Morgunblaðið - 08.06.2020, Blaðsíða 32
Bandaríski kvikmynda-
gerðarmaðurinn
Woody Allen segir í
samtali við dagblaðið
Washington Post að
kórónuveiru-
faraldurinn sé enn
einn naglinn í líkkistu
kvikmyndageirans og
líka kvikmyndaferils
hans sjálfs. Nýjasta
kvikmynd Allen, A
Rainy Day in New York,
hefur hlotið heldur neikvæða gagnrýni og ekki hefur
enn tekist að finna dreifingaraðila fyrir hana í Banda-
ríkjunum eftir að fyrirtækið Amazon Studios sagði sig
frá því verkefni. Allen segist ekki viss um að hann muni
gera fleiri kvikmyndir þar sem honum hugnist ekki að
gera þær fyrir áhorf í sjónvarpi. Enn á eftir að frumsýna
kvikmynd sem hann hefur þegar gengið frá og nefnist
Rifkin’s Festival. Allen er orðinn 84 ára og því löngu
kominn á eftirlaunaaldur.
Allen íhugar að hætta
MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 160. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Árbæingurinn Daði Ólafsson er á leið inn í sitt áttunda
tímabil með knattspyrnuliði Fylkis en hann er 26 ára
gamall. Mikið miðjumoð hefur einkennt liðið undan-
farin ár en Daði segir að það sé mikið hungur hjá leik-
mönnum liðsins að gera betur í sumar. Daði er uppalinn
í Árbænum og segir að bikarmeistaratitlar liðsins 2001
og 2002 séu Fylkismönnum innblástur í dag. Þrátt fyrir
að hafa verið sex ára á þessum tíma man hann vel eftir
því þegar leikmenn liðsins keyrðu fagnandi um Árbæ-
inn með bikarinn á gömlum vörubíl. »27
Fótboltinn alltaf verið númer eitt,
tvö og þrjú hjá vinstri bakverðinum
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Fiskurinn og sundið hafa gert mér
gott,“ segir Skagamaðurinn og
mjólkurfræðingurinn Oddur Magn-
ússon, sem starfaði í hálfa öld í
mjólkuriðnaðinum, þar af í um 40
ár sem mjólkurbússtjóri, og er 100
ára í dag. „Ég hef alltaf verið
heilsuhraustur,“ leggur hann
áherslu á og þakkar það hreyfing-
unni og hollum mat.
Oddur býr í eigin íbúð í Reykja-
vík, sér um
sig sjálfur,
þrífur, þvær
og straujar,
eldar ofan í
sig og bakar
brauð og kök-
ur fyrir sig og
aðra, svo fátt
eitt sé nefnt.
Virka daga
fer hann í Laugardalslaugina, tek-
ur fyrsta strætó klukkan 6.40 og er
mættur klukkan sjö, syndir 200
metra, fer í heitu pottana og fái
hann ekki far heim tekur hann
strætó til baka og er kominn á
áfangastað kl. 8.35. „Ég hef stund-
að laugarnar reglulega síðan 1954,
en get ekki verið með heyrnar-
tækin í lauginni og heyri því ekki
hvað er efst á baugi í pottunum,“
segir hann. Bætir við að gott hafi
verið að komast aftur í sund eftir
að laugunum var lokað vegna kór-
ónuveirufaraldursins. „Ég varð að
fara í sturtu heima á hverjum
morgni en nú er allt komið í samt
lag.“
Foreldrar Odds voru Magnús
Sveinsson vélstjóri og Hólmfríður
Oddsdóttir. Hann er elstur níu
systkina og þrjú þau yngstu eru
einnig á lífi. Hann var sendisveinn í
eldra mjólkurbúinu á Akranesi og
þegar hann var 17 ára stakk Sig-
urður Símonarson, kaupfélagsstjóri
og mjólkurbússtjóri, því að honum
hvort hann vildi ekki læra mjólkur-
fræði og taka svo við búinu.
Ísmeistari
Hann byrjaði sem lærlingur hjá
Mjólkursamlagi KEA á Akureyri
og eftir tvö ár þar fór hann í frek-
ara nám í Danmörku 1939. Þar
kynntist hann Kirsten Åse, verð-
andi eiginkonu sinni, en einnig ís-
gerð og starfaði sem ísmeistari áð-
ur en hann flutti til Íslands 1946.
„Ég fann ekki svo mikið fyrir stríð-
inu, ekki fyrr en seinni part árs
1943, þegar Danir fóru að sýna
mótspyrnu og Þjóðverjar létu finna
fyrir sér.“
Eftir heimkomuna byrjaði Oddur
að vinna í gömlu mjólkurstöðinni
við Snorrabraut í Reykjavík. Árið
eftir tók hann við sem mjólkur-
samlagsstjóri á Blönduósi og var
þar til 1954, þegar honum var boðið
starf stöðvarstjóra Mjólkursamsöl-
unnar í Reykjavík, en því gegndi
hann þar til hann var 67 ára og fór
á eftirlaun.
Oddur lét strax til sín taka í ís-
gerð hjá MS. Hann segir að fyrsta
verkið hafi verið að framleiða ís-
blönduna fyrir einkaleyfishafa
Dairy Queen-mjúkíssins. Síðan hafi
eitt leitt af öðru og ísgerð MS orðið
að veruleika. „Við framleiddum alls
konar ís og ístertur,“ segir Oddur,
en hann hafði umsjón með rekstr-
inum til 1980, þegar ísgerðin varð
sjálfstæð eining innan MS.
Oddur og Kirsten eiga þrjú börn
og 51 afkomanda. Þegar hann hætti
að vinna keyptu þau sumarhús á
Sjálandi og ætluðu að vera þar á
sumrin, frá maí fram í september.
„Hún naut þess ekki nema í þrjú
ár, féll frá 1990, en ég hef haldið
áfram að fara þangað á sumrin og
fer út þegar byrjað verður að fljúga
til Danmerkur á ný.“
Morgunblaðið/Eggert
Með allt á hreinu Oddur Magnússon mjólkurfræðingur er 100 ára í dag.
Hann hefur ætíð verið heilsuhraustur og býr sig undir ferð til Danmerkur.
Með fyrstu flugvél til
Kaupmannahafnar
Oddur Magnús-
son 100 ára þakk-
ar fiski og sundi
hreystina