Morgunblaðið - 08.06.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fjölmenni var viðstatt í gær þegar
fyrstu skóflustungurnar voru tekn-
ar að nýrri gestastofu á vestur-
svæði Vatnajökulsþjóðgarðs á
Kirkjubæjarklaustri. Byggingin
verður spölkorn frá þéttbýlinu á
Klaustri, það er sunnan Skaftár, en
áformað er í framtíðinni að tengja
byggð og gestastofu með göngubrú
yfir ána. Fallegt útsýni, meðal ann-
ars til Öræfajökuls, er frá Sönghóli,
en svo heitir staðurinn þar sem
gestastofan verður reist. Jarðvegs-
og vegaframkvæmdir á svæðinu
þar sem gestastofan verður hefjast
innan tíðar og byrjað verður að
reisa húsið að ári.
Fjögur þurfti til að taka skóflu-
stungurnar og hafði þar hver sitt
hlutverk og titil. Þau eru frá vinstri
talið: Ásta Berghildur Ólafsdóttir,
formaður svæðisráðs vestursvæðis
Vatnajökulsþjóðgarðs, Magnús
Þorfinnsson á Hæðargarði sem gaf
landið þar sem gestastofan verður,
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
umhverfisráðherra og Sandra Brá
Jóhannsdóttir, sveitarstjóri Skaft-
árhrepps. sbs@mbl.is
Ný gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri verður reist á Sönghóli
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fjórar tóku
þau skóflu-
stungurnar
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Það eru bara mistök af okkar
hálfu. Upplýsingagjöfin var ekki
nægilega góð og ég reikna með því
að það verði haldinn fundur til að
fara yfir málið,“ segir Sigurborg
Ósk Haraldsdóttir, formaður skipu-
lags- og samgöngráðs Reykjavíkur
og borgarfulltrúi Pírata, um mál
flugfélagsins Ernis.
Eins og áður hefur komið fram
var flugfélaginu tilkynnt á fundi
með fulltrúum Reykjavíkurborgar
30. apríl sl. að rífa yrði flugskýli
fyrirtækisins við Reykjavíkurflug-
völl, bótalaust, vegna nýs skipulags.
Var ástæðan þar að baki sú að
borgin áformaði lagningu vegar í
gegnum svæðið. Í kjölfar fundarins
voru áformin hins vegar tekin af
dagskrá. Þrátt fyrir það var Hörð-
ur Guðmundsson, forstjóri Ernis,
ekki látinn vita af breyttum áform-
um. Hefur hann jafnframt ekkert
heyrt frá borginni í mánuð, eða allt
frá því að framangreindur fundur
fór fram.
Að sögn Sigurborgar er ljóst að
finna verði lausn á málinu. Þá
verði sömuleiðis að tryggja að
samskipti milli aðila séu betri.
„Þetta er umdeilt mál og því verð-
ur upplýsingagjöf að vera í lagi.
Við viljum að skýlið standi og því
verðum við að setjast niður og
finna góða lausn á næstu dögum
þannig að þessi starfsemi geti
staðið á meðan flugvöllurinn er
þarna,“ segir Sigurborg.
Borgin gekk of langt
Morgunblaðið hefur undir hönd-
um fundargerð frá umræddum
fundi 30. apríl. Á fundinum voru
fulltrúar Reykjavíkurborgar og for-
stjóri Ernis. Í fundargerðinni segir:
„Fyrir liggur að fjarlægja þarf
flugvélaverkstæði Ernis að
óbreyttu, þ.e. flugskýli #6, vegna
fyrirhugaðrar veglagningar í gegn-
um flugskýlið“.
Vegurinn, sem um ræðir, er
hugsaður til bráðabirgða vegna
vinnu við uppbyggingu byggðar í
Skerjafirði, en í framhaldinu yrði
vegur til framtíðar lagður um svæð-
ið. Hörður segist ekki vita hvaða
leið verði farin við útfærslu veg-
arins en að hann hafi bent borg-
aryfirvöldum á gamla teikningu þar
sem vegurinn er lagður vestan og
neðan við skýlið.
Tillögur taka breytingum
Að sögn Harðar er gríðarlega
ánægjulegt að borgin sé nú búin að
láta af áformunum. Þá hafi fram-
koma borgarinnar í garð flugfélags-
ins einfaldlega verið „yfirgengilegt
ofbeldi“.
Aðspurð segir Sigurborg að ekki
sé óalgengt að tillögur borgaryf-
irvalda taki breytingum.
„Þetta er skipulag í vinnslu og
tillaga sem teiknuð var upp. Af
þeim sökum eru aðilar boðaðir á
fund. Síðar kemur í ljós að tillagan
gengur ekki upp og stundum er það
þannig. Þegar deiluskipulag er
tilbúið er búið að eiga sér stað mik-
ið samráð við hagsmunaaðila, sem
er eðlilegt,“ segir Sigurborg.
Spurð hvort forstjóri Ernis megi
eiga von á afsökunarbeiðni segir
Sigurborg að hlutaðeigandi aðilar
verði að setjast niður og ræða málið.
„Við verðum að setjast niður og
tala saman. Við viljum ekki að fólk
upplifi stöðuna þannig að það bíði
upp á von og óvon með sína starf-
semi.“
„Mistök af okkar hálfu“
Flugskýli Ernis við Reykjavíkurflugvöll muni standa áfram Samskiptaleysi og léleg upplýsinga-
gjöf hjá Reykjavíkurborg Forstjóri Ernis segir framgöngu borgarinnar „yfirgengilegt ofbeldi“
Hörður
Guðmundsson
Sigurborg Ósk
Haraldsdóttir
Skógræktarfélag Íslands hefur sagt
sig úr Landvernd, en að sögn for-
manns félagsins munu félögin halda
áfram að starfa saman á mörgum
sviðum og mun úrsögnin ekkert hafa
með samstarf félaganna að gera.
Formaðurinn Jónatan Garðarsson
segir félagið ekki tilheyra öðrum sam-
bærilegum félögum, líkt og Garð-
yrkjufélagi Íslands, og að ekki hafi
passað fyrir félagið að borga árgjald í
eitt félag en ekki önnur. Hann segir
að stjórn Skógræktarfélagsins hafi
ákveðið að ekki væri viðeigandi að
halda áfram að greiða árgjaldið, en
hann segir þó enga styggð á milli
Skógræktarfélags Íslands og Land-
verndar.
Aðspurður segir Jónatan að niður-
skurður í útgjöldum félagsins hafi
verið helsta ástæða úrsagnarinnar.
„Það er þröngur fjárhagur hjá okk-
ur eins og annars staðar og við þurf-
um að skera niður þar sem hægt er.“
Skógræktarfélag Íslands
segir sig úr Landvernd
Niðurskurður í
útgjöldum sagður
helsta ástæðan
Morgunblaðið/Eggert
Gott samstarf Skógræktarfélag Íslands og Landvernd munu að sögn
Jónatans halda áfram að vinna saman á mörgum sviðum í framtíðinni.