Morgunblaðið - 08.06.2020, Síða 10
Morgunblaðið/Eggert
Fluttur í Kringluna Jón G. Sandholt og Jörmundur í Kringlubazaar, þar sem markaður Jörmundar er nú.
„Þetta gengur alveg glimrandi,“
segir Jörmundur Ingi Hansen,
fyrrverandi allsherjargoði og eig-
andi Fatamarkaðar Jörmundar, en
markaðurinn, sem áður var til húsa
á Laugavegi 25, hefur fært sig um
set og er nú í Kringlubazaar í
Kringlunni. Jörmundur heldur þar
úti fimm básum, þar sem hann sel-
ur herraföt úr sínu gríðarstóra
fatasafni.
„Þetta voru allt föt sem ég
keypti handa sjálfum mér. Ég hef
aldrei keypt neitt sem ég hef ekki
viljað sjálfur. Þannig að þetta er
allt saman fyrsta klassa vara,“ seg-
ir Jörmundur í samtali við Morg-
unblaðið.
Hann kveður viðskiptin ganga
vel í Kringlunni og að ekki seljist
minna þar heldur en á Laugaveg-
inum. „Það er þó allavega fólk í
Kringlunni. Það er ekkert fólk
niðri á Laugavegi,“ bætir hann
við.
Réttu fram hjálparhönd
Jón G. Sandholt, einn stofnenda
og eigenda Kringlubazaars, segir
fyrirtækið hafa ákveðið að styðja
Jörmund þegar hann missti hús-
næðið á Laugaveginum.
„Hann er með ótrúlega mikið af
fötum. Það hefði verið sárt að horfa
upp á það ef hann hefði þurft að
henda þessu eða gefa,“ segir Jón,
en hann aðstoðaði einnig Jörmund
við að útvega sér lager fyrir fata-
safnið mikla.
Jón segir Kringlubazaar sækja
innblástur frá sambærilegum mörk-
uðum í Svíþjóð, þar sem leigðir eru
sölubásar til einstaklinga sem vilja
selja hluti. Kringlubazaar er að
finna á bíóganginum í Kringlunni.
Jörmundur í Kringluna
Fatamarkaðurinn færir sig um set Mikið safn af fötum
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2020
Ferðaskrifstofa eldri borgara gengst í samstarfi við Spánarheimili fyrir vikulegum
ferðum til Costa Blanca frá 2. október til 14. nóvember. Flogið verður í beinu
flugi til Alicante og dvalið í glæsilegum 3ja herbergja íbúðum á Torreviejasvæðinu
sem staðsettar eru mjög miðsvæðis eða við hlið Zenia Boulevard
verslunarmiðstöðvarinnar í La Zenia hverfinu.* Hægt verður að bóka 1 viku eða fleiri
og allt að 4 geta deilt íbúð saman.
Boðið er uppá skoðunarferð til Cartagena í samstarfi við Íslendingafélagið á Costa Blanca
og er ein ferð á mann innifalin í verðinu. Gísli Jafetsson verður staðarumsjónarmaður
ferðanna og tekur á móti hópum á flugvellinum og verður ferðalöngum innan handar meðan
á dvölinni stendur. Þá verður Setrið, samkomustaður Íslendingafélagsins opið ferðalöngum
til afþreyingar. Þeir sem vilja fara í golf geta valið úr fjölda valla sem allir eru í nálægð við
gististaðinn og aldrei lengur en í 10 mín. akstursfjarlægð.
Hægt er að ferðast með golfsett gegn aukagjaldi en einnig er hægt að leigja sér sett á
hagstæðu verði.
*Allar brottfarir eru háðar núerandi flugáætlun sem kann að breytast.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu eldri borgara í
símum 783-9300 og 783-9301, einnig með tölvupósti í gegnum
netfangið hotel@hotelbokanir.is og á www.hotelbokanir.is
Niko ehf | Pósthólf 72 | 802 Selfoss | kt. 590110-1750
Costa Blanca Vikulegar ferðirfrá 2. okt. til 14. nóv. 2020
Verð frá 125.000
Ferðir
fyrir eldri
borgara
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Þetta hefur farið gríðarlega vel af
stað og í raun mun betur en við átt-
um von á. Straumurinn hefur verið
stöðugur,“ segir Viktor Örn Andr-
ésson, annar eigandi Sælkerabúð-
arinnar. Búðin hefur nú verið opin í
rétt um þrjár vikur og hafa viðtök-
urnar ekki látið á sér standa. „Það
er alltaf einhver inni í búðinni. Fyrst
þegar við opnuðum voru alltaf 15-20
manns inni í búðinni en núna er
straumurinn að verða stöðugur,“
segir Viktor.
Búðin sérhæfir sig í hágæða kjöti
og meðlæti en auk þess er boðið upp
á tilbúna matarpakka, osta og úrval
sérvöru. Viktor fór af stað með
verkefnið ásamt Hinriki Inga Lár-
ussyni, en báðir eru þeir menntaðir
kokkar. Saman hafa þeir rekið
veisluþjónustuna Lux veitingar, en
ákváðu fyrir nokkrum mánuðum að
útvíkka starfsemina.
„Þetta er í sama húsnæði og er því
eins konar framlenging á Lux veit-
ingum,“ segir Viktor og bætir við að
búðin bjóði upp á heildstæðar lausn-
ir gæðamatvara. Þá skarti búðin
gríðarlega veglegu kjötborði. „Við
erum að selja ýmiss konar sælkera-
vörur. Þetta er ekki einungis kjöt-
búð heldur erum við að afgreiða
margt annað. Við erum auk þess að
reyna að vera með öðruvísi kjötborð
og bjóðum upp á mjög mikið úrval
þar,“ segir Viktor.
Sælkerabúðin er til húsa á Bitru-
hálsi og er því í nokkurri fjarlægð
frá miðbænum. Aðspurður segir
Viktor að staðsetningin sé mikill
kostur. „Það er kostur að vera fyrir
utan og í fjarlægð frá miðbænum.
Það er gríðarlegur fjöldi fólks í
grenndinni, hvort heldur sem er
vegna vinnu eða vegna þess að það
býr hér. Að auki er nóg af bílastæð-
um,“ segir Viktor sem kveðst ekki
eiga von á því að opna annað útibú
verslunarinnar á næstunni.
Spurður hvort finna megi vörur í
Sælkerabúðinni sem ekki fást ann-
ars staðar, kveður Viktor já við.
„Við erum til dæmis með trufflusalt
sem við bjuggum til sjálfir, sem hef-
ur verið gríðarlega vinsælt. Svo höf-
um við verið með ýmislegt annað.“
Viðtökurnar
vonum framar
Sælkerabúðin var opnuð á dögunum
Morgunblaðið/Íris
Eigendur Viðtökurnar hafa verið
vonum framar, að sögn Viktors.