Morgunblaðið - 08.06.2020, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Sir RichardDearlove,fyrrverandi
forstjóri bresku
leyniþjónustunnar
MI6, sagði í viðtali
við breska blaðið
The Daily Telegraph fyrir
helgina, að hann teldi að kór-
ónuveiran hefði óvart lekið út
úr kínversku veirurannsókn-
arstofnuninni í Wuhan-borg,
en kínversk stjórnvöld hafa
lengi þvertekið fyrir þann
möguleika.
Þessi skoðun Dearlove var
byggð á nýlegum rannsóknum
tveggja vísindamanna frá
Noregi og Bretlandi, en niður-
staða þeirra var sú að veiran
væri nokkurs konar „blend-
ingur“, það er að hún hefði
eiginleika frá tveimur mis-
munandi öðrum kórónuveirum
og að hún virtist hönnuð til
þess að geta borist auðveld-
lega í menn. Annar vísinda-
mannanna gekk raunar lengra
en Dearlove, og sagði við Tele-
graph að Kínverjar hefðu
beinlínis greint rangt frá eða
treglega um veigamikil atriði
um uppruna kórónuveirunnar
sem nýst gætu í baráttunni
gegn henni.
Hér skal ekki fullyrt um
hvort niðurstöður þessara vís-
indamannanna og Dearlove
séu réttar. Hins vegar er at-
hyglisvert, að nær samdægurs
og viðtalið birtist höfðu ýmsir
aðilar í Bretlandi sprottið úr
skúmaskotum sínum til þess
að varpa rýrð á rannsóknina
sem lá að baki, og vísað þar
meðal annars til álits Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar,
þeirrar sömu og taldi um miðj-
an janúar að veiran gæti ekki
borist á milli manna.
Þá má einnig íhuga í þessu
samhengi, hvernig kínversk
stjórnvöld hafa reynt að koma
í veg fyrir alla gagnrýni á það
hvernig þau sinntu kórónu-
veirufaraldrinum í upphafi.
Hvers vegna voru þeir læknar
í Wuhan sem reyndu að vara
fólk við nýrri veiru teknir á
teppið og sagt að halda sér
saman?
Þá er einnig athyglisvert
hvernig Kínverjar hafa beitt
sér af mikilli hörku gegn þeim
sem hafa viljað rannsaka upp-
haf kórónuveirufaraldursins.
Opinbera línan er jafnan sú, að
fyrst þurfi að sigrast á far-
aldrinum áður en rannsókn
fari fram, þar sem „núverandi
andrúmsloft“ í umræðunni
gæti verið skaðlegt rannsókn-
inni. Með þessu er þó skautað
framhjá því, að ein helsta
ástæðan fyrir því að uppruni
faraldursins krefst rann-
sóknar er að þar
gæti einnig verið
að finna leiðina til
að sigrast á hon-
um.
Ástralir hafa
verið í fararbroddi
þeirra sem hafa krafist
óháðrar rannsóknar á upp-
tökum kórónuveirunnar. Við-
brögð Kínverja segja sína
sögu, en kínversk stjórnvöld
hafa ekki aðeins sett ofurtolla
á ástralskar útflutningsvörur,
heldur vöruðu kínverskir fjöl-
miðlar nú fyrir helgi almenn-
ing í landi sínu sérstaklega við
ferðalögum til Ástralíu, þar
sem árásum af völdum kyn-
þáttahaturs gegn fólki af as-
ískum uppruna hefði fjölgað
mikið. Ekki þarf að fara mörg-
um orðum um það, að sú full-
yrðing er hvergi nærri því að
vera sannleikanum samkvæm.
Aðrir sem hafa vogað sér að
setja spurningarmerki við
framferði kínverskra stjórn-
valda í upphafi faraldursins
hafa mátt þola það að vera
sakaðir um „kaldastríðshugs-
unarhátt“, eða þá jafnvel að
þeir fylgi bandarískum stjórn-
völdum í blindni. Heiftin sem
mætir þeim sem vilja spyrja
eðlilegra spurninga vekur ein-
ungis frekari grunsemdir um
að svörin þoli ekki dagsins
ljós.
Kínverjar hafa það í hendi
sér að laga viðbrögð sín gagn-
vart þeim vangaveltum og
ásökunum sem uppi eru og
auka traust almennings um
allan heim í sinn garð og laga
ímynd sína sem óhjákvæmi-
lega hefur hlotið skaða af við-
brögðum þeirra við efasemd-
unum. Með þessu er ekki verið
að gagnrýna hvernig þeir
brugðust við eftir að veiran
hafði breiðst út í Wuhan og
ljóst var orðið að um hættu-
lega veiru og alvarlegan far-
aldur var að ræða. Þá brugð-
ust Kínverjar við með mjög
afgerandi hætti og gengu
raunar mun lengra til að
hemja útbreiðslu veirunnar en
flestar aðrar þjóðir hafa treyst
sér til að gera. Með því hafa
þeir án efa dregið úr út-
breiðslu veirunnar sem skiptir
miklu.
Þetta breytir því ekki að
fólk um allan heim þarf að fá
svör við því hvernig og hvers
vegna veiran fór af stað. Ætla
má að Kínverjar geti veitt
þessar upplýsingar eða í það
minnsta aðstoðað við það.
Þegar stórkostlega skaðleg
veira er annars vegar verða
allir að vinna saman að því að
finna og veita svör við brýnum
spurningum.
Svara þarf ýmsum
brýnum spurningum
um upphaf
kórónuveirunnar}
Hvers vegna
þessi leynd?
E
r ekkert undarlegt við það, að á
sama tíma og allir formenn
þingflokka á Alþingi vinna að
breytingum stjórnarskrár-
innar, þá skuli það einungis
vera formaður Flokks fólksins sem krefst
fullrar greiðslu fyrir aðgang að sjávar-
auðlindinni?
Aðrir vilja „sanngjarnt“ eða „eðlilegt verð
fyrir aflann. Auðvitað eigum við að setja regl-
ur um fullt verð fyrir aðgang, ekki einungis
að sjávarauðlindinni heldur og öðrum auð-
lindum sem landið okkar hefur að gefa og
ekki eru sérstaklega skilgreindar sem einka-
eign.
Eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur
stjórnlagaráðs haustið 2012 eftir langt ferli endurskoð-
unarvinnu um stjórnarskrá lýðveldisins Íslands kom
skýr vilji þjóðarinnar í ljós hvað lýtur að því að í nýrri
stjórnarskrá verði náttúruauðlindir sem ekki eru í
einkaeigu lýstar þjóðareign. Þjóðin tók af allan vafa þar
sem 82,9% þeirra sem tóku afstöðu sögðu JÁ.
Er ekki ágætt að fá „sanngjarnt“ eða „eðlilegt“ verð
fyrir aðgang að sjávarauðlindinni? Flokkur fólksins
segir NEI! Það er algjörlega óásættanlegt að ætla að
halda uppteknum hætti þar sem það er undir geðþótta
hagsmunatengdra stjórnmálamanna komið hvað telst
„sanngjarnt“ og/eða „eðlilegt“ gjald hverju sinni. Króna
gæti þótt sanngjarnt hjá einhverjum á meðan 0 krónur
væru sanngjarnt verð hjá öðrum.
Hundruð milljarða hafa flætt til fárra fjöldskyldna
sem telja sig eiga nánast allan óveiddan fisk í
sjónum umvherfis landið og það til fram-
tíðar. Milljarðar hafa farið í að sölsa undir
sig eignarhald í nánast öllu sem nöfnum tjáir
að nefna og koma sjávarútvegi ekkert við.
Allt í boði hagsmunagæslupólitíkusanna sem
gefa lítið fyrir samfélagslega ábyrgð og vel-
ferð þeirra sem ekki hafa ráð á að styrkja þá
með stæl.
Það er hver að verða síðastur til að taka í
taumana og neita að verja þetta rán á því
sem þjóðin á öll saman. Við búum við lýðræði
þar sem kjósendur velja sér valdhafana sem
síðan starfa í skjóli þingræðis. Það er löngu
orðið tímabært að alþingismenn axli þá
ábyrgð sem þeim ber. Það er ekki nóg að
hrópa að við búum við besta fiskveiðistjórnunarkerfi í
heimi þegar staðreyndin er sú að við búum við eitt það
versta arðránskerfi sem um getur.
Flokkur fólksins vill afturkalla allar fiskveiðiheim-
ildir á næstu 5 árum. Þá reynir á lagaákvæði um að
afturköllun tímabundinna veiðiheimilda myndar aldrei
bótakröfu á ríkissjóð.
Veiðiheimildir á öllum nytjastofnum í íslenskri lög-
sögu verði boðnar upp. Það er þrugl að þeir ríku gætu
keypt allan aflann og að það yrði algjör samþjöppun í
greininni. Hún er þegar til staðar. Flokkur fólksins vill
kvótann heim. Þjóðin á sjávarauðlindina sem og allar
aðrar auðlindir landsins sem ekki eru í einkaeign.
Inga Sæland
Pistill
Innköllum aflaheimildir og bjóðum þær upp
Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Stefnir í keppni um
eldi í Ísafjarðardjúpi
BAKSVIÐ
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Kristján Þór Júlíusson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
staðfesti á föstudag tillögu Hafrann-
sóknastofnunar að nýju áhættumati
vegna mögulegrar erfðablöndunar
frá laxeldi. Uppfært áhættumat
erfðablöndunar gerir ráð fyrir því að
ala megi 106.500 tonn af laxi í sjó,
mælt í hámarkslífmassa, og felur í
sér 20 prósenta aukningu á heimilu
eldi frjórra laxa.
Hámarkseldismagn á frjóum
laxi verður 64.500 tonn á Vest-
fjörðum og 42 þúsund tonn á Aust-
fjörðum. Á Vestfjörðum er stærsta
breytingin sú að við endurskoðað
mat verður leyfilegt að ala 12 þús-
und tonn í Ísafjarðardjúpi. Jafn-
framt verður leyfilegt að ala 2.500
tonn í Önundarfirði.
Ljóst er að mikil samkeppni
verður um svæðið við Ísafjarðar-
djúp. Fiskeldisfyrirtækin Arnarlax,
Arctic fish og Háafell munu bera ví-
urnar í tonnin 12 þúsund. Gera má
ráð fyrir að geta þeirra til eldis í
Djúpinu nemi rétt ríflega 26 þúsund
tonnum og því er afar líklegt að sam-
keppnin verði hörð. Af þessum sök-
um gætu einhver framangreinda
fyrirtækja orðið að hluta til útundan
við úthlutun á svæðinu.
Fagnar nýju áhættumati
Sigurður Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Arctic Fish, segir að
með framangreindu áhættumati hafi
verið stigið jákvætt skref. Í fram-
haldinu verði vonandi fleiri og stærri
skref tekin.
„Það er mjög jákvætt að verið
sé að ýta undir uppbyggingu laxeldis
í Ísafjarðardjúpi. Þetta er eitthvað
sem samfélagið og fyrirtækin á
svæðinu hafa verið að bíða eftir,“
segir Sigurður og bætir við að hann
hefði jafnvel viljað ganga enn
lengra. „Þetta er kannski ekki eins
stórt skref og við hefðum viljað stíga
en þetta er klárlega eitthvað til að
byggja á. Vonandi hjálpar þetta til
við frekari uppbyggingu í framhald-
inu.“
Skiptar skoðanir á matinu
Að hans sögn eru ný viðmið í
takt við stefnu Arctic Fish. Þá bind-
ur hann vonir við að fyrirtækið muni
í framhaldinu vinna með viðkomandi
aðilum að frekari uppbyggingu í Ísa-
fjarðardjúpi. „Við erum auðvitað
mjög þakklát fyrir að þetta skref
hafi verið tekið. Það er í anda okkar
sem fyrirtækis að taka skrefin hægt
og fylgjast vel með,“ segir Sigurður.
Að því er fram kemur í áhættu-
matinu verður eldi ekki stundað nær
veiðiám í botni Ísafjarðardjúps en
sem nemur línu frá Ögurnesi að Æð-
ey og Hólmasundi. Takmarkar þetta
því svæði til fiskeldis umtalsvert.
Kristján G. Jóakimsson, vinnslu- og
markaðsstjóri Hraðfrystihússins
Gunnvarar, sem á Háafell, segir að
umrædd áform komi sér illa fyrir
fyrirtækið. „Við höfum verið að
vinna að því að fá leyfi fyrir laxeldi á
svæðinu og helmingurinn af þeim
svæðum sem við vorum að teikna
upp lendir innan við þessa línu. Það
verður snúið að vinna sig í gegnum
það,“ segir Kristján og bætir við að
með samþykktu áhættumati sé verið
að þjappa framangreindum fyrir-
tækjum á minna svæði. Það sé jafn-
framt slæmt fyrir reksturinn.
„Við höfum verið að miða við að
vera með þrjú árgangasvæði þar
sem eitt er í hvíld og tvö í gangi. Það
er gert til að minnka umhverfisálag
og sjúkdóma. Þegar helmingur af
svæðinu dettur út verður það erf-
iðara. Þannig verða fleiri fyrirtæki á
sama svæði sem er ekki mjög spenn-
andi rekstrarlega. Við sjáum ekki
ástæðuna fyrir þessu, það er verið
að búa til hindranir.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bolungarvík Ljóst er að mikil samkeppni verður um svæðið við Ísafjarðardjúp en þar má nú ala um 12.000 tonn.