Morgunblaðið - 08.06.2020, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2020
Mjólkurbikar karla
1. umferð:
Vængir Júpíters – KH ............................. 3:1
Haukar – Elliði ......................................... 3:1
Hvíti riddarinn – KFS.............................. 2:1
KV – Kári .................................................. 0:3
Þróttur V. – Ægir ..................................... 2:1
Hörður – Vestri ........................................ 1:4
Skallagrímur – Ýmir ................................ 0:2
Dalvík/Reynir – KF ................................. 1:2
Kría – Hamar............................................ 2:3
Höttur/Huginn – Sindri ...................(frl.) 2:1
Álftanes – Fram........................................ 0:4
Mídas – KM............................................... 4:1
Vatnaliljur – Afturelding ....................... 0:12
KFG – KB ................................................. 7:1
Þróttur R. – Álafoss ................................. 1:0
Ísbjörninn – Björninn ......................(frl.) 4:5
SR – Uppsveitir ........................................ 2:0
KFR – GG ................................................. 0:2
KF Bessastaðir – Víðir ............................ 1:5
Samherjar – Nökkvi................................. 3:0
Tindastóll – Kormákur/Hvöt................... 2:1
Stokkseyri – Afríka .................................. 3:1
Árborg – Augnablik......................... (0:0) 8:7
Léttir – Reynir S ...................................... 1:9
Mjólkurbikar kvenna
1. umferð:
ÍR – Álftanes.....................................(frl.) 2:1
Hamar – ÍA ............................................... 0:8
Fjarð/Hött/Leiknir – Hamrarnir ... (1:1) 4:2
Danmörk
Nordsjælland – Midtjylland ................... 0:1
Mikael Anderson lék síðustu 14 mínút-
urnar með Midtjylland.
FC Köbenhavn – Randers....................... 2:1
Ragnar Sigurðsson var ekki í leikmanna-
hópi FC Köbenhavn.
Horsens – Bröndby.................................. 3:2
Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Bröndby.
SönderjyskE – Silkeborg........................ 2:2
Eggert Gunnþór Jónsson lék fyrstu 78
mínúturnar með SönderjyskE en Ísak Óli
Ólafsson var ekki í leikmannahópnum.
AaB – AGF................................................ 2:3
Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 61
mínútuna með AGF og lagði upp mark.
OB – Esbjerg ............................................ 3:1
Aron Elís Þrándarson lék allan leikinn
með OB og skoraði þriðja markið.
Hobro – Lyngby....................................... 2:2
Frederik Schram er varamarkvörður
Lyngby.
Staðan:
Midtjylland 26 21 2 3 42:14 65
København 26 18 2 6 47:29 56
AGF 26 14 5 7 42:28 47
Brøndby 26 13 3 10 47:37 42
Nordsjælland 26 12 5 9 48:35 41
AaB 26 11 5 10 44:33 38
Randers 26 10 5 11 39:35 35
Horsens 26 10 4 12 25:44 34
OB 26 9 6 11 34:30 33
Lyngby 26 9 5 12 31:45 32
SønderjyskE 26 6 9 11 31:44 27
Hobro 26 3 14 9 25:35 23
Esbjerg 26 4 6 16 22:44 18
Silkeborg 26 3 7 16 31:55 16
Sex efstu liðin halda nú áfram og spila
tvöfalda umferð í viðbót um titilinn, taka
stigin með sér. Hin átta liðin fara í umspil.
Þýskaland
Augsburg – Köln...................................... 1:1
Alfreð Finnbogason lék síðustu 14 mín-
úturnar með Augsburg.
RB Leipzig – Paderborn......................... 1:1
Samúel Kári Friðjónsson lék ekki með
Paderborn vegna meiðsla.
Leverkusen – Bayern München ............. 2:4
Eintracht Frankfurt – Mainz.................. 0:2
Fortuna Düsseldorf – Hoffenheim ......... 2:2
Dortmund – Hertha Berlín ..................... 1:0
Werder Bremen – Wolfsburg ................. 0:1
Union Berlín – Schalke ............................ 1:1
Staða efstu liða:
Bayern M. 30 22 4 4 90:30 70
Dortmund 30 19 6 5 81:35 63
RB Leipzig 30 16 11 3 75:32 59
Mönchengladb. 30 17 5 8 57:36 56
Leverkusen 30 17 5 8 56:40 56
Wolfsburg – Frankfurt ........................... 5:1
Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leik-
inn með Wolfsburg.
Efstu lið: Wolfsburg 52, Bayern M. 44,
Hoffenheim 40, Frankfurt 30, Essen 28,
B-deild:
Jahn Regensburg – Darmstadt.............. 3:0
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik-
inn með Darmstadt.
Grikkland
Larissa – Asteras Tripolis ..................... 1:2
Ögmundur Kristinsson lék allan leikinn
með Larissa.
Úkraína
Zorya Luhansk – Kolos Kovalivka ........ 1:0
Árni Vilhjálmsson lék fyrstu 69 mínút-
urnar með Kolos Kovalivka.
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar kvenna, 1. umferð:
Vivaldi-völlur: Grótta – Víkingur R .... 19.15
Fagverksvöllur: Afturelding – HK..... 19.15
Extra-völlur: Fjölnir – Augnablik ...... 19.15
Framvöllur: Fram – Grindavík ................ 20
Mjólkurbikar karla, 1. umferð:
Skessan: ÍH – Berserkir........................... 20
Í KVÖLD!
Á HLÍÐARENDA
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Selfoss vann sinn annan bikar á tíu
mánuðum þegar liðið mætti Íslands-
meisturum Vals á Origo-vellinum á
Hlíðarenda í Meistarakeppni
kvenna í knattspyrnu á laugardag-
inn.
Elín Metta Jensen kom Vals-
konum yfir á 37. mínútu en Tiffany
McCarthy jafnaði metin fyrir Sel-
foss í upphafi síðari hálfleiks. Það
var svo Anna María Friðgeirsdóttir
sem skoraði sigurmark leiksins á 80.
mínútu með skoti af 30 metra færi.
Leikurinn var afar kaflaskiptur
og voru Valskonur sterkari í fyrri
hálfleik en Selfyssingar stjórnuðu
ferðinni í þeim síðari. Þrátt fyrir að
Valsliðið hafi skapað sér betri mark-
tækifæri í leiknum var sigur Sel-
fossliðsins sanngjarn, enda lagði lið-
ið meira á sig í leiknum en
Íslandsmeistararnir.
Þrátt fyrir að Selfoss sé að mörgu
leyti með nýtt lið frá því síðasta
sumar virkuðu bikarmeistararnir af-
ar samstilltir á köflum. Landsliðs-
konurnar Anna Björk Kristjáns-
dóttir og Dagný Brynjarsdóttir
gera afar mikið fyrir liðið og komu
með mikla ró og reynslu sem smit-
aði út frá sér til yngri leikmanna
liðsins sem spiluðu oft á tíðum eins
og þær væru allar með 200 leiki á
bakinu í efstu deild.
Eins og uppspil Valsliðsins var
gott í fyrri hálfleik, undir ósam-
stilltri pressu Selfyssinga, var það
jafn dapurt í síðari hálfleik eftir að
Selfoss hafði skerpt á hápressu
sinni. Miðjumenn liðsins voru í stök-
ustu vandræðum með að losa bolt-
ann og þá gaf markvörður Vals og
íslenska landsliðsins tvö mörk á silf-
urfati.
Selfossliðið er til alls líklegt í
sumar en brotthvarf Margrétar
Láru Viðarsdóttur virðist hafa haft
mun meiri áhrif á Íslandsmeist-
arana en maður hefði haldið.
Selfyssingar
með yfirlýsingu
Valskonur virka leiðtogalausar
Morgunblaðið/Sigurður
Fyrirliði Anna María Friðgeirsdóttir tilbúin að hefja bikarinn á loft.
allan tímann og vann að lokum
öruggan sigur. Lék Aron hringina
þrjá á samtals sex höggum undir
pari, fjórum höggum betur en at-
vinnukylfingurinn Haraldur
Franklín Magnús og hinn efnilegi
Dagbjartur Sigurbrandsson. Ólaf-
ur Björn Loftsson var fjórði á einu
höggi undir pari. Axel Bóasson,
sem vann fyrsta mót ársins á móta-
röðinni, varð að sætta sig við 5.-8.
sæti en hann lék á samtals tveimur
höggum yfir pari. Þá hafnaði Ís-
landsmeistarinn Guðmundur Ágúst
Kristjánsson í 17.-18. sæti á átta
höggum yfir pari.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Ís-
landsmeistari í golfi, vann sinn
annan sigur á árinu er hún stóð
uppi sem sigurvegari á Golfbúð-
armótinu sem fram fór á Hólms-
velli í Leiru um helgina. Þetta var
annað mótið af fimm á mótaröð
Golfsambands Íslands á árinu
2020. Guðrún Brá stóð einnig uppi
sem sigurvegari á ÍSAM-mótinu á
heimslistamótaröðinni í maí. Ólafía
Þórunn Kristinsdóttir var með eins
höggs forystu á Guðrúnu fyrir
lokahringinn í gær, en Ólafía náði
sér ekki á strik á lokahringnum og
Guðrún færði sér það í nyt. Lék
Guðrún samtals á níu höggum yfir
pari og var tveimur höggum á
undan Sögu Traustadóttur sem
varð önnur. Ragnhildur Krist-
insdóttir og Ólafía Þórunn komu
þar á eftir á þrettán höggum yfir
pari. Stóð Ólafía uppi sem sig-
urvegari á fyrsta móti Golf-
sambandsins á Akranesi og hafa
Guðrún og Ólafía því unnið sitt
mótið hvor á mótaröðinni.
Aron Snær Júlíusson vann sitt
fyrsta mót á árinu er hann lék best
allra í karlaflokki. Aron, sem varð
í 21. sæti á EM áhugakylfinga fyrir
tveimur árum, var með forystuna
Annar sigur Íslandsmeistarans
Ljósmynd/seth@golf.is
Gull Guðrún Brá Björgvinsdóttir
bar sigur úr býtum á Leirunni.
Í VESTURBÆNUM
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Formlegur upphafsleikur Íslands-
móts karla í knattspyrnu fór fram á
Meistaravöllum í Vesturbænum í
gærkvöldi, þar sem KR hafði betur
gegn Víkingi Reykjavík, 1:0, í Meist-
arakeppni KSÍ. Um er að ræða ár-
legan leik milli Íslands- og bikar-
meistara en KR vann Íslandsmótið í
27. sinn í fyrra, nokkuð óvænt og
með miklum yfirburðum. Víkingar
urðu bikarmeistarar í annað sinn
með því að leggja FH í úrslita-
leiknum.
Íslandsmótið er nokkuð seint á
ferðinni í ár eftir óvenjulega tíma en
undanfarin ár hefur þessi opnunar-
leikur farið fram í apríl. Þó nú sé júní
var engu að síður vorbragur á spila-
mennskunni í Frostaskjóli í gær.
Bæði lið voru nokkuð lengi í gang og
var nokkur bið eftir fyrstu tækifær-
um áhorfenda til að rísa úr sætum
með öndina í hálsinum.
Sjóaðir í að vinna titla
Það var ekki að sjá á leiknum að
hér hefði ríkt samkomubann nýlega.
Tæplega þúsund manns lögðu leið
sína að Meistaravöllum til að berja
sín lið augum, þyrstir knattspyrnu-
áhugamenn sem hafa þurft að bíða
allt of lengi. Þó upphafið á leiknum
hafi valdið vissum vonbrigðum lifnaði
nokkuð yfir gangi mála eftir því sem
leið á kvöldið. Daninn Kennie Chop-
art skoraði sigumarkið eftir liðlega
hálftíma leik með því að vippa bolt-
anum í autt net eftir óþarfa skóg-
arferð Ingvars Jónssonar í marki
Víkinga. Því næst byrjaði að kólna og
rigna og þá fyrst færðist hiti í leik-
inn.
Pétur Guðmundsson dómari þurfti
að lyfta gula spjaldinu sjö sinnum,
þar af fimm sinnum í síðari hálfleik
er menn fóru að takast hressilega á.
Leikurinn var ekki ódrengilega leik-
inn, þó eitthvað hafi verið um stimp-
ingar manna á milli. Sennilega var
það bara langþráð að komast á blautt
grasið og láta aðeins finna fyrir sér.
Víkingar reyndu að kreista fram
jöfnunarmark eftir því sem á leið, en
þeim tókst illa að opna iðna og gríð-
arlega öfluga vörn KR-inga. Það býr
ótrúleg reynsla í liði KR og foringjar
á borð við Pálma Rafn Pálmason og
Óskar Örn Hauksson kunna svo
sannarlega að spila leikinn. Vestur-
bæingar vita einfaldlega hvað til þarf
til að vinna fótboltaleiki og titla. Þeir
eru eitt best æfða lið landsins og
maður veltir því fyrir sér hvort hægt
sé að brjóta þá á bak aftur, svo lengi
sem leikmenn þeirra eru samvisku-
samir og vinna vinnuna sína.
Víkingar, aftur á móti, vilja vera
þar sem KR er. Þeir fengu að bragða
á árangri í fyrra með bikarsigri, en
það vantar enn upp á kænskuna, ætli
þeir sér alla leið í sumar.
Enn einn bikarinn í safn KR
KR hreppti fyrsta hnoss sumarsins Víkingar þurfa að vera klókari
Morgunblaðið/Íris
Meistarar Óskar Örn Hauksson lyftir bikarnum í Frostaskjóli í gærkvöldi.
KR-ingar eru meistarar meistaranna eftir sigurinn á Víkingum.