Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Qupperneq 4
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.6. 2020
Fyrsta apríl 2008 lét mynd-bandssíðan YouTube netverjahlaupa apríl. Notast var við
smellbeitu þar sem fólk hélt að það
væri að fara að horfa á eitt af
myndböndunum á forsíðu síðunnar.
Í stað þess að sjá rétt myndband
birtist tónlistarmyndband frá 9.
áratugnum við lagið Never Gonna
Give You Up með tónlistarmann-
inum Rick Ast-
ley.
Aðdragandinn
að aprílgabbinu
var að á þessum
árum var vin-
sælt að gefa upp
hlekk á int-
ernetinu af
spennandi mynd-
bandi. Í stað þess að sjá mynd-
bandið lentu netverjar á fyrrnefndu
tónlistarmyndbandi og skömmuðust
sín með rentu að hafa verið plataðir
til að ýta á hlekkinn. Kallaðist þetta
„rickrolling“ og var ég ósjaldan
gabbaður á mínum yngri árum sem
olli mér mikilli gremju.
Myndbandið með Rick Astley
varð að því sem kallast „meme“
(borið fram „mím“) og hefur ekki
enn öðlast íslenskt heiti þó sumir
kalli það jarm (því me-me er auðvit-
að hljóðið sem kindurnar gefa frá
sér). Fyrir flestum eru jörm fyndin
myndbönd eða myndir sem ganga
manna á milli á netinu. Netverjar
skemmta sér og öðrum stundum við
að skrifa fyndna texta við jörmin og
dreifa um netheima.
Síðan YouTube „rickrúllaði“
mannskapinn árið 2008 og hafa
jörmin orðið stærri og stærri hluti
af lífi fólks. Rétt eins og fleiri nota
netið á hverjum degi þá skilja fleiri
hvað átt sé við með einungis fyndn-
ar myndir og myndbönd sem ganga
manna á milli á netinu. Raunar var
hugtakið sett fram löngu áður en
veraldarvefurinn var fundinn upp.
Hugmyndir eins og gen
Árið 1976 gaf erfðalíffræðing-
urinn Richard Dawkins út
áhrifamikla bók sem kallast
The Selfish Gene. Þar útlistar
hann sýn sína á þróunarkenn-
ingu Darwins. Vildi Dawkins
líta á genið, ekki einstakling-
inn eða tegundina, sem ein-
ingu þróunarinnar. Það séu
því eiginleikar gensins sem
ákvarði hvort það dreifist
meðal einstaklinga og haldi
sér í genasafninu í gegnum
kynslóðirnar.
Genin segir Dawkins
vera sjálfselsk, þ.e. „hugsi“
bara um sjálf sig. Það þýðir
þó að það geti verið í hag
hvers einstaklings að láta
sig aðra varða, því að þeir
gætu jú borið sömu gen og
viðkomandi. Gen fyrir vænt-
umþykju í garð skyldmenna –
þeir eru líklegri til bera sömu
gen – munu því dreifast um
tiltekna tegund því þau hjálpa
öðrum genum einstaklingsins
að dreifa sér.
Í lok bókarinnar viðurkennir
Dawkins að kenning hans út-
skýri ekki fullkomlega alla
hegðun mannskepnunnar. Hún
sé undir áhrifum menningar,
rétt eins og gena. Segir Dawkins
að ákveðnar hugmyndir eða
menningareiningar dreifi sér
manna á milli rétt eins og genin.
Ólíkt genunum þurfi einstakling-
urinn ekki að fjölga sér heldur ein-
ungis að segja öðrum frá hugmynd-
inni, t.d. að Guð sé til. Ef
einstaklingurinn tekur upp hug-
myndina, fer t.d. að trúa á Guð, þá
hefur hann dreift menningareining-
unni.
En Dawkins þurfti almennilegt
nafn á þessa menningareiningu.
Einingarnar dreifast þegar einn lík-
ir eftir öðrum og því ákvað hann að
nota „mimeme“ sem kemur af
grísku rótinni fyrir orðið eftirlíking.
Dawkins vildi hins vegar orð í lík-
ingu við enska orðið yfir gen,
„gene,“ og úr varð orðið „meme“.
Eins og sníkjudýr
„Meme“ eða það sem ég hef til
þessa þýtt sem jarm á því við um
allar menningarlegar hugmyndir
sem dreifast manna á milli, óháð því
hvort það er á internetinu eða ekki.
Hugmyndin um að Guð sé til er því
jarm. Kynþáttahatur er jarm. Tíska
er mjög gott dæmi um jarm.
Dawkins lýsir hverju jarmi sem
eins konar sníkjudýri sem kemur
sér fyrir í heila einstaklinga til þess
eins að fjölga sér. Fjölgunin fer
fram með því að einstaklingurinn
tjáir sig og segir öðrum frá jarminu.
Þá nær það fótfestu í næsta heila og
dreifir sér þannig um meðal fólks.
Dawkins segir dreifinguna vera eins
og þegar veirur dreifa sér manna á
milli. Það á vel við í dag því jörm
eru oft sögð hafa orðið „viral“ á net-
inu.
Ólikt genum geta jörm bæði haft
áhrif á mun fleiri einstaklinga og í
mun lengri tíma. Aristóteles, sem
var uppi fyrir um 2300 árum, á
kannski eitt eða tvö gen í nokkrum
afkomenda sinna. Hugmyndir, eða
jörm, hans lifa þó enn þann dag í
dag og hafa áhrif á líf milljarða.
En óvíst er hversu stórt jarmið á
að vera. Er hugmyndin um guð eitt
jarm? Eða á að skipta því upp í búta
þannig að það að guð sé á himnum
sé eitt jarm, annað að hann sé með
skegg, enn annað að hann stjórni
öllu því sem gerist í heiminum og
það fjórða að hann hafi skapað him-
in og jörð á sex dögum og hvílt sig á
þeim sjöunda? Þá breytast jörmin
þegar þau dreifast á milli ein-
staklinga sem móta þau með sinni
reynslu og hugmyndum, oft óafvit-
andi, og sameina jafnvel öðrum
jörmum.
Til er fræðigrein sem rannsakar
menningu mannfólksins út frá þess-
um kenningum. Kallast hún „meme-
tics“ sem gæti útlagst sem jarm-
fræði á íslensku. Þó að jarmfræðin
eigi sér marga stuðningsmenn þá er
hún ekki í hávegum höfð og sagt að
kenningin á bak við hana standist
ekki fræðilega skoðun.
Allir geta orðið að jarmi
Hvað sem þessu líður þá komst
jarmshugtakið ekki í meg-
instreymið fyrr en internetið komst
í mikla notkun meðal almennings og
netverjar urðu til. Nú geta allir orð-
ið að jarmi, ekki bara hugmyndir.
Tveir bræður, þriggja ára og eins
árs, urðu að einu frægasta jarmi
sögunnar árið 2007 þegar faðir
þeirra náði samskiptum þeirra á
myndband. Í myndabandinu bítur
sá yngri, Charlie, bróður sinn,
Harry, þegar hann setur fingur sinn
upp í hann. „Charlie beit mig,“ seg-
ir Harry þá og stingur puttanum
aftur upp í Charlie sem bítur aftur,
enn fastar en áður. Á meðan hlær
Charlie. Faðirinn setti myndbandið
á YouTube og fór það eins og eldur
í sinu um netheima og hefur verið
horft á það í 874 milljón skipti og
var um tíma vinsælasta myndaband
YouTube. Enginn er óhultur.
Jarmið
fer víða
Í dag kannast flestir við hugtakið „meme“ og
tengja það við fyndnar myndir og myndbönd sem
dreifa sér um netheima. En hugtakið á sér mun
lengri sögu og víðtækari skírskotun.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Ferill Ricks Astley gekk í
endurnýjun lífdaga þegar
fólk var platað til að horfa á
myndband hans.
AFP
Áskoranir eins og Ísfötuáskorunin eru jörm.
Richard Dawkins
Hellaskoðun fyrir tvo
í Raufarhólshelli
Gisting fyrir tvo
í standard herbergi
Morgunverðarhlaðborð
Sumartilboðsverð:
20.600 kr.
Skoðaðu glæsilegu sumartilboðin okkar á
hotelork.is/tilbod