Morgunblaðið - 08.06.2020, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
EIN BESTA MYND SEM KOMIÐ HEFUR Á ÞESSU ÁRI.
JAMIE FOXX OG MICHAEL B.JORDAN
ERU BÁÐIR HÉR MEÐ FRÁBÆRAN LEIK. MYND SEM ALLIR
KEPPAST VIÐ AÐ HÆLA EFTIR AÐ HAFA SÉÐ MYNDINA.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hinn óviðjafnanlegi hipphopp-dúett
kef LAVÍK sendi frá sér fjögurra
laga plötu 25. maí síðastliðinn sem
nefnist Heim eftir 3 mánuði í burtu.
Platan er gefin út af Öldu Music og
er jafnframt fyrsta plata dúettsins
sem fyrirtækið gefur út.
Dúettinn skipa þeir Einar Birkir
Bjarnason og Ármann Örn Frið-
riksson, báðir frá Höfn í Hornafirði
en ekki Keflavík eins og margir ef-
laust halda. Þeir hafa allt frá árinu
2015 sent frá sér plötur, fimm í fullri
lengd og sex smáskífur. Að vanda
eru góðir gestir í lögum kef LAVÍK-
UR, Steindi Jr. á spaugilega inn-
komu í öllum lögunum og einnig
koma við sögu JóiPé, píanóleikarinn
Magnús Jóhann og gítarleikarinn
Þorkell Ragnar en Starri Snær sá
um að mixa og mastera.
Breiðskífur kef LAVÍKUR eru
með spaugilegum titlum í anda text-
anna og fyrstu þrjár mynda saman
nafn hljómsveitarinnar en þær eru
Kuldinn er fínn, Lifum alltaf og Ve-
sæl í kuldanum. Næst kom svo Ágæt
ein: Lög um að ríða og/eða nota fíkni-
efni og á eftir henni Blautt heitt
langt vont sumar. Þetta er ekki tón-
list fyrir blygðunargjarna, svo mikið
er víst.
Á tónlistarhátíð í Keflavík
Þeir Ármann og Einar eru æsku-
vinir, báðir á 24. aldursári og hófu að
gefa út tónlist undir heitinu kef LA-
VÍK árið 2015, sem fyrr segir. Fyrir
þann tíma voru þeir bara að leika sér,
segir Ármann.
En hvers vegna kalla þeir sig
þessu sérkennilega nafni, kef LA-
VÍK? „Árið 2013 gerðum við fyrsta
lagið, það heitir „Í sjálfum mér“ og
er ástæðan fyrir því að við gerðum
fleiri lög, af því það varð vinsælt og
við vildum þá nota nafnið. Það ár fór-
um við á tónlistarhátíð sem hét
Keflavík Music Festival og við bár-
um þetta alltaf fram „kef-lavík“ og
fannst það fyndið. Þegar kom að því
að vildum setja þetta lag í kosmósið,
Soundcloud eða YouTube, þurftum
við að setja inn eitthvert listamanna-
nafn og settum inn kef LAVÍK,“ seg-
ir Ármann.
–Titill plötunnar, hvað er verið að
vísa í með honum?
„Þar er verið að vísa í „Home after
3 months away“ eftir Robert Lowell.
Lowell er eitt af þekktustu „confes-
sional“ ljóðskáldunum og í raun fór
það nafn á það lag, síðasta lagið, út af
því að það er frekar heiðarlegur
gaur,“ svarar Ármann kíminn. „Síð-
an er ég búinn að vera mikið meira
heima á Höfn í Hornafirði síðustu
mánuði og nafnið var líka viðeigandi
út af því.“
–Eruð þið eina hipphopp-grúppan
á Höfn í Hornafirði?
„Ég ætla rétt að vona það.“
Hugsanaflæði
–Textarnir virka í fyrstu fyndnir á
mann en svo verða þeir meira eins og
hugsanaflæði, eitthvert hömluleysi
þar á ferð.
„Já, ég var með Brynjari í Club-
Dub um daginn og sagðist vilja bara
„no cap“ þannig að við erum „no
cap“,“ svarar Ármann sposkur. Það
er sumsé ekkert lok á kef LAVÍK.
Blaðamaður hefur orð á því að oft
megi finna gróft og svart spaug í
textum kef LAVÍKUR og Ármann
tekur undir. „Það má ekki taka þetta
of alvarlega,“ segir hann, „það þarf
alltaf að vera grín.“
En eru þeir félagar í uppreisn
gegn hinni dæmigerðu popp-
textasmíð?
„Já, þetta er allan daginn uppreisn
gegn því. Margir textanna okkar eru
ekkert lagatextar, eins og með
„Heim eftir 3 mánuði í burtu“ er
þetta meira svona „train of thought“
prósi frekar en lagatexti,“ svarar Ár-
mann og segist hrifinn af frjálsu
flæði.
„Sjankaðu honum og sjúddan!“
–Steindi Jr. talar inn á öll lögin á
nýju plötunni, mynda þau þá sam-
fellda sögu? „Ja, það er svolítil grín-
saga en ekki jafnalvarlegt konsept
og hin lögin okkar. Þetta er í raun-
inni saga um að við séum að taka
þessi lög upp á mjög stuttu tímabili
og hann að reyna að hringja í okkur á
sama tíma,“ svarar Ármann og segir
að þeir Einar og Steindi hafi samið
þau atriði á staðnum, í upptökum.
Steindi nær loksins í þá félaga í
lokalaginu, er þá orðinn verulega
pirraður og segir: „Einar og Ár-
mann, þetta er í síðasta sinn sem ég
reyni að ná í ykkur. Bara takk fyrir
að eyðileggja líf mitt … Já halló?
Sjankaðu honum og sjúddan! Hvar í
andskotanum eruð þið búnir að
vera?“
Ármann segir „sjankaðu honum
og sjúddan“ vera „lingó“ frá Höfn.
„Þetta er beint úr hornfisku lingói,“
segir hann og blaðamaður spyr hvað
þetta þýði eiginlega? „Það þýðir
eiginlega það sama og að segja
„farðu úr bænum“, notað við svipuð
tilfelli. Það er dálítil reiði í því.“
Í anda Símons og Garfunkels
Ármann er spurður að því hvort
þeir félagar sinni öðrum störfum, ut-
an tónlistarinnar, og segist hann
vera sjómaður. „Ég fór á sjó af því að
ég vildi ekki bara vera tónlistar-
maður,“ segir hann og hlær við. Ein-
ar er að læra til kokks.
Myndin sem blaðamaður fékk með
tilkynningu frá Öldu Music um plötu
þeirra Ármanns og Einars er ansi
spaugileg. „Ertu að tala um emo
Simon og Garfunkel-myndina?“ spyr
Ármann og blaðamaður segist nokk-
uð viss um að svo sé. Það eina sem
vantar á þá félaga á myndinni eru
geislabaugar og vængir.
„Við vildum virkilega eyða pening í
eitthvað sem heppnaðist vel,“ segir
Ármann og hlær. „Við lítum svo á að
við séum í sama flokki og Simon og
Garfunkel. Þetta er endurgerð á ljós-
mynd af þeim,“ segir hann svo til
frekari útskýringar.
Plötur þeirra félagar og lög má
finna á Spotify og Soundcloud og
tónlistarmyndbönd á YouTube.
Ljósmynd/Hlynur Helgi
Æskuvinir Ármann og Einar vel tilhafðir á ljósmynd sem ku vera stæling á ljósmynd af Simon og Garfunkel.
„Þarf alltaf að vera grín“
Dúettinn kef LAVÍK sendir frá sér breiðskífuna Heim eftir 3 mánuði í burtu Allt látið flakka
„Við lítum svo á að við séum í sama flokki og Simon og Garfunkel,“ segir Ármann Örn Friðriksson