Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Síða 10
Sunnudagsblaðið leitaði viðbragða
Þórarins Tyrfingssonar við ásökunum
um ógnarstjórn og afskipti af starfsemi
framkvæmdastjórnar SÁÁ í fjöl-
miðlum síðustu misseri sem eiga beina
skírskotun í viðtalið hér við Sigurð.
„Ég hef ekki verið í framkvæmdastjórn
síðan 2011,“ sagði Þórarinn. „Ég hef
ekki haft starfsaðstöðu á Sjúkrahúsinu
Vogi eða öðrum starfsstöðum SÁÁ í
þrjú ár og ég hætti að ganga til vinnu
þar fyrir þremur árum. Ég hef unnið
við ársskýrslu og gagnagrunn SÁÁ og
gaf út rit í september. Það er allt og
sumt.“ Þórarinn á þar við ritið Upplýs-
ingar um heilbrigðisþjónustu SÁÁ fyrir
áfengis- og vímuefnasjúklinga 1977-
2018 sem kom út í fyrra.
Í ritinu segir meðal annars: „Eins og
aðrir heilasjúkdómar er áfengis- og
vímuefnasjúkdómurinn fjölþættur og
taka verður á honum heildstætt og al-
hliða ef góður bati á að nást: Líkam-
legur; sálfræðilegur; félagslegur; and-
legur og menningarlegur.“
Einnig segir að „frá stofnun samtak-
anna hefur meðferðarstarfið tekið
margvíslegum og miklum breytingum.
Umfang meðferðarstarfsins hefur auk-
ist verulega um leið og meðferðin hef-
ur verið aðlöguð þörfum skjólstæðing-
anna. Á hverju ári hafa verið teknar
upp nýjungar í meðferðarstarfinu og
sótt fram.“
Ekki komið
að starfi SÁÁ
VIÐTAL
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.6. 2020
U
m helgina fer fram aðalfundur
SÁÁ og þar með kjör á for-
manni en sitjandi formaður,
Arnþór Jónsson, gefur ekki
kost á sér. Þeir sem gefa kost á
sér eru Einar Hermannsson, sem sat til
skamms tíma í framkvæmdastjórn, og Þór-
arinn Tyrfingsson, fyrrverandi yfirlæknir á
Vogi og fyrrverandi formaður samtakanna.
Sigurður Friðriksson, fyrrverandi stjórnar-
maður, segir að þegar Valgerður Rúnarsdóttir
sagði af sér sem yfirlæknir á Vogi í vor hafi
stór hluti starfsfólksins viljað hætta líka. Því
hafi hún dregið uppsögn sína til baka.
Sigurður segir að það sama muni vera uppi á
tengingnum og eftir afsögn Valgerðar ef Þór-
arinn ber sigur úr býtum í formannskjörinu.
„Valgerður og meirihluti starfsfólksins munu
hætta og SÁÁ leggst af. Það er svoleiðis í mín-
um huga,“ segir hann og hefur fengið það stað-
fest hjá fólki innan Vogs.
Drykkjan varð erfiðari
Sigurður Friðriksson, oft kallaður Diddi
Frissa, byrjaði ungur að vinna á sjó. Hann er
skipstjóramenntaður og varð fljótt skipstjóri.
Stuttu eftir aldamótin venti hann kvæði sínu í
kross og hefur starfað í ferðaþjónustu síðan,
rekið bílaleigu, hótel og veitingastað.
Árið 1999 fór Sigurður í meðferð við áfengis-
fíkn á Vogi. Eins og með sjóinn byrjaði hann
ungur að drekka. „Drykkjan varð alltaf erf-
iðari og erfiðari, sérstaklega með fjölskyldu og
börn. Ég taldi að það færi mér betur að vera
án áfengis heldur en að vera að drekka. Ég var
búinn að vera að drekka síðan ég var 14 eða 15
ára, kominn að fimmtugu í árslok 1999,“ segir
hann og hefur ekki drukkið síðan.
Sigurður kynnist Samtökum áhugamanna
um áfengis- og vímuefnavandann, SÁÁ, eftir
meðferðina. „Þar inni var fólk sem ég kann-
aðist við. Það þróast þannig að ég fer að starfa
með félagsskap sem kallast Heiðursmenn,“
segir Sigurður en Heiðursmenn eru fé-
lagsskapur karla og kvenna sem hafa farið eða
eiga fjölskyldumeðlimi sem hafa farið í með-
ferð.
„Heiðursmenn vilja koma þeim skilaboðum
út í þjóðfélagið að það sé hægt að ná góðum
tökum á lífi sínu þó fólk hafi misst fótanna í
drykkju. Mér þótti þetta merkilegt.“ Eftir að
hafa sótti fundi Heiðursmanna í tvö ár var Sig-
urður beðinn um að taka að sér að sjá um fund-
ina. „Hálfsmánaðarlega bjóðum við ráðherrum
og ábyrgu fólki í samfélaginu og segjum frá
því hvað sé að gerast í áfengis- og vímuefna-
málum í þjóðfélaginu.“
Þórarinn er kóngurinn
Sigurður tók fljótlega eftir því að margir ráða-
menn neituðu að mæta á fundi Heiðursmanna.
Ástæðan var að þar mætti þáverandi formaður
SÁÁ og yfirlæknir Vogs, meðferðarstofnunar-
innar sem samtökin reka, Þórarinn Tyrfings-
son. „Það vildi enginn í stjórnsýslunni eiga
nokkur samskipti við hann. Út af hroka, yfir-
gangi, frekju og mikilmennsku,“ segir Sig-
urður.
„Þegar ég byrjaði í Heiðursmönnum var
mér sagt að passa mig á því að láta mig hverfa
þegar fundurinn væri búinn. Láta aldrei taka
mynd af mér. Láta aldrei sjást hver stjórnaði
þessum fundum. Þetta voru skilaboð sem ég
fékk um að Þórarinn sætti sig ekki við að neinn
skyggði á hann,“ segir hann.
„Ef þú sagðir að þú værir í SÁÁ eða í for-
svari fyrir SÁÁ varstu kominn á dauðalist-
ann,“ segir Sigurður og segir það hafa verið
brottrekstrarsök ef tekin var mynd af mönn-
um vegna samtakanna. Nefnir hann í því
samhengi Gunnar Smára Egilsson, fyrrver-
andi formann SÁÁ, Rúnar Frey Gíslason,
Guðmund Örn Jóhannsson og Gunnar Kvar-
an. „Allt þetta fólk hefur verið hrakið í
burtu. Hann [Þórarinn] er kóngurinn. Hann
er SÁÁ. Ef þú ert með sjálfstæða skoðun, þá
átt þú ekki heima hér.“
Eiga fleiri en eitt uppsagnarbréf
Sigurður hefur setið í stjórn SÁÁ síðan 2004
og tekið að sér ýmis verkefni. Þá tók hann sæti
í framkvæmdastjórn árið 2013. „Þar gat ég séð
nákvæmlega hvernig þetta starf fór fram. Ég
sá einræðið.“
Hvernig birtist þetta einræði?
„Það birtist þannig að hann er númer eitt,
og hann er númer tvö og hann er númer þrjú.
Hann eða menn á hans vegum gengu um og
ráku starfsmenn SÁÁ. Þetta hefur gengið
svona öll árin og oft hafa margir verið reknir á
ári. Ef menn voru ekki undirgefnir voru þeir
bara reknir. SÁÁ stóð í málaferlum við hina og
þessa. Mörg málaferli voru rekin á hverju ári
gegn fólki sem SÁÁ kom illa fram við. Þetta
var mjög dýrt samtökunum,“ segir Sigurður
og kallar þetta ofbeldisstjórnun.
Hann segir að fólk sem unnið hefur lengi hjá
SÁÁ eigi jafnvel fleiri en eitt uppsagnarbréf.
Því sé sagt upp en margir komu síðan aftur til
starfa. „Það má segja að þetta andrúmsloft eða
þessi ógn vofði yfir starfsfólkinu.“
Sjálfum urðu Sigurði eitt sinn á mistök þeg-
ar hann virti ekki þær reglur sem hann mátti
vita að giltu. Eða að minnsta kosti gleymdi sér.
Þá var Vigdís Hauksdóttir gestur Heiðurs-
manna og vildi fá mynd af sér með Sigurði.
Myndin var tekin og birt. „Daginn eftir hitti ég
Þórarin. „Ertu ekki orðinn þreyttur á þessu,
Diddi minn, viltu ekki fá þér frí frá þessu?“
segir hann. Við vorum þarna tveir. Við hættum
þá með þetta ég og félagi minn. Þórarinn
handvaldi einhvern í þetta sem entist ekki
lengi og ég var fenginn aftur.“
Ég held að það sé framtíðin, sem er
sá strúktúr sem komið hefur á SÁÁ
með Valgerði. Um þetta snúast deil-
urnar. Viljum við stöðnun og ofríki
eða viljum við vera opin fyrir kröfum
samtímans og laga starfsemina og
taka tillit til gagnrýni?,“ segir Sig-
urður Friðriksson um framtíð SÁÁ.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Yfirgangur og mikilmennska
Ógnarstjórn hefur viðgengist lengi innan veggja SÁÁ, að sögn Sigurðar Friðrikssonar sem sat í framkvæmdastjórn samtakanna
frá árinu 2013 þar til á dögunum. Hann segir að starfsemi SÁÁ muni leggjast af beri fyrrverandi formaður og yfirlæknir sigur úr
býtum í formannskosningum á aðalfundi um helgina; starfandi yfirlæknir muni ganga út sem og stór hluti starfsfólks á Vogi.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is