Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Blaðsíða 12
VIÐTAL
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.6. 2020
Handvaldi nýjan formann
Árið 2011 steig Þórarinn til hliðar sem formað-
ur SÁÁ og sagðist vilja einbeita sér að starfi
sínu sem yfirlæknir. „Gunnar Smári Egilsson
var kjörinn formaður samkvæmt fyrirmælum
Þórarins. Það var aðallega út af því að SÁÁ
hafði ekki gert samninga við ríkið í fjöldamörg
ár. Ég held að í ein 12 eða 15 ár hafi enginn
samningur verið gerður við ríkið því það vildi
enginn gera samning við hann [Þórarin]. Það
vill enginn í stjórnsýslunni koma nálægt hon-
um. Þetta er bara hrokagikkur. Gunnar Smári
nær að gera samninga við ríkið og var lítið
mál.“
Gunnar Smári sat sem formaður í tvö ár eða
til ársins 2013. Að sögn Sigurðar gekk rekst-
urinn betur og varð faglegri eftir að Gunnar
tók við og einnig gekk betur að safna fé fyrir
samtökin. Það hafi komið illa við Þórarin og
stuðningsmenn hans. „Þá er búið til leikrit um
Gunnar Smára. Það var öllum talin trú um að
það væri allt að fara til helvítis, hann væri að
leggja samtökin undir sig og hann hefði eitt-
hvað illt og annarlegt í huga.“
Sigurður segir að fráfarandi formaður,
Arnþór Jónsson, hafi verið handvalinn af Þór-
arni og Gunnar sá sitt óvænna og hvarf frá
SÁÁ. „Arnþór er ekkert skárri en Þórarinn.
Líkur sækir líkan heim. Hann hefur ekki náð
neinum samningum heldur.“ Því sé sami
samningur í gildi og gerður var í tíð Gunnars
Smára sem í raun er framlengdur frá mánuði
til mánaðar.
Grafið undan Valgerði
Árið 2017 ákvað Þórarinn, sökum aldurs, að
stíga til hliðar. Í hans stað var Valgerður Rún-
arsdóttir ráðin og var framkvæmdastjórnin
einhuga um það að ráða hana. „Hún hafði
starfað við þetta lengi og var mjög vel liðin af
öllum. Allir sem tala við Valgerði finna hlýjuna
sem stafar af henni. Þetta er góð manneskja.
Ég fullyrði að starfsandinn á Vogi breyttist til
batnaðar við það að Valgerður tók við. Spenn-
an hvarf,“ segir Sigurður.
„Hún velur fólk með sér og meðferðin hefur
tekið stakkaskiptum. Hún fær með sér sál-
fræðingana og meðferðin breikkar að sjálf-
sögðu þegar fleiri faghópar leggja saman
krafta sína. Maður sér breytinguna. Fólkið fer
að brosa. Allir verða ánægðir. Sjúklingarnir
verða glaðir. Starfsmennirnir verða glaðir.
Meðferðin skilar mikið betri árangri. Val-
gerður fer að koma fram í fjölmiðlum og fólkið
dáist að henni. Nema einn. Þórarinn,“ segir
Sigurður.
Þegar Þórarinn hafði verið í hættur í um eitt
ár setti hann upp enn eitt leikritið, að sögn Sig-
urðar, í krafti fólks sem hann handvaldi í fram-
kvæmdastjórn SÁÁ. „Það byrjar með því að
hann vill fá skrifstofu á Vogi. Það er gengið svo
hart að Valgerði að hún segir: „Á ég ekki bara
að rýma skrifstofuna mína, viljið þið ekki að
hann fari þangað?“ Þá stóð ég upp og sagði:
„Nei, Valgerður, þú rýmir ekki skrifstofuna
þína.““
Þá hefur Þórarinn haldið fundi með starfs-
mönnum til að grafa undan Valgerði. „Þór-
arinn hefur verið að mæta upp á Vog og Vík til
að halda fundi með
starfsmönnum til að
segja þeim hvað hún
sé léleg,“ segir Sig-
urður.
Sigurður segir að
þófið hafi haldið
áfram þar til í mars
þegar átta starfs-
mönnum á Vogi var
sagt upp, flestum sál-
fræðingum, í hagræðingarskyni. Valgerður
sagði af sér í kjölfarið, fannst stjórn SÁÁ
skipta sér um of af faglegri starfsemi meðferð-
arstofnunarinnar, því allt var þetta gert án
samráðs við hana.
Að sögn Sigurðar hefur Þórarinn ávallt
haldið í gamlar aðferðir við meðferð á fíkni-
vanda. Í stað þess að heilt teymi taki við ein-
staklingnum og haldi utan um hann sé horft til
40 ára gamalla aðferða. Þórarinn hafi séð sér
leik á borði þegar fjárhagsvandi blasti við
vegna kórónuveiru-
faraldursins til að losa
sig við sálfræðinga og
aðra fagaðila sem
komið hafa inn í takt
við nýja tíma.
„Þeir sögðu að
þetta væri í sparnað-
arskyni sem var bara
búið til si svona. Þeir
voru búnir að reyna
þetta lengi og notuðu tækifærið.“
Í kjölfar deilnanna sögðu þrír af þeim níu
sem sátu í framkvæmdastjórn sig úr henni.
„Við höfðum verið plötuð til að samþykkja
þennan niðurskurð í framkvæmdastjórn. Eftir
uppsagnirnar var ég orðinn einn í andstöðu á
móti þessum áformum.“
Valgerður dró uppsögn sína að lokum til
baka. „Ég hringi í Valgerði og spyr hvort ég
eigi ekki að segja af mér líka. Hún segir: „Nei
Diddi, ekki gera það. Ég vil hafa þig hérna
með mér.“ Hann sagði að lokum af sér fyrir
rúmri viku. „Ég vildi ekki hafa neinn vafa á því
að ég er á móti þeim starfsháttum sem þarna
eru viðhafðir.“
Rökkuð niður fund eftir fund
Eftir að Valgerður dró uppsögn sína til baka
vildi formaður SÁÁ gera við hana nýjan
samning til eins árs. Því mótmælti Sigurður á
framkvæmdastjórnarfundi. „Ég lamdi í borð-
ið og sagði: „Það verður bara sami samning-
urinn og ekkert kjaftæði. Ef þið viljið frið á
sjúkrahúsinu tekur gamli samningurinn gildi
aftur.“ Og það varð. Hvað heldurðu að þeir
geri þá? Þá taka þau sig saman, tvö og tvö,
búin að ræða þetta fyrir fundinn, og búa til
lygaþvælur um hana. Þau taka hana sín á
milli og gjörsamlega ganga fram af henni.
Þau rakka hana niður fund eftir fund eftir
fund. Það voru vakta-
skipti hjá þeim á
þessum óþverraskap
gegn Valgerði,“ segir
hann.
„Í þessu stappi öllu
og þegar reynt var að
svæla Valgerði út lýsti
ég yfir stuðningi við
hana. Þá fékk ég tiltal
frá formanninum þar
sem hann sagði að ef einhver tæki afstöðu með
starfsfólkinu gegn formanninum yrði hann að
víkja. Þetta er náttúrlega alveg galið og það
tekur enginn mark á slíku ofríki. Allavega ekki
ég,“ segir Sigurður.
„Því miður ganga nokkrir framkvæmda-
stjórnarmenn þessara erinda og láta nota sig í
það óhæfuverk að reyna að svæla Valgerði út.
Þetta finnst mér sorglegt og til vansa fyrir
þetta framkvæmdastjórnarfólk.“ Þetta fólk
fylgi þó ráðum og fyrirmælum Þórarins, að
sögn Sigurðar. „Eftir
að Þórarinn hætti hef-
ur hann ekki getað
sætt sig við að vera
farinn. Hann er tilbú-
inn að leggja SÁÁ í
rúst. Hann hefur
stjórnað í gegnum
Arnþór og þá sem
hann hefur handvalið í
framkvæmdastjórn-
ina. Hann svífst einskis, og það á sama við um
þá báða,“ segir Sigurður.
Sambýliskonan fékk
starfslokasamning
„Ég kemst ekki hjá að nefna sem dæmi um
það hvað þetta er allt saman bundið Þórarni.“
Bæði dóttir Þórarins og sonur hans koma að
starfsemi SÁÁ og Vogs. „Dóttir hans var
þarna læknir og það var svo mikil spenna og
togstreita þarna út af þessum málum nú í vor
að hún hætti. Á næsta fundi framkvæmda-
stjórnar segir Björn Logi, sonur Þórarins:
„Það verður að gera við hana starfslokasamn-
ing. Það er ekki hægt annað.“ Svo vissi ég
ekki fyrr en á næsta fundi að það væri búið að
gera við hana samning. Það var ekki einu
sinni rætt í framkvæmdastjórninni. Þetta er
eitt af þessum lögbrotum sem ég hef talað um
hjá SÁÁ,“ segir Sigurður og vill meina að fólk
eigi að ganga út af fundi þegar fjölskyldubönd
eru annars vegar. „Hann barðist fyrir því að
systir hans fengi starfslokasamning. Þessi
samningur átti reyndar ekki að vera á neinna
vitorði og það var beinlínis fundið að því þeg-
ar ljóst var að ég var með vitneksju um samn-
inginn.“
Á sama tíma og skorið er niður hjá SÁÁ er því
verið að gera starfslokasamninga sem ekki
þurfti að gera. Þetta er ekki einsdæmi, að sögn
Sigurðar. „Síðan gerir formaðurinn sjálfur, Arn-
þór Jónsson, starfslokasamning við sambýlis-
konuna sína. Hugsaðu þér ósvífnina í þessu.“
Því hefur verið haldið fram að Valgerður og
fleiri vilji koma rekstri SÁÁ alfarið yfir til rík-
isins. „Að við, þessi sem erum í andstöðu við
Þórarin, viljum koma rekstrinum í hendur rík-
isins er algjört kjaftæði,“ segir Sigurður. „Val-
gerður hefur aldrei nokkurn tíma viðrað það
sjónarmið. Hún hringir í mig og spyr hver búi
til svona kjaftæði. Ég segi: „Þórarinn.“ Hann
hefur leikið þennan leik áður. Valgerður vill
ekkert annað en að meðferðin sé fagleg, þróist
með eðlilegum hætti og gangi vel. Ég hef aldr-
ei heyrt hana tala um að koma þessu í hendur
ríkisins enda er það ekkert annað en tilbún-
ingur Þórarins.“
57 starfsmenn sem starfa við meðferðarsvið
SÁÁ sendu frá sér yfirlýsingu á mánudag og
sögðust ekki vilja Þórarin Tyrfingsson aftur til
valda hjá SÁÁ. „Þetta snýst um vinnufrið.
Fólkið hefur ekki haft vinnufrið frá því Þór-
arinn hætti því hann vill henda öllu út og koma
inn aftur,“ segir Sigurður.
Starfsemi SÁÁ er Sigurði mikils virði. Þar
sé einstakt starfsfólk sem vinni mikilvægt
starf til að þjóna þeim sjúklingum sem inn á
meðferðarstofnanirnar koma. „Starfsemin er
starfsfólkið. Ef það er ekki starfsfólk þá er
ekkert SÁÁ.“
Sigurður styður Einar Hermannsson í kjöri
til formanns SÁÁ. „Ég held að hann sé mjög
góður í þetta starf. Ég held að hann muni
valda þessu mjög vel.“
Hvernig viltu að starfsemi SÁÁ verði í fram-
tíðinni?
„Að það sé faglært teymi sem samanstendur
af fólki sem er búið að læra til áfengis- og
fíkniefnavarna. Ég sé að það fólk vinni saman
og nái betri árangri heldur en þar sem einn
maður stjórnar. Ég held að það sé framtíðin,
sem er sá strúktúr sem komið hefur á SÁÁ
með Valgerði. Um þetta snúast deilurnar. Vilj-
um við stöðnun og ofríki eða viljum við vera
opin fyrir kröfum samtímans og laga starfsem-
ina og taka tillit til gagnrýni? Gagnrýni er
nauðsynleg og það er hættulegt ef við teljum
alltaf að hún sé sett fram af illum hvötum. Ég
treysti þessu fagfólki sem þarna vinnur með
Valgerði, Ingunni [Hansdóttur, yfirsálfræð-
ingi] og Þóru [Björnsdóttur, hjúkrunarfor-
stjóra] 100%.
Þórarinn hefur margt gott gert í gegnum
tíðina, en tími hans er liðinn. Þórarinn ákvað
sjálfur að hætta. Ég hef ekki trú á því að end-
urkoma geti átt sér stað. Það tókst allavega
ekki hjá Napoleon Bonaparte.“
„Ég fullyrði að starfsandinn á Vogi breytt-
is til batnaðar við það að Valgerður tók
við. Spennan hvarf,“ segir Sigurður.
Morgunblaðið/Eggert
’Þá taka þau sig saman, tvöog tvö, búin að ræða þettafyrir fundinn, og búa til lyga-þvælur um hana. Þau taka hana
sín á milli og gjörsamlega ganga
fram af henni. Þau rakka hana
niður fund eftir fund eftir fund.
’Það birtist þannig að hann ernúmer eitt og hann er númertvö og hann er númer þrjú. Hanneða menn á hans vegum gengu um
og ráku starfsmenn SÁÁ. Þetta
hefur gengið svona öll árin og oft
hafa margir verið reknir á ári.