
■ Gæðaeftirlit og snyrting á karfaflökum.