Morgunblaðið - 08.06.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2020
Vél
atvinnuman
og þeirra sem gera
Japönsku MITOX-Kawasa
vélorfin hafa um árabil ver
val atvinnumannsins þeg
kemur að því að velja öflu
og endingargott vélorf
krefjandi slátt.
nsins
kröfur
ki
ið
ar
gt
í
ÞÓR FH
Akureyri:
Baldursnes 8
603 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Frumvarp forsætisráðherra umvarnir gegn hagsmuna-
árekstrum í Stjórnarráði Íslands
var til umræðu á þingi í liðinni
viku. Einn þingmaður taldi málið
að mörgu leyti van-
hugsað og vanreif-
að og taldi brýnna
að fara yfir ýmsar
reglur sem settar
hafa verið síðasta
áratuginn eða svo
um vinnubrögð í
Stjórnarráðinu sem
illa hefði gengið að fara eftir og
gæti bent til að reglurnar væru í
ólagi.
Þetta var Sigríður Andersensem hafði áhyggjur af að
fyrirliggjandi frumvarp yrði að-
allega til að auka skriffinnsku.
Hún fann líka að því að það næði
til sendiherra og aðstoðarmanna
ráðherra, sem tækju ekki ákvarð-
anir, en ekki síður að í því væru
undanskildir þeir sem raunveru-
lega réðu.
Hún benti á að ef ætlunin væriað auka gagnsæi og auka
traust borgaranna á stjórnsýslunni
ætti ekki að undanskilja upplýs-
ingar um „hagsmunaárekstra
skrifstofustjóra og ráðuneytis-
stjóra, og jafnvel upplýsingar um
þá starfsmenn á plani, ef ég má
orða það þannig, sem taka raun-
verulega ákvarðanirnar. Sem að
kveða upp úrskurðina.“
Þetta er hárrétt ábending. Til-hneigingin hefur verið sú að
færa æ meiri völd í hendur ókjör-
inna og nafnlausra embættismanna
og nefnda með þeim rökum að það
sé faglegt. Ef völdin eiga að vera
þar, sem er hvorki lýðræðislegt né
æskilegt að öðru leyti, er auðvitað
nauðsynlegt að hulunni sé svipt af
embættismönnunum og að þeir lúti
sömu reglum og eftirliti og til
dæmis ráðherrar.
Sigríður
Andersen
Ábyrgð og völd
fari saman
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Hótel Rangá styrkti björgunarsveitirnar á Hellu
og Hvolsvelli til kaupa á nýjum hlífðargöllum í
síðustu viku, en styrkurinn var fjármagnaður
með „þjórfé“ erlendra ferðamanna.
Friðrik Pálsson, eigandi hótelsins, segir
marga erlenda ferðamenn vana því að greiða
þjórfé, en hótelið hafi ákveðið fyrir nokkrum ár-
um að þiggja ekki slíkar greiðslur. Með fjölgun
bandarískra ferðamanna á Íslandi hafi fleiri
gestir hótelsins viljað sýna þakklæti sitt með því
að greiða þjórfé, en Friðrik segir að þjórfé sé
gjarnan notað þar í landi til að bæta upp lág laun
þjónustufólks og þætti honum leiðinlegt ef slíkt
fyrirkomulag myndi ryðja sér til rúms hér á
landi.
Í staðinn er gestum hótelsins boðið að styrkja
björgunarsveitir á svæðinu og hefur hótelið fært
björgunarsveitunum á Hellu og Hvolsvelli þrjá
styrki á síðustu árum.
Í samráði við björgunarsveitirnar var ákveðið
að í þetta skipti myndi styrkurinn koma í formi
vatnsheldra hlífðargalla, og voru gallarnir af-
hentir við bakka Rangár.
Björgunarsveitir fá galla að gjöf
Biðja um styrki til
sveitanna í stað þjórfjár
Afhending Gallinn var mátaður við afhendingu.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
umhverfis- og auðlindaráðherra,
hefur undirritað auglýsingu um
stækkun friðlýsingar fólkvangsins
Hliðs á Álftanesi. Friðlýsingin er
hluti af átaki stjórnvalda í friðlýs-
ingum, en nýtt vefsvæði átaksins
var opnað fyrir helgi
Hlið var friðlýst sem fólkvangur
árið 2002. Markmið friðlýsing-
arinnar er að tryggja landsvæði til
útivistar og almenningsnota.
„Fjaran og aðliggjandi sjávar-
svæði eru sérstaklega áhugaverð til
náttúruskoðunar svo sem fugla- og
fjöruskoðunar, en meðal tegunda
sem finnast innan fólkvangsins eru
margæs, æðarfugl, rauðbrystingur,
sendlingur og tildra. Aðgengi að
svæðinu er gott og því er það sér-
staklega ákjósanlegt til útikennslu.
Með stækkuninni er landsvæði þar
sem áður var gert ráð fyrir bygg-
ingarlóðum orðið hluti fólkvangs-
ins,“ segir m.a. í tilkynningu frá
ráðuneytinu. Að lokinni undirritun
var boðið í pönnukökuveislu hjá Jó-
hannesi Viðari, vert í Hliði.
Fólkvangurinn Hlið á
Álftanesi stækkaður
Álftanes Viðstödd undirritun friðlýsingar fólkvangsins Hliðs á Álftanesi,
auk umhverfisáðherra, voru bæjarstjóri Garðabæjar, bæjarfulltrúar og
starfsmenn frá Umhverfisstofnun og umhverfisráðuneytinu.