Morgunblaðið - 08.06.2020, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2020
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
„ATHUGAÐU HVORT ÞÚ GETUR FENGIÐ
HANN TIL AÐ SEGJA HVER FÉKK HANN
TIL ÞESS.”
„SIGURÐUR, FÆRÐU MÉR DJÚPSTEIKTA
LAUKHRINGI OG FÆRÐU SVO KERTIÐ Á
ENDA BORÐSINS.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... lofa henni stjörnum
himins.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ODDI, ÞÚ ERT MJÖG
FÆR Í AÐ VERA HUNDUR
EINS OG ÞAÐ SÉ
MIKIÐ HRÓS
ÉG BARÐIST EITT SINN VIÐ SVO
HÉGÓMLEGAN ANDSTÆÐING AÐ
HANN HÆTTI AÐ SKYLMAST TIL ÞESS
AÐ SPEGLA SIG Í MÁLMSKILDINUM
MÍNUM!
ÉG VONA AÐ ÞÚ HAFIR
SÆRT HANN ILLA!
HVORT ÉG GERÐI! ÉG
SAGÐI HONUM AÐ HANN
VÆRI Í BESTA FALLI SEXA!
mánaða aldri. Davíð er sonur Jenn-
ýjar Sigurbjartsdóttur og Sigur-
sveins Óla, bróður Rögnu Freyju.
Davíð er búsettur í Kópavogi. Maki:
Gunnur Elísa Stefánsdóttir, f. 31.3.
1980, d. 10.5. 2014. Börn þeirra eru
Alexander Bjarmi, f. 2000, Daníel
Snær, f. 2001, og Embla Júlía Mjöll,
f. 2009.
Systkini Rögnu Freyju: Fanney
Magna Karlsdóttir, f. 17.1. 1944,
tónmenntakennari á Akranesi; Sæ-
rún Æsa Karlsdóttir, f. 20.5. 1945,
fv. bóndi á Kvígsstöðum; María Val-
gerður Karlsdóttir, f. 10.9. 1948,
matráðskona á Siglufirði; Sigur-
sveinn Óli Karlsson, f. 27.3. 1954, d.
17.12. 1981; Jón Óttarr Karlsson, f.
21.3. 1956 Reykjavík, íþróttafræð-
ingur í Kópavogi.
Foreldrar Rögnu Freyju voru
hjónin Katrín Gamalíelsdóttir, f.
23.8. 1919 í Réttarholti í Blönduhlíð,
d. 11.4. 1980, húsfreyja og sauma-
kona á Siglufirði og í Kópavogi, og
Karl Sæmundarson, f. 15.7. 1919 á
Krakavöllum í Fljótum, d. 20.2.
1996, húsgagnasmiður. Sambýlis-
kona Karls frá 1982 var Irma
Geirsson frá Pommern í Póllandi, f.
25.9. 1920, d. 19.3. 2010, matráðs-
kona.
Ragna Freyja
Karlsdóttir
Dúi Kristján Grímsson
bóndi í Langhúsum, langafi hans
var Grímur græðari Magnússon
Eugenía Jónsdóttir
húsfreyja í
Langhúsum í Fljótum
Sæmundur Dúason
bóndi á Krakavöllum, síðar kennari
í Fljótum,Grímsey og á Siglufirði
Guðrún Valdný Þorláksdóttir
húsfreyja á Krakavöllum, í
Grímsey og á Siglufirði
Karl Sæmundarson
húsgagnasmiður á Siglufirði
og verslunarm. í Kópavogi
Þorlákur Þorláksson
bóndi á Lambanesreykjum
Margrét H. Grímsdóttir
húsfreyja á Lambanesreykjum í Fljótum
Dr. Jón Dúason stórkaupmaður
í Khöfn og fræðimaður
Ólöf Grímea
Þorláksdóttir listakona
Sigurjón Jónsson
bóndi í Garðshorni
Rósa Friðbjarnardóttir
húsfreyja í Garðshorni í
Eyjafirði
Gamalíel Sigurjónsson
verkamaður á Sauðárkróki
María Rögnvaldsdóttir
húsfreyja og skáld á Sauðárkróki
Rögnvaldur Björnsson
bóndi í Réttarholti
Freyja Jónsdóttir Normann
húsfreyja í Réttarholti í Blönduhlíð
Úr frændgarði Rögnu Freyju Karlsdóttur
Katrín Gamalíelsdóttir
húsfreyja og saumakona
á Siglufirði og í Kópavogi
Helgi R. Einarsson yrkir og kall-ar „Góðmennsku“:
Leysir öll vandamál laglega
Lilla og auk þess mjög faglega.
Svo mikil er gæskan
og gáskafull æskan
að gera ’ða vill ’ún helst daglega.
Gústi Mar. orti 22. maí á Akur-
eyri:
Hér er dvölin feikifín
ég fæ mér húfu á kollinn.
Hátt í suðri sólin skín
á Sjallann, Hof og Pollinn.
Ólafur Stefánsson svaraði:
Seggir verða menn að meiri
– margoft það á sjálfum finn,
þegar gista Akureyri,
eins og Gústi í þetta sinn.
Jónas Frímannsson sendi mér
„Kvöldvísu“ á fimmtudag:
Bláhiminn mér blasir við,
blómum skrýdd er grundin.
Andar kyrrð og aftanfrið
út um nes og sundin.
Á Boðnarmiði yrkir Gylfi Þor-
kelsson:
Með menntun í ákafa framsókn fer
og forðast að bíða með efndirnar.
Þá skynsamlegast og skilvirkast er
að skipa rétt hæfnisnefndirnar.
Ég hygg að afdráttarháttur sé
erfiðastur rímnahátta, a.m.k. er
hann mér ofviða. Guðmundur Arn-
finnsson yrkir og skýrir svo:
„Fremsti stafur tekinn framan af
hverju orði í fyrri parti vísunnar,
orðin, sem eftir standa, mynda
seinni partinn“:
Hrasa flestir, hrumur kveður,
hrekkur særir.
Rasa lestir, rumur veður,
rekkur ærir.
Jón Atli Játvarðarson skrifar á
Boðnarmjöð: „Þegar fluttar eru
veðurlýsingar frá Reykjavík er
mælingin inni á milli trjánna í
Öskjuhlíðinni. Í sömu veðurlýsingu
er gerð grein fyrir veðrinu á Vest-
fjörðum. Sú mæling fer fram á
Steingrímsfjarðarheiði. Þetta leiðir
að sjálfsögðu til veðurspánna einn-
ig. Hvað annað?“:
Sumarið um segi fátt,
samt ég er á tánum.
Skoða vinda- og veðraþátt
og vætuspána á skjánum.
Gott ef ekki gömul synd
með guðsins hefnd og reiði.
Ég stari á spá um stinnings-vind
á Steingrímsfjarðarheiði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Veðrið á Steingrímsfjarðar-
heiði og hæfnisnefndir