Morgunblaðið - 08.06.2020, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2020
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Égheyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Tugþúsundir manna streymdu út á
götur Washington, höfuðborgar
Bandaríkjanna, á laugardaginn til
þess að mótmæla kynþáttamisrétti
og ofbeldi lögreglunnar gegn minni-
hlutahópum. Var þetta níundi dag-
urinn í röð sem mótmælt var í höfuð-
borg Bandaríkjanna, en tvær vikur
eru liðnar í dag frá því að George
Floyd lést í höndum lögreglunnar í
Minneapolis.
Mótmælendur voru áberandi víðs-
vegar um borgina, en þeir komu
einkum saman á tveimur stöðum,
annars vegar við minnismerkið um
Lincoln Bandaríkjaforseta og hins
vegar á götunni Black Lives Matter
Plaza, en hún liggur að Lafayette-
garðinum, þar sem táragasi var
beitt á mánudaginn fyrir viku til
þess að dreifa friðsömum mótmæl-
endum.
Muriel Bowser, borgarstjóri
Washington-borgar, lét endurnefna
götuna, en hún og Donald Trump
Bandaríkjaforseti hafa deilt um
fjölda alríkislögreglumanna og þjóð-
varðliða í höfuðborginni. Forsetinn
tók svo þá ákvörðun í gær að kalla
þjóðvarðliðið til baka frá borginni.
Þá var hið nýja heiti götunnar
málað stórum stöfum á hana, þannig
að skýrt sést á loftmyndum af borg-
inni, og vísa stafirnir nánast beint að
framhlið Hvíta hússins, embættisbú-
staðar forsetans.
Bowser ávarpaði mannfjöldann
við Black Lives Matter Plaza og
bauð hann velkominn við mikinn
fögnuð. Vék hún að deilum sínum við
Trump í ræðu sinni og hvatti áheyr-
endur til þess að kjósa hann ekki. „Í
dag segjum við nei, og í nóvember
segjum við „næsti!““ Trump lét sér
hins vegar fátt um finnast, og sagði
á Twitter-síðu sinni að mannfjöldinn
hefði verið mun minni en spáð hafði
verið.
Mótmælin voru að mestu friðsöm
að þessu sinni, en Mark Esper varn-
armálaráðherra fyrirskipaði að allir
þjóðvarðliðar sem kæmu að sýni-
legri öryggisgæslu yrðu að skilja
bæði byssur og skotfæri eftir. Þá
voru 900 hermenn úr Bandaríkja-
her, sem skipað hafði verið að halda
sig í nágrenni borgarinnar, sendir
aftur til bækistöðva sinna. Hermt er
að stirt sé á milli Espers og Trumps
Bandaríkjaforseta, eftir að sá fyrr-
nefndi lagðist gegn því að uppreisn-
arlögum frá 1807 yrði beitt til þess
að Bandaríkjaher myndi kveða nið-
ur óeirðirnar, líkt og Trump hótaði á
mánudagskvöldið fyrir viku.
Sú hótun hefur einnig valdið
nokkrum kurr meðal repúblikana,
og greindi New York Times frá því
um helgina, að hvorki George W.
Bush, fyrrverandi Bandaríkjafor-
seti, né Mitt Romney, forsetafram-
bjóðandi 2012 og öldungadeildar-
þingmaður, hygðust styðja að
Trump yrði endurkjörinn. Þá vilji
sumir fyrrverandi þungavigtarmenn
flokksins, líkt og Paul Ryan og John
Boehner, ekki segja hvort þeir styðji
forsetann í haust.
Mótmælt var í fleiri borgum
Bandaríkjanna á laugardaginn og
urðu nokkrir pústrar milli mótmæl-
enda og lögreglumanna í Seattle.
Var hermt að lítill hluti mótmælenda
hefði reynt að hleypa mótmælunum
upp í óeirðir, og sagði í tilkynningu
lögreglunnar að einhverjir hefðu
reynt að kasta molotoff-kokteilum.
Mótmæli gengu hins vegar greið-
lega í New York-borg og í Philadelp-
hiu, og fjölmennar mótmælagöngur
voru haldnar í Los Angeles og San
Francisco í Kaliforníuríki.
Lögreglukona flutt á sjúkrahús
Mótmæli helgarinnar teygðu
einnig anga sína út fyrir Bandaríkin,
og voru samstöðumótmæli víða um
Evrópu, sem og í Ástralíu. Einna
fjölmennustu mótmælin voru í
Lundúnum, höfuðborg Bretlands,
en þar kom til nokkurra átaka milli
lítils hluta mótmælenda og lögregl-
unnar.
Cressida Dick, yfirmaður Lund-
únalögreglunnar, gagnrýndi harð-
lega aðfarir ofbeldisseggjanna, en
fjórtán lögreglumenn eru sagðir
slasaðir vegna mótmælanna, en aðr-
ir þrettán höfðu slasast í mótmæla-
aðgerðum vikunnar. Fjórtán voru
handteknir vegna mótmælanna.
Á meðal þeirra slösuðu var lög-
reglukona sem féll illa af hesti sínum
eftir að mótmælandi kastaði reið-
hjóli á hestinn. Lögreglukonan var
flutt á sjúkrahús en hún er ekki talin
í lífshættu.
Fylltu götur Washington
Tugþúsundir manna mótmæltu í Washington-borg Kallaði þjóðvarðliðið til baka úr borginni
14 lögreglumenn slasaðir eftir mótmæli í Lundúnaborg Bush og Romney ætla ekki að kjósa Trump
AFP
Mótmæli Fjölmenn mótmæli voru í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, á laugardaginn og komu mótmælendur m.a. saman við Lincoln-minnismerkið.
AFP
Lundúnir Átakasenur voru í Lundúnaborg í laugardagsmótmælunum og
slösuðust 14 lögreglumenn í þeim. Fjórtán manns voru handteknir.