Morgunblaðið - 08.06.2020, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2020
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
„SPÍTALINN OKKAR”
AÐA L F U N D U R
Aðalfundur landssamtakanna Spítalinn okkar
verður haldinn á Nauthóli, Nauthólsvík þriðjudaginn
9. júní 2020, kl. 16.00.
DAGSKRÁ
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
Að loknum aðalfundarstörfum verða
áhugaverð erindi:
Skyggnist inn í nýjan meðferðarkjarna
Landspítala:
Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt
Hlutverk meðferðarkjarna á tímum farsótta:
Már Kristjánsson,
yfirlæknir smitsjúkdóma Landspítala
Lokaorð flytur María Heimisdóttir,
forstjóri Sjúkratrygginga Íslands.
Tækninýjungar og framtíðarsýn í heilbrigðismálum.
Allir velkomnir
Stjórn „Spítalans okkar“
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Á föstudaginn fyrir rúmri viku
gerðist það að við fórum að sjá bók-
anir sem ekki hafa sést frá því fyrir
þetta ástand sem verið hefur. Þetta
var ekki bara einhver einn dagur,
heldur hefur verið góð stígandi í
þessu sem hefur haldið áfram. Það
er því kominn ferðahugur í fólk þó
það sé kannski ofsagt að hann sé
kominn í alla heimsbyggðina,“ segir
Birna Ósk Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs
hjá Icelandair.
Icelandair hyggst hefja flug til sjö
áfangastaða 15. júní auk þeirra
þriggja sem flogið hefur verið til að
undanförnu með hjálp ríkisstyrks,
sem félagið mun að sögn Birnu njóta
út júní. Oftast verður flogið til Kaup-
mannahafnar til að byrja með eða
níu sinnum í viku. Hins vegar verður
flogið til Parísar, Amsterdam, Zü-
rich, Berlínar, München, Frankfurt,
Lundúna, Stokkhólms og Boston
þrisvar til fjórum sinnum í viku.
„Eftirspurnin eftir flugi til Kaup-
mannahafnar gæti jafnvel gefið til-
efni til þess að bæta við ferðum
þangað,“ segir Birna. Eins segir hún
mikið spurt um flug til Billund og sé
það ekki síst vegna þess að ferða-
mönnum er óheimilt að gista í Kaup-
mannahöfn í sex daga eftir komu til
Danmerkur. Flug þangað er þó ekki
á áætlun sem stendur.
„Við vorum að fá þá tilkynningu
að Þjóðverjar heimila flug til Ís-
lands. Okkar von er sú að bókanir
muni taka svipaðan kipp eins og var
með Kaupmannahafnarflugið núna á
næstunni,“ segir Birna. Nokkuð hafi
verið um afbókanir í kjölfar þess
skimunargjalds sem yfirvöld kynntu
fyrir helgi.
„Þetta var óþægilega mikið. Sér-
staklega í ljósi þess að þetta var
bara tilkynnt um miðjan dag á föstu-
daginn,“ segir Birna. Hún segir að
viðræður séu í gangi við ferðaskrif-
stofur sem sjá um þessa hópa og
reynt sé eftir fremsta megni að telja
þeim hughvarf sem vilja hætta við
komu til landsins.
Lufthansa bætist við
Fram kom í tilkynningu frá Isavia
fyrir helgi að sex flugfélög væru með
áætlanir um að fljúga til Íslands.
Um helgina bættist svo við þýska
flugfélagið Lufthansa, samkvæmt
upplýsingum frá Guðjóni Helgasyni,
upplýsingafulltrúa Isavia. „Við fund-
um fyrir auknum áhuga hjá flug-
félögum eftir að heilbrigðisyfirvöld
tilkynntu að til stæði að hefja skim-
un,“ segir Guðjón. Hann segir að
þau flugfélög sem áður hafi flogið til
landsins hafi verið upplýst um stöðu
mála og að þau fylgist vel með stöðu
mála hérlendis.
Kominn ferðahugur í fólk
Vel hefur gengið að selja í flug til Kaupmannahafnar Þýskaland að opnast
„Óþægilega miklar“ afbókanir vegna skimunargjalds Flugfélög áhugasöm
Guðjón
Helgason
Birna Ósk
Einarsdóttir
Morgunblaðið/Eggert
Af stað Icelandair áætlar að hefja áætlunarflug til sjö áfangastaða sem ekki
hefur verið flogið til í langan tíma. Bókanir hafa farið vel af stað.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Verð á norskri möl sem flutt er sjó-
leiðis til landsins og notuð í slitlag
hefur hækkað nokkuð í verði vegna
gengismunar. Það hefur m.a. haft
þau áhrif að malbiksverð hefur
hækkað um 3,5-5% á skömmum
tíma. Norska mölin hefur verið
keypt til landsins síðustu 5-6 ár eftir
að grjótnámu í Mosfellsbæ var lok-
að, að sögn framkvæmdastjóra Mal-
bikunarstöðvarinnar.
„Við erum með frekar blöðrótt
efni í okkar námum eins og staðan
er. Fyrir vikið er efnið veikara í
þeim námum sem við höfum á suð-
vesturhorninu,“ segir fram-
kvæmdastjórinn Ásberg K. Ingólfs-
son.
Hann segir að eins og sakir standi
sé einungis innflutt þessi eina malar-
tegund sem hentar í slitlag. Í síðustu
sendingu voru flutt 6.700 tonn til
landsins. „Malbikunarstöðin var að
vinna efni úr Seljadal sem tilheyrir
Mosfellsbæ. Það var stuðlaberg sem
reyndist vel í slitlagið en þeirri námu
var lokað fyrir 5-6 árum. Þá jukust
kaupin frá Noregi mikið,“ segir Ás-
berg.
Hann segir að norska mölin hafi
það einnig umfram þá íslensku að
áferðin á henni er ljós. Fyrir vikið
sjá ökumenn hana betur þegar tekur
að rökkva. „Við fáum það ekki svo
glatt í íslensku efni. Það er að vísu til
náma nærri Höfn með ljósu stein-
efni. Ég veit ekki hvort það hefur
verið skoðað að flytja það hingað á
höfuðborgarsvæðið.“
Innflutt möl fyrir slitlag
hefur hækkað mikið í verði
Flytja inn möl frá Noregi sjóleiðis Mölin hér of blöðrótt
Tryggt verður að skimanir fyrir
brjóstakrabbameini falli ekki niður
og að ekkert rof verði á þjónust-
unni þrátt fyrir mögulegar tafir á
tækni- og tækjabúnaði sem nauð-
synlegur er til að sinna þjónust-
unni. Þetta kemur fram á vef
stjórnarráðsins.
Kemur tilkynningin í kjölfar
ályktunar Krabbameinsfélags Ís-
lands sem samþykkt var á ársþingi
félagsins í fyrradag, 6. júní. Unnið
er nú að breytingum á fyrir-
komulagi skimunar fyrir legháls-
og brjóstakrabbameini fyrir árslok
2020. Landspítalinn hefur óskað
eftir því að flutningi brjóstaskim-
unar til Landspítala verði frestað til
1. maí árið 2021 vegna framan-
greindra tafa. Í tilkynningunni
kemur fram að tryggt verði að í
millitíðinni muni skimanir hvorki
falla niður né rof verða á þeim.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Landspítali Flytja á brjóstaskimanir til
Landspítalans nú um næstu áramót.
Tryggt að skimanir
fyrir brjóstakrabba-
meini falli ekki niður
Lítið var um hátíðarhöld á sjó-
mannadaginn í gær. Þannig var
engin skipulögð dagskrá í Reykja-
vík í fyrsta sinn í 82 ár. Viðburðir
voru þó haldnir sums staðar á land-
inu, til að mynda í Vestmannaeyjum
þar sem hátíðardagskrá var haldin
í Stakkagerðistúni.
Eins og sjá má var hann á róleg-
um nótum á Þórshöfn líkt og ann-
ars staðar. Sveitarfélagið Langa-
nesbyggð bauð íbúum í mat á
veitingastaðnum Bárunni við höfn-
ina, þar sem hægt var að gæða sér á
svartfuglseggjum og gúllassúpu.
Björgunarsveitin Hafliði lagði sitt
af mörkum og bauð upp á stutta
siglingu út fyrir höfnina.
Morgnblaðið/Líney Sigurðardóttir
Óvenju fábrotinn sjómannadagur