Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Blaðsíða 2
Hvernig kemurðu undan þessum
langa Covid-vetri?
Ég er pínu lúin, ég viðurkenni það. Ég er kennari
við LHÍ og þetta var erfitt tímabil en í leiðinni
fundum við kennarar lausnir sem við vissum ekki
áður að væru til.
Ertu að fara hringinn?
Já, við Svavar Knútur ætlum hringinn og köllum tónleikana
Með faðmlög í farteskinu. Við erum nefnilega að fara að gefa
út plötu sem heitir Faðmlög. Hún kemur út núna um mán-
aðamótin, bæði á geisladisk og vínyl. Platan er með ábreiðum
og eigin lagasmíðum.
Þið kannski faðmið alla landsmenn?
Ætli við umföðmum ekki bara fólk með listinni og ljúfum tón-
um. Listin er svo græðandi eftir svona ástand, bæði fyrir okkur
sem flytjum og fyrir þá sem hlusta. Það er svo gott að setjast
niður með skemmtilegu fólki og gleyma sér eina kvöldstund.
Farið þið bara tvö saman á bíl með gítarinn og
röddina?
Já, og úkúlele og hljómborð.
Verða sagðar sögur á milli laga?
Það verður kvöldvökustemning með sögum og gríni. Svavar er
uppistandari af guðs náð. Hann er sjúklega fyndinn. En það er
skemmtilegt ping-pong á milli okkar.
Er af nógu að taka?
Guð minn góður, já. Við erum til dæmis komin með fimm Abba-
lög í prógrammið. Við erum með hundrað laga lista. Þetta er
þrettánda árið sem við förum af stað í tónleikaferðalag. Og það
er alltaf jafn gaman.
Morgunblaðið/Eggert
KRISTJANA STEFÁNSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Faðmlög í
farteskinu
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.6. 2020
Lesið vandlega upplýsingarnar á g
fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis
eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsing-
um umáhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
Ibuprofen Bril
umbúðumo
Á hreint brilliant verði!
Bólgueyðandi og verkjastillandi
400mg töflur - 30 stk og 50 stk
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is
Veislan
á heima
í Hörpu
Rými sem henta fyrir hverskyns tilefni
Nánar á harpa.is/veislur
Hversu sniðugt er að róta í fortíðinni og rifja upp löngu gleymda at-burði? Mögulega á sumt bara að vera gleymt en ekki geymt. Svei mérþá.
Í vikunni „heimsótti“ ég níunda áratuginn þegar ég fékk afhentan bunka af
bréfum sem ég hafði skrifað vinkonu minni á árunum 1985 til 1987, en þá vorum
við 18-19 ára gamlar og höfðum báðar verið erlendis sem skiptinemar, til skipt-
is. Eina leiðin til að halda sambandi þá var að handskrifa bréf og bíða í margar
vikur eftir þeim, nú eða að hringja, sem var auðvitað alltof dýrt.
Bunkinn var þykkur; um tuttugu
bréf, ekkert undir tólf síðum og sum
langt yfir tuttugu. Lesturinn hófst
eitt kvöldið og stóð yfir í fjóra tíma.
Bréfin lýsa vel tíðaranda níunda ára-
tugar, þegar unglingar lifðu allt öðru-
vísi lífi en þeir gera í dag og afþrey-
ingin var fábrotnari en nú.
Lífið snerist mjög mikið um
djamm, vinkonur, kaffihúsaferðir og
stráka. Þarna má lesa um ferðir í Sig-
tún, Óðal, Þórskaffi og það sem var
vinsælast; Hollywood en auðvitað
vorum við allar með nafnskírteini að
láni til að komast inn. Í einu bréfinu
var algjörlega heill aðgangsmiði í
Holly, mögulega dýrmætur safngripur í dag.
Átján ára stúlkan hafði mikinn áhuga á að skrifa vinkonu sinni um sæta
stráka, sem hún virtist sjá í hverju horni, eitthvað annað en núna.
Ég var til dæmis yfir mig ástfangin af ítölskum strák að nafni Roberto Ger-
vasi sem flippaði pítsum á Horninu. Hann var frá Sikiley og hlustaði á Bob
Marley og var svo mikið krútt, fannst mér greinilega. Mamma og pabbi fréttu
víst af honum, samkvæmt bréfunum, og stríddu mér mikið á þessum unga
„mafíósa“.
Það var því mikil sorg þegar, eftir fárra vikna kynni, við vorum aðskilin sitt í
hvoru landinu. Þrátt fyrir ást þvert yfir hafið lét ég það ekki stoppa mig að
verða skotin í nýjum vikulega.
„Ástin“ entist samt út árið, þótt ég hafi auðvitað aldrei hitt hann Roberto
minn aftur, hvorki fyrr né síðar.
Ég sagði strákunum mínum, yfir ítölskum pítsum í gærkvöldi, að einu sinni
hefði móðir þeirra verið átján ára mær sem hefði verið skotin í nýjum strák í
hverri viku. Þá heyrist í mínum átján ára pilti:
„Og nú ertu bara skotin í ketti. Þú ert orðin kattkynhneigð!“
Já, tímarnir breytast og mennirnir með; ég held hann hafi hitt naglann á höfuðið.
Fortíðin í
bunkanum
Pistill
Ásdís
Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’Ég var til dæmis yfirmig ástfangin afítölskum strák að nafniRoberto Gervasi sem
flippaði pítsum á Horn-
inu. Hann var frá Sikiley
og hlustaði á Bob Marley.
Þórbjörg Þórisdóttir
Mig langar að hitta mömmu hennar
mömmu sem dó þegar mamma var
eins árs.
SPURNING
DAGSINS
Hvaða
mann-
eskju, lífs
eða liðna,
vildir þú
hitta?
Karl Olgeirsson
Þetta er erfitt. Ég myndi vilja hitta
Mozart. Það væri mjög áhugavert.
Hrefna Þórisdóttir
Ég myndi vilja hitta móðurafa minn.
Ég held að hann hafi verið góður
maður.
Andrés Blær Oddsson
Ég væri til í að hitta pabba minn; ég
hef ekki hitt hann í smátíma.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur leggja land undir fót í
júlí, heimsækja alla helstu landsfjórðunga og syngja og segja
sögur eins og þeim er einum lagið. Miðar fást á tix.is.