Morgunblaðið - 08.06.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2020
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga www.innlifun.is
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Árneshreppur er víðfeðmur og
gönguleiðirnar þar margar og
spennandi. Í bæklingnum nú bein-
um við sjónum okkar að Hval-
ársvæðinu og gönguleiðunum þar
sem eru einstakar á marga vegu
vegna þess hve náttúran er sér-
stæð og svæðið stórbrotið. Nátt-
úra og umhverfi á þessum slóðum
lætur engan ósnortinn,“ segir
Snæbjörn Guðmundsson jarð-
fræðingur.
Drynjandi og Drangaskörð
Út eru komin í einum pakka
kort og bæklingur sem ber heitið:
Árneshreppur: Norðurstrandir og
gönguleiðir við Hvalá. Oliver Ke-
nyon við Leedsháskóla og Land-
mælingar Íslands leggja til
grunngögn kortsins, sem Snæ-
björn hefur fært í búning gömlu
herforingjaráðskortanna. Einnig
bætt inn ýmsum áhugaverðum
gönguleiðum, svo sem að foss-
inum Drynjanda upp af Ófeigs-
firði, þar sem Hvalá fellur fram til
sjávar. Fossinn hefur oft og víða
verið til frásagnar á síðustu miss-
erum vegna áforma um virkjun
Hvalár, sem nú hefur verið slegið
á frest.
Einnig eru á kortinu til-
greindar gönguleiðir sem liggja
norður á bóginn, um Eyvindar-
fjörð og í Drangavík, þar sem hin
tilkomumiklu Drangaskörð eru.
Um þessar slóðir er torleiði; vaða
þarf ár og sæta verður sjávar-
föllum til að komast á fjöru undir
Drangaskörðum, þaðan sem
ganga má norður á Hornstandir
rétt eins og margir gera á sumri
hverju.
Liggur á norðurhjara
„Árneshreppur liggur á
norðurhjara,“ segir í bæklingnum
en höfundar texta hans eru Snæ-
björn, Páll Ásgeir Ásgeirsson, Sif
Konráðsdóttir og Viðar Hreins-
son. Veturnir eru langir og dimm-
ir, og sumrin stutt en björt.
Landslagið er sorfið og mótað af
jöklum ísalda, jarðmyndanir stór-
brotnar og rekaviður í sendnum
fjörum. Þá er lífríki svæðisins af-
ar fjölbreytt. Þarna á refurinn
griðarsvæði, fuglar og smádýr
trítla um mela og móa, selur synd-
ir í fjörum og úandi æðarkollur
eru í flæðarmálinu. „Öll þessi
ólíku landslagssvæði ramma inn
órjúfanlega heildarmynd víðerna
Árneshrepps, sem eiga fáa líka á
jarðríki,“ segir í bæklingnum.
Í öllu sínu veldi
„Náttúran í öllu sínu veldi,
fuglalífið, landslagið, gróð-
urfarið, kyrrðin og andrúmsloftið
eru það sem mér finnst svo
heillandi í Árneshreppi,“ segir
Snæbjörn um sveitina sem svo
margir hafa fjallað um. Bókin Þar
sem vegurinn endar eftir Hrafn
Jökulsson er til dæmis prýðilegur
vitnisburður um svæðið og mætti
fleiri rit góð þá tiltaka.
„Ég get annars ekki lýst til-
finningunni svo vel sé. Eina leiðin
til að skilja töfra svæðisins er að
mæta á svæðið. Ég kom tvisvar í
þessa einstöku og afskekktu sveit
með foreldrum mínum í æsku og
þá strax þótti mér þetta magn-
aður staður.“
Snæbjörn minnist þess úr
æskuferðum sínum í Árneshrepp
hve spennandi honum fannst
Krossneslaug, sundstaðurinn í
flæðarmálinu. Einnig
Djúpavík og Eyri við Ingólfs-
fjörð, þar sem eru gamlar síld-
arverksmiðjur sem vitna um for-
gengileika mannanna verka.
Voru starfræktar í til þess að
gera fá ár því svipull er sjávarafli.
„Þetta eru mannvirki sem
orkuðu sterkt á barnshugann.
Síðar hafa margir aðrir staðir á
svæðinu svo snert mig sterkt; til
að mynda Hvalárósar og Hval-
árfoss og svæðið þar upp af. Ég
hef óvíða upplifað víðerni jafn-
sterkt og þar. Fólk sem enn á eftir
að koma á þær slóðir í fyrsta
skipti er öfundsvert.“
Á síðasta ári, meðan enn var
unnið að undirbúningi virkjunar
Hvalár með þeirri víðtæku röskun
sem því átti að fylgja, lét Snæ-
björn til sín heyra og bendi á hve
dýrmætt þetta svæði væri ósnort-
ið. Segir þetta einn af gullmolum
íslenskrar náttúru. „Þarna er
flest sem yfirhöfuð finnst á Ís-
landi fyrir utan sjálfa eldvirknina.
Í syðri hluta Árneshrepps er
landslagið tignarlegt og í nyrðri
hlutanum taka við víðáttumiklar
heiðar og jökullendi,“ segir Snæ-
björn og enn fremur:
Landslagið og lífríkið
„Mögnuðustu gullmolarnir á
Hvalársvæðinu eru fossaraðirnar
í stóru ánum, Hvalá, Rjúkanda og
Eyvindafjarðará. Þarna er líka
aragrúi trjáhola, sem eru stein-
gervingar trjábola sem varðveist
hafa í 10-12 milljón ára gömlum
hraunlagastafla svæðisins. Líf-
ríkið er ekki síður umvefjandi, og
það finna allir fyrir því sem heim-
sækja svæðið, einkum yfir bjartan
sumartímann. Þetta er allt sem
undraheimur og þarna ætla ég í
sumarfríinu með fjölskyldunni.
Drekka í mig svæðið allt, bæði
landslagið og lífríkið og nýta alla
þjónustuna sem er í boði.“
Gefur út gönguleiðakort og fróðlegan bækling um leiðir í Árneshreppi á Ströndum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landkönnuður Ég kom í þessa einstöku sveit í æsku og þótti hún strax magnaður staður, segir Snæbjörn.
Umhverfi sem lætur engan ósnortinn
Snæbjörn Guðmundsson,
sem er fæddur 1984, er jarð-
fræðingur að mennt og starfar
hjá Náttúruminjasafni Íslands.
Hefur mikið sinnt kennslu
og fræðslu barna og unglinga
og stundað rannsóknir.
Höfundur bókarinnar Veg-
vísir um jarðfræði Íslands, sem
kom út 2015.
Hver er hann?
Morgunblaðið/RAX
Drynjandi Nafnið segir allt um
kraftinn og hljóð sem berast.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Drangaskörð Blóðrautt sólarlag.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kort Víða liggja leiðir og vits er
þörf þeim sem víða ratar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þúsunddalastapi Stór og sterkur
og Reykjaneshyrna í bakgrunni.
Sumarstörfum
verður fjölgað
um 30 hjá Orku-
veitu Reykjavík-
ur og dóttur-
félögum til að
koma til móts við
erfitt atvinnu-
ástand í landinu
vegna kórónu-
veirufaraldurs-
ins. Störfin bæt-
ast við þau ríflega 100 sumarstörf
sem þegar hafa verið auglýst og
ráðið hefur verið í.
Störfin sem um ræðir eru af ýms-
um toga. Í tilkynningu frá OR segir
að þau séu ekki öll ætluð til að koma
til móts við atvinnuleysi skólafólks
heldur gefist öllum færi á að sækja
um hluta þeirra. Ráðningartíminn
er tveir mánuðir. Að sögn Sólrúnar
Kristjánsdóttur, mannauðsstjóra
hjá OR, er umsóknarfrestur til og
með 14. júní nk. Hún segir að vegna
ástandsins hafi verið ákveðið að
fjölga sumarstörfum frá því sem áð-
ur var ákveðið.
OR bætir við 30
sumarstörfum
Sólrún
Kristjánsdóttir