Ægir - 2019, Page 26
26
Vísir hf. í Grindavík er eitt
þeirra sjávarútvegsfyrir-
tækja sem hefur tekið
tæknina í sína þjónustu í
samvinnu við Marel og ár-
angurinn hefur ekki látið á
sér standa. Skurðarvélar af
gerðinni Flexicut frá Marel
voru fyrsta skrefið í upp-
byggingu tæknivæddrar nú-
tíma fiskvinnslu, sérstök
gæðaskoðunarlína, Innova
upplýsinga- og skráningar-
kerfi og loks pökkunarróbóti
frá Marel hafa leitt til þess
að afköst hafa tvöfaldast og
nú tæki það vinnsluna ekki
nema tvo daga að framleiða
fiskmáltíð fyrir hvert
mannsbarn á Íslandi.
Aflinn stærðarflokkaður
um borð í Sighvati
Ægir leit við hjá Ómari Enoks-
syni yfirmanni tækniþróunar
hjá Vísi og fór yfir gang mála
hjá þeim. Við byrjuðum á veið-
unum. Vísir gerir út fimm
stóra línubáta og tvær trillur.
Sú nýjung er í einum af línu-
bátunum, Sighvati GK, að afl-
inn er stærðarflokkaður um
borð. Fiskurinn kemur því
flokkaður í land.
„Við getum tengt okkur um
borð og séð hvað hann er að
fiska, við sjáum þyngdardreif-
inguna á fiskinum, lengd og
margt fleira. Fyrir vikið get-
um við látið söludeildina okk-
ar fá þessar upplýsingar til að
vinna úr. Sem dæmi um gang
mála má nefna að Sighvatur
fer á sjó í dag. Hann byrjar að
draga á morgun. Hann kemur
í land eftir fimm til sex daga.
Eftir tvo daga getur söludeild-
in fengið upplýsingar um
samsetningu aflans og byrjað
að selja afurðirnar því það er
vitað hvað er að koma í land.
Hinir bátarnir koma með
Tæknin
tvöfaldar
afköstin
Vísir hf. í Grindavík tekur í notkun róbóta
við pökkun á ferskum fiski
■ Ómar Enoksson yfirmaður tækniþróunar hjá Vísi er ánægður með ávinninginn af tæknivæðingunni en telur að enn sé
hægt að gera betur.