Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Blaðsíða 32

Ægir - 2019, Blaðsíða 32
32 Hátæknifyrirtækið Valka ehf. sem sérhæfir sig í þróun, hönnun og fram- leiðslu vél- og hugbúnaðar fyrir fiskvinnslu er þessa mánuðina að vinna að sínum stærstu verkefnum hingað til á þessu sviði. Það stærsta er hönnun, framleiðsla og uppsetning búnaðar fyrir nýja bolfiskvinnslu Samherja hf. á Dalvík sem markmiðið er að verði sú tæknivæddasta hér á landi og þó vítt um heim sé leitað. Stefnt er að því að hefja uppsetningu búnaðar í september og að hún verði tilbúin í upphafi næsta árs. Hitt verkefnið er hönnun og upp- setning á nýrri bolfiskvinnslu fyrir Murman Seafood í Múrmansk í Rússlandi sem verður ein sú tæknivæddasta þar í land. Virði þessara tveggja verkefna- samninga nemur hátt í þremur milljörðum króna. Í báðum tilfellum verða vinnsluhúsin sjálf byggð ný frá grunni en vinnsla í húsinu í Múrmansk á að hefjast síðsumars. Kristján Hallvarðsson, sviðsstjóri sölusviðs Völku ehf. seg- ir að í þessum verkefnum sé fyrirtækið að stíga skref í fjórðu iðnbyltingunni þar sem sjálvirkni verði meiri en áður hafi sést í fiskvinnslu. Störfin breytast - afköst aukast „Til viðbótar við þessi verkefni þá höfum við nýlokið stóru verkefni hjá Útgerðar- félagi Akureyringa. Þar settum við upp skurðarvél og bitaflokkara fyrir fjórum árum auk sjálfvirkra pökkunarflokkara en núna var bætt við tveimur skurðar- vélum, þremur snyrtilínum og þremur bitaflokkurum. Heildarlausnin í vinnslu ÚA er því að þessu loknu orðin mjög full- komin en í nýja húsinu hjá Samherja á Dalvík getum við sagt að komi enn ný kynslóð tæknivæðingar frá okkur. Þar förum við á næsta stig í sjálfvirkni, möguleiki verður á vinnslu í fleiri af- urðanúmerum samhliða en í heild verð- ur meiri sjálfvirkni á færslu bita frá skurðarvélum og bitaflokkurum að þess- um þremur afurðastöðvum, þ.e. í ferskar afurðir, pökkun í lofttæmdar umbúðir eða í frysta bita,“ segir Kristján en með- al þeirra tæknilausna sem eru að koma fram í þessari kynslóð vélbúnaðar er sjálfvirk innmötun á lausfrysta. „Þegar við flokkum bitana í vinnslu- rásir eftir stærðum eða gerðum verður mögulegt að raða sjálfvirkt inn á laus- frysta án þess að mannshöndin þurfi að koma nærri nema að mjög litlu leyti mið- að við það sem þekkst hefur. Að sama skapi verður síðan einnig meiri sjálf- virkni í afurðalínunum eftir lausfryst- ingu að pökkun þannig að störfin eru klárlega að breytast hratt samhliða sjálf- virknivæðingunni. Einhæfu störfin eru að hverfa í fiskvinnslunni en reynsla okkar er sú að það er ekki sjálfgefið að þetta þýði fækkun starfsfólks heldur fyrst og fremst breytingu á störfum. Tækniþróunin er að skapa nýjar vörur og tækifæri rætt við Kristján Hallvarðsson, sviðsstjóra sölusviðs Völku ehf. um tækniþróun og möguleika í hvítfiskvinnslunni ■ Röntgentæknin og vatnsskurður hafa gjörbreytt fiskvinnslunum.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.