Ægir - 2019, Blaðsíða 34
við þurfum því miður ekki að fara langt
út til Evrópu til að sjá slæm gæði á hvít-
fiskafurðum, sem eru öllum skaðleg.
Ungt fólk sem kaupir vondan hvítfisk er
ekki líklegt til að kaupa slíka vöru aftur
og því eigum við mikið undir að almenn
gæði hvítfisksins í samkeppninni um
neytendur séu góð.“
Kristján segir að kæling afla strax úti
á sjó leggi grunn að afurðagæðum og
lengri hillutíma ferskra afurða en hann
leggur ekki síður áherslu á að styttri
togtími leiki stórt hlutverk.
„Þetta tvennt þarf að fara saman,
minni hol og aflakælingin. Hvort tveggja
hefur tekið miklum breytingum hjá okk-
ur, bæði með betri búnaði til að kæla
aflann og breyttri hugsun um styttri
togtíma, minni hol og þar með betri með-
ferð afla. Þessi atriði rekja sig í gegnum
alla virðiskeðjuna og eru í raun forsenda
þess að nýta til fulls þá tækni sem við
erum að bjóða í fiskvinnslunum og há-
marka þannig afurðaverðmæti,“ segir
Kristján.
Sölustarf hefst strax við veiðar
Meðal þróunarverkefna sem Valka
vinnur nú að er hugbúnaður til skrán-
ingar á afla úti á sjó þar sem skráðar eru
í kerfi samhliða veiðum upplýsingar um
t.d. stærðarflokka á fiski. Þessar upplýs-
ingar liggja þannig strax fyrir í landi og
nýtast fyrir sölu og undirbúning vinnsl-
unnar þegar aflinn kemur í land. „Þessi
hugmynd gengur þannig út frá að í sölu-
starfinu sé tekið mið af því hvað er að
berast frá miðunum til vinnslu. Selja
með öðrum orðum réttu vöruna á rétt-
um tíma. Fyrir vinnsluna sjálfa er þetta
líka lykilatriði í því að nýta aflann með
bestum hætti hverju sinni. Og fá þannig
alltaf mestu verðmætin. Þetta er eitt
dæmi af mörgum um að alltaf er hægt að
gera betur og finna leiðir til þess,“ segir
Kristján.
Vilji íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja
til að prófa nýjar tæknilausnir er og hef-
ur verið mikill og það segir Kristján
leggja grunninn að tækniþróuninni.
„Þetta er ein af ástæðum þess hversu
framarlega við stöndum á heimsvísu í
fiskiðnaði. Tæknibúnaðurinn er vissu-
lega dýr og kannski ekki á færi nema
stærri fyrirtækja sem hafa mikið magn
að baki sér en við sjáum líka minni
vinnslurnar sérhæfa sig meira og finna
sér þannig leiðir út á markaðinn. Síðan
má einnig velta fyrir sér hvort við séum
ekki komin að þeim tímapunkti að breyta
vinnutímafyrirkomulagi í fiskvinnslunni,
fjölga vöktum og fá þannig meiri nýt-
ingu á búnaðinn. Á þessu sviði, eins og
svo mörgum öðrum í fiskiðnaði nú-
tímans, eru tækifæri í framtíðinni.“
34
■ Vatnsskurðarvélarnar hafa ekki aðeins opnað nýja möguleika í bitaskurði
heldur einnig stóraukið vinnslugetu húsanna.
■ Tæknin gerir að verkum að hægt er að mæta enn betur fjölbreyttari þörfum
viðskiptavina fyrir bitastærðir.
Fiskvinnslubúnaður í smíðum hjá Völku.