Morgunblaðið - 08.06.2020, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 8. J Ú N Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 133. tölublað 108. árgangur
FIMM BÁSAR
AF FÖTUM
JÖRMUNDAR FYLLTU GÖTURNAR
KR OG SELFOSS
SIGRUÐU UM
HELGINA
MÓTMÆLI GEGN LÖGREGLUOFBELDI 13 MEISTARAR 26FLUTTUR Í KRINGLUNA 10
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Icelandair hyggst hefja flug til tíu
áfangastaða 15. júní næstkomandi.
Áfangastaðirnir sem um er að ræða
eru Kaupmannahöfn, Berlín, Münch-
en, Amsterdam, Zürich, Frankfurt,
París, Lundúnir, Stokkhólmur og
Boston. Að undanförnu hefur einung-
is verið flogið til Stokkhólms, Lund-
úna og Boston, með stuðningi frá rík-
inu til þess að halda uppi
flugsamgöngum til og frá landinu. Því
er um að ræða sjö áfangastaði sem
hægt verður að fljúga til í fyrsta sinn
eftir að flug féll niður vegna kórónu-
veirufaraldursins.
„Salan til og frá Kaupmannahöfn
tók kipp um síðustu helgi. Fyrstu
dagarnir eru vel bókaðir,“ segir Birna
Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri
sölu- og þjónustusviðs hjá Icelandair.
Að sögn Birnu er einungis horft til
tveggja vikna í einu í áætlanagerð.
Þannig muni þessir áfangastaðir verða
í boði í tvær vikur að lágmarki en þó
gæti komið upp sú staða að ekki yrði
farið í öll flug ef bókunarstaða er slök.
Vinna stendur yfir við að skipuleggja
flug frá 1.-15. júlí að sögn Birnu. „Við
reynum að vera mjög dýnamísk og
sveigjanleg til þess að geta tekið
ákvarðanir með stuttum fyrirvara.“
Að hennar sögn hefur 15 þúsund
króna skimunargjald sem kynnt var
fyrir helgi haft áhrif á bókanir. „Því
miður hefur verið svolítið um að Dan-
ir hafi afbókað sig og svo hafa komið
afbókanir frá stórum þýskum hópum
sem áttu eldri bókanir hingað. Þetta
virðist trufla. Upphæðin er há,“ segir
Birna.
Icelandair vinnur náið með al-
mannavörnum og grímuskylda verð-
ur um borð í vélunum fyrstu vikurnar.
Með þeim hætti má koma í veg fyrir
að fleiri en einn verði sendir í sóttkví
komi upp smit um borð.
„Venjulega er reglan sú að við eig-
um að láta vita um fólkið sem situr í
röðinni fyrir framan og aftan viðkom-
andi. En við vorum á fundi með al-
mannavörnum fyrir helgi og það lítur
út fyrir að það sé minni þörf á því að
senda aðra en þann sem er smitaður í
sóttkví ef fólk ber grímur um borð,“
segir Birna.
Sjö flugfélög munu fljúga til og frá
landinu á næstunni að lágmarki en
um helgina bættist Lufthansa í hóp-
inn. „Við fundum fyrir auknum áhuga
hjá flugfélögum eftir að heilbrigðisyf-
irvöld tilkynntu að til stæði að hefja
skimun,“ segir Guðjón Helgason,
upplýsingafulltrúi Isavia.
Hyggja á flug til tíu
áfangastaða frá 15. júní
Hátt skimunargjald „virðist trufla“ Áhugi flugfélaga hefur aukist
M Kominn ferðahugur í fólk »4
Flug til og frá Íslandi
» Icelandair hyggst hefja
áætlunarflug til sjö áfanga-
staða þar sem flugleggir hafa
alfarið legið niðri frá upphafi
kórónuveirufaraldursins.
» Í heild verður flogið til 10
staða frá 15.-30. júní.
» Nokkuð hefur verið um
afbókanir frá því að yfirvöld
kynntu áform um skimun.
Það var góð stemning í nýbyggðum hjóla-
brettagarði á Miðbakka Reykjavíkurhafnar um
helgina, enda veður með besta móti í höfuðborg-
inni eins og víðar á landinu.
Hjólabrettagarðurinn var tekinn í notkun fyr-
ir helgi og nóg var um að vera þegar ljósmynd-
ara Morgunblaðsins bar að garði í gær.
Þótt þessi fyrsta vika júnímánaðar hafi verið
nokkuð sólrík er talsverðri rigningu spáð á
næstu dögum. Landsmenn vonast eflaust margir
eftir sólríku sumri, ekki síst svo hægt verði að
rúlla sér áfram á hjólabrettum og hlaupahjólum.
Sólrík helgi fyrir hjólabrettagarpa
Morgunblaðið/Íris
Nutu sín í sólinni í nýja hjólabrettagarðinum
Í kjölfar kórónu-
veirufaraldursins
hafa mörg banda-
rísk tæknifyrir-
tæki gefið starfs-
fólki sínu aukið
svigrúm til að
vinna þaðan sem
því sýnist. Sumir
gætu viljað vinna
frá Íslandi og
væri það hvalreki
fyrir íslenska tæknigeirann og rík-
issjóð, enda fólk með mikla reynslu,
góð sambönd og háar tekjur.
Kristinn Árni Lár Hróbjartsson,
stofnandi og ritstjóri tæknivefmið-
ilsins Northstack, segir þetta upp-
lagt tækifæri til að laða hæfi-
leikaríkt fólk til Íslands. Fyrst
myndi þurfa að auðvelda þessum
hópi að fá öll tilskilin leyfi til að búa,
starfa og greiða sína skatta hér á
landi. »12
Gætum opn-
að landið fyr-
ir snillingum
Kristinn Árni Lár
Hróbjartsson
Kæmu með fjar-
vinnustörfin með sér
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Upplýsingagjöf var ábótavant hjá
Reykjavíkurborg þegar forstjóri
flugfélagsins Ernis var ekki upp-
lýstur um breytt áform borgarinnar
er vörðuðu flugskýli fyrirtækisins
hjá Reykjavíkurflugvelli. Þetta segir
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, for-
maður skipulags- og samgönguráðs
Reykjavíkur og borgarfulltrúi Pí-
rata, í samtali við Morgunblaðið.
Eins og áður hefur komið fram
var flugfélaginu tilkynnt á fundi með
fulltrúum Reykjavíkurborgar 30.
apríl sl. að rífa yrði flugskýli þess,
bótalaust, vegna nýs skipulags. Átti
að leggja veg í gegnum svæðið þar
sem flugskýlið stendur.
Í kjölfar fundarins voru áformin
tekin af dagskrá, en þrátt fyrir það
var forstjóri Ernis, Hörður Guð-
mundsson, ekki upplýstur um það.
Lýsir hann framgöngu Reykjavík-
urborgar sem „yfirgengilegu of-
beldi“.
Að sögn Sigurborgar er ljóst að
tryggja þurfi betri samskipti. Þá
verði hlutaðeigandi aðilar að setjast
niður og ræða málin. „Við verðum að
setjast niður og tala saman. Við vilj-
um ekki að fólk upplifi stöðuna
þannig að það bíði upp á von og óvon
með sína starfsemi.“
Borgin
gerði
mistök
Flugskýli Ernis
mun standa áfram