Ægir - 2019, Blaðsíða 31
31
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100 Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík
markmiðið er að varðveita gæði hágæða
matvæla, líkt og á við um íslenskar fisk-
afurðir. Umbúðirnar þurfa bæði að halda
kælingu á afurðunum, vera nógu sterkar
til að þola flutning, stöflun og meðhöndl-
un, halda löguninni og þannig má áfram
telja. Öllu þessu má treysta þegar frauð-
kassarnir eru annars vegar en þess utan
þá má nefna mikilvægar staðreyndir líkt
og þá hversu létt frauðið er. Það skiptir
auðvitað máli í flutningum og kolefnis-
spori sem þeir hafa í för með sér,“ segir
Haukur.
Vegna umhverfisumræðunnar um
umbúðaframleiðslu segir hann einnig
vert að benda á að frauðkassarnir eru
framleiddir hér á landi með endurnýjan-
legum íslenskum orkugjöfum, raforku og
heitu vatni. „Þar sem frauð er 98% loft er
kolefnisspor vegna hráefnisflutninga til
landsins lítið og allt skiptir þetta máli í
heildarmyndinni.“
Endurvinnslumöguleikar stöðugt
að aukast
Mikil umræða er um endurvinnslumögu-
leika plasts almennt og undirstrikar
Haukur að frauðið sé endurvinnanlegt
og endurunnið. Í Evrópulöndum, þangað
sem frauðkassarnir með íslensku fiskaf-
urðunum fara í stórum stíl, séu til staðar
sérhæfðir ferlar í endurvinnslu um-
búðanna.
„Það er undir hverjum og einum kom-
ið að skila umbúðum í endurvinnslu-
ferla, hvernig svo sem þær umbúðir eru.
Áhuginn á endurvinnslu er að aukast og
þar gerir að verkum að æ fleiri endur-
vinnsluferlar verða til. Það eru líka kom-
in af stað verkefni sem miða að því að
endurvinna frauðið þannig að hægt sé
að vinna aftur úr því frauð en algengast
er í dag að frauðið sé endurunnið í aðrar
plastvörur. Lykilatriðið í þessu er hvað
kaupandinn gerir við umbúðirnar, hvort
hann skilar þeim í endurvinnsluferla eða
ekki. Umbúðir fyrir ferskan fisk eru ólík-
ar hefðbundnum neytendaumbúðum og
öðru plasti að því leyti að einfaldara er
að halda utan um og setja umbúðirnar í
endurvinnslu þar sem þær fara frá einu
fyrirtæki til annars heldur en umbúðir
af smásöluvörum sem seldar til einstakl-
inga. Þar liggur stóri vandinn þegar
rætt er um plast almennt. Sá aukni áhugi
sem er á endurvinnslu mun vonandi
leiða til þess að á endanum verði allt
frauð endurunnið og endurnýtt, það yrði
öllum til hagsbóta,“ segir Haukur.
Borgarplast framleiðir sem kunnugt
er frauðeinangrun fyrir byggingariðnað,
auk þess að vera stór aðili í framleiðslu á
kerjum fyrir sjávarútveg og annan mat-
vælaiðnað. Gott dæmi um endurvinnslu
frauðs sem nú þegar er hafin hjá fyrir-
tækinu er að Borgarplast er nú með til
prufu að taka það frauð sem fellur til úr
umbúðum utanum um tölvubúnað sem
fyrirtækið Opin kerfi flytur inn. Það
frauð er Borgarplast að endurvinna og
notar í vörur til húseinangrunar.
Fiskvinnslan
■ EPS frauðkassi frá Borgarplasti.