Morgunblaðið - 08.06.2020, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2020
Litirnir eru fjölmargir
og hægt að fá
sérblandaða hjá okkur.
HÁGÆÐA
VIÐARVÖRN FRÁ
SLIPPFÉLAGINU
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
ER PLANIÐ SKÍTUGT?
Fáðu tilboð í s: 577 5757
GÖTUSÓPUN
ÞVOTTUR
MÁLUN
www.gamafelagid.is
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Þetta hefur gengið vel fram til
þessa. Umsóknarferlið er enn opið
og vonandi bætast enn fleiri í hópinn
síðustu dagana,“ segir Salóme Guð-
mundsdóttir, framkvæmdastjóri
Icelandic Startups. Vísar hún í máli
sínu til umsóknarferlis nýs
viðskiptahraðals, Startup Super-
Nova, sem fór af stað í byrjun síð-
ustu viku. Er um að ræða samstarfs-
verkefni Icelandic Startups og Nova.
Verkefnið hefur göngu sína seint í
júnímánuði, en alls verða tíu sprota-
fyrirtæki valin til þátttöku. Hvert
mun hljóta fjárstyrk að upphæð ein
milljón króna auk þess að fá aðgang
að vinnuaðstöðu og njóta leiðsagnar
reyndra frumkvöðla. Nú fyrir helgi
höfðu þegar borist um 60-70 um-
sóknir og gera má ráð fyrir að fjölga
muni enn frekar áður en skráningu
lýkur 10. júní.
Að sögn Salóme er yfirferð um-
sókna ekki hafin, en verkefnið mun
fara af stað 22. júní. Verður horft til
þess að velja verkefni sem skapað
geta störf og verðmæti fyrir sam-
félagið. „Við viljum komast sem allra
fyrst að því hvort flötur sé á hug-
myndinni. Það er gríðarlega gott ef
möguleiki er á sköpun gjaldeyris-
tekna. Nú er verið að horfa til þess
að fjölga útflutningsgreinum og
þetta verkefni getur orðið liður í
því,“ segir Salóme og bætir við að af
þessum sökum verði umræddar hug-
myndir að falla í kramið á alþjóða-
vettvangi.
„Við erum ekki byrjuð að fara yfir
umsóknir, en við munum vinna þetta
gríðarlega hratt um leið og umsókn-
arferlinu lýkur. Við erum helst að
leita að hugmyndum sem náð geta
árangri á markaði alþjóðlega. Þess
utan er auðvitað mikilvægt að í leið-
inni skapist störf hér heima,“ segir
Salóme.
Kostar um 50 milljónir króna
Fyrirtækin sem verða fyrir valinu
og hljóta styrk frá Startup Super-
Nova munu vera til húsa í Grósku
hugmyndahúsi í Vatnsmýrinni. Á
framangreint hús jafnframt að vera
vettvangur nýsköpunar háskóla-
samfélagsins og atvinnulífsins hér á
landi. Verkefni Startup SuperNova
mun standa yfir í tíu vikur í sumar og
lýkur því í ágústmánuði.
Spurð um heildarkostnað verkefn-
isins segir Salóme að hann hlaupi á
um 50 milljónum króna. „Hvert
verkefni kostar um fimm milljónir
króna. Peningur er eitt, en aðgangur
að um 100 reynslumiklum aðilum er
gríðarlega mikils virði.“
Vilja að verðmæti
og störf skapist
Tugir sækja um í
frumkvöðlaverkefni
Startup SuperNova
Morgunblaðið/Eggert
Gróska Fyrirtækin sem verða fyrir
valinu munu starfa í Vatnsmýrinni.
Morgunblaðið/Eggert
Gluggaþvottur er nauðsynlegur með reglubundnum hætti, sérstaklega eftir
vorhret og vetrartíð um borg og bý. Þeir sem reka veitingastað á horni
Laugavegar og Snorrabrautar eru með háa glugga sem kalla á góðan þvott,
enda gefa gluggarnir glögga sýn á mannlíf og mannvirki í kring.
Gluggar gefa glögga sýn
Borgarstjórinn í Reykjavík óskar nú
í tíunda sinn eftir ábendingum frá
borgarbúum um Reykvíking sem
verið hefur öðrum til fyrirmyndar.
Ábendingarnar verða notaðar til að
velja Reykvíking ársins 2020.
Ábendingar um einstaklinga,
ásamt rökstuðningi, er hægt að
senda á hugmynd@reykjavik.is eða
skila bréflega til skrifstofu borgar-
stjóra merkt Reykvíkingur ársins
fyrir mánudaginn 15. júní nk.
„Til greina koma aðeins ein-
staklingar sem hafa verið til fyr-
irmyndar eða sýnt af sér háttsemi
eða atferli sem kemur Reykjavík-
urborg til góða á einhvern hátt.
Slíkur borgari gæti t.d. verið ein-
hver sem hefur haft jákvæð áhrif á
lífið í borginni, gert nærumhverfi
sínu gott eða hefur gert Reykjavík-
urborg gott á undanförnum árum
með einhverjum öðrum hætti,“ segir
m.a. í tilkynningu frá borginni.
Sú hefð hefur myndast á undan-
förnum árum að Reykvíkingur árs-
ins rennir fyrstur fyrir lax í Elliða-
ánum ásamt borgarstjóra.
Tilnefninga óskað um
Reykvíking ársins 2020
Morgunblaðið/Einar Falur
Veiðar Helga Steffensen var Reyk-
víkingur ársins 2019 og veiddi
fyrsta laxinn í Elliðaánum það ár.