Ægir - 2019, Page 16
16
Grásleppuvertíðinni í ár
lauk 12. ágúst, þegar veiðum
við innanverðan Breiðafjörð
var lokið. Veiðarnar gengu
almennt vel. Aflinn varð
4.952 tonn sem er 500 tonn-
um meira en á síðustu ver-
tíð. Góð hækkun varð á
verði til grásleppukarla milli
ára, hvorki meira né minna
en 40%.
Kvótasetning í farvatninu
„Þetta var alveg ágætt ár hjá
grásleppukörlum. Bátarnir nú
voru 240 en voru 222 í fyrra.
Lengd vertíðarinnar var sú
sama í ár og í fyrra, 44 dagar.
Við fórum fram á það við
ráðuneytið að gerðar yrðu
breytingar á veiðifyrirkomu
laginu fyrir þessa vertíð. Bæði
að það mætti sameina leyfi og
að taka mætti upp veiðarfæri
á vertíðinni án þess að fjöldi
veiðidaga skertist. Því miður
varð ráðuneytið ekki við
þeirri beiðni og þess vegna
var fyrirkomulagið það sama
og undanfarin ár. Síðan hefur
sjávarútvegsráðherra lagt
fram drög að frumvarpi inn á
sarmráðsgátt stjórnvalda.
Hann mun þá væntanlega
leggja fram frumvarp í haust
sem meðal annars felur í sér
kvótasetningu á grásleppu.
Þar verður að öllum líkindum
miðað við sex ára tímabil, 2013
til 2018 og veiðireynsla þriggja
bestu áranna á því tímabili
verði grundvöllur úthlutun
ar,“ segir Örn Pálsson, fram
kvæmdastjóri Landssambands
smábátaeigenda.
Hrognamarkaðir í
jafnvægi
Örn segir það ánægjulegt að
markaðir fyrir grásleppu
hrogn séu í jafnvægi og veið
ar undanfarin ár hafi verið
undir eftirspurninni. Það sé
þrátt fyrir aukninguna hér en
meira hafi einnig veiðst í Nor
egi og á Grænlandi. Heildar
veiðin sé engu að síður undir
þeim mörkum að offramboð á
hrognum myndist. Aukningin
í heildina sé aðeins um 10%
milli ára. Síðustu ár hafi vant
að hrogn inn á markaðina, en
nú sé að komast sæmilegt
jafnvægi á framboð og eftir
spurn.
Örn segir að aðalfundur
Landssambands smábátaeig
enda í fyrra hafi samþykkt að
áfram yrði byggt á því veiði
fyrirkomulagi sem nú er með
áherslum á áðurnefndar
breytingar um sameiningu
veiðileyfa og að hægt væri að
gera hlé á veiðum án þess að
fjöldi dagar skertist. Nú komi
væntanlega fram frumvarp
um kvótasetningu og þá muni
verða tekin afstaða til þess
hvort rétt sé að breyta veiði
fyrirkomulaginu. Aðalfundir
svæðisfélaganna verði nú í
september og þetta mál verði
væntanlega mikið til umræðu
þar.
Grásleppuvertíðin í ár var ágæt
Verðhækkun og meiri veiði
■ Umtalsverð hækkun varð á verði fyrir grásleppuna og ætti vertíðin því að koma í heild talsvert betur út hjá útgerðunum
en í fyrra.
Smábátar