Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.6. 2020
Í
hverri viku koma upp „stór“fréttir sem lifa
vikuna ekki til enda séu þær á ferð í upphafi
hennar. Frétt á borð við að „vísindamenn
telja ekki útilokað að ný bylgja veirunnar
láti á sér kræla“. Þetta er lítil „ekkifrétt“ um
stórmál. Öðru máli hefði gegnt hefðu nafn-
greindir menn sagt að nær öruggt væri að ný bylgja
muni bresta á. Og þá vantaði þó enn við hvað væri átt
með „bylgju“!
Bréfritari, og aðrir sem lítið vita, gætu sagt þetta
sama. „Vísindamennirnir“ eru ekki að tala sem slíkir
enda er ekkert vísindalegt við staðhæfinguna. En
þeim þykir þó ekki verra að hafa þetta á blaði ef....
Eldgos og íþróttir
Við þekkjum öll viðtölin við okkar góðu sérfræðinga í
eldgosum þegar eitt slíkt hefur byrjað. Fréttamað-
urinn: Telur þú að þetta verði langvinnt gos? Sér-
fræðingur: Það gæti orðið það. Það eru dæmi um
slíkt. En það gæti líka staðið stutt og stöðvast al-
gjörlega. En svo gæti það samt hafist aftur eftir
skamma hríð og þá annaðhvort nánast á sama stað
eða mjög nálægri eldstöð. Það eru til dæmi um slíkt.“
Þetta er miklu þægilegra og notadrýgra svar fyrir
fréttamanninn og hlustendur en: „Ég veit lítið meira
um þetta heldur en þú. Eldgos hafa byrjað og hætt í
milljónir ára en við erum, manneskjurnar, rétt ný-
byrjaðar að skoða þetta og færa til bókar.“
Í klukkutíma fyrir hvern fótboltaleik nokkrum
sinnum í viku fer fram eftirfarandi umræða sérfræð-
inga að breyttu breytanda: „Sheffield gæti hæglega
unnið þennan leik og ætti að vinna hann, því að það er
miklu sterkara lið en Huddersfield. Það kæmi mér
því ekki á óvart að Sheffield fari með öll stigin þrjú út
úr leiknum.“ Sérfræðingur 2: „Ég er algjörlega sam-
mála Sigga, en Huddersfield hefur sýnt að það getur
hæglega komið á óvart og alls ekki er hægt að útiloka
að kapparnir gætu fengið öll stigin til sín. Hudd-
ersfield er á heimavelli og heimamenn standa með
sínum mönnum sem einn maður, eins og hefur sýnt
sig og þess vegna gæti liðið komið á óvart og sigrað.“
Sérfræðingur 3: „Ég er alveg sammála því en heima-
menn geta auðveldlega ýtt undir spennu og tauga-
veiklun hjá sínum mönnum, því þeir vilja sigur og
ekkert minna en sigur, sem gæti gert liðið órólegt yf-
ir því að standa hugsanlega ekki undir væntingum. Í
fótbolta getur allt gerst, það hefur sýnt sig og þótt
jafntefli væri fáránlegt á milli þessara liða er það ekki
endilega ólíklegt.“ Hvernig sem úrslitin verða svo þá
komast fótboltasérfræðingarnir mjög vel frá þessu,
rétt eins og eldfjallasérfræðingar og veirumenn.
Hver fer heim með öll stigin?
En hvað er um þá að segja sem eru sérfræðingar í
stjórnmálum eða þykjast vera það, þótt þeir hafi ekki
gráðu? Tökum Bandaríkin sem dæmi. Fjölmiðlum og
sérfræðinum, sem þeir leita til af gömlum vana, ber
sennilega saman um það að í upphafi árs hafi Donald
Trump staðið furðuvel að vígi. Efnahagslífið var í
blóma. Demókratar höfðu hlaupið á sig í „impeach-
ment“-dellunni. Atvinnustig var hátt og aldrei í sög-
unni hafði þátttaka blökkumanna í atvinnulífinu verið
ríkulegri en þá og atvinnuleysið minna í þeirra röð-
um. Þá blasti orðið við að Joe Biden yrði þrátt fyrir
allt forsetaefni demókrata og það varð sífellt erfiðara
að leyna því hvað sá karl er rosalega úti að aka. Jú,
hann hefur vissulega verið það nokkuð lengi, en það
hefur farið hratt versnandi.
Í upphafi ársins steig hann í pontu með allar sjón-
varpsvélar suðandi og sagði: Ég heiti Joe Biden og
býð mig fram til öldungadeildarþingmanns í þessu
ríki (sem hann nefndi). Vandinn var sá að það eina
sem var rétt í þessari yfirlýsingu var að frambjóðand-
inn héti Joe Biden.
Biden hætti í öldungadeildinni fyrir átta árum og
langaði ekki aftur þangað. Hann var að bjóða sig
fram sem forseti og hann fór vitlaust með í hvaða ríki
hann var staddur. Það var heppilegt að CNN, CBS,
NBC og ABC voru þarna öll, en vegna óvæntrar
truflunar misstu þær sumar af þessari pínlegu frétt.
En hún spurðist samt út.
Ekki einn um það
Auðvitað gætu menn með réttu bent á að út úr
Donald Trump hafi iðulega skroppið fullyrðingar sem
þykja misvel standast skoðun og engar tæknilegar
bilanir hafa sem betur fer komið í veg fyrir að þær
hafi verið fluttar.
En þótt þær hafi verið skilmerkilega fluttar, end-
urteknar dögum saman og „sérfræðingar“ demó-
krata verið fengnir til að ræða þær, þá eru þær ann-
ars eðlis en fréttirnar sem stöðvarnar misstu af.
Gagnrýnisefnin á Trump, sem sannarlega eiga um-
ræðu skilið, eru þó líkari hefðbundinni hliðsetningu
staðreynda „sér í hag,“ sem er ólæknandi atvinnu-
sjúkdómur stjórnmálamanna.
Fréttamenn, sem eru vel að sér, gætu og eiga að
reka horn sín í slíkt, en það gerir ekki allur þorri
áhorfenda.
Næstum því hver einasti maður vissi það sem Bi-
den vissi ekki, að hann væri í forsetaframboði en ekki
að sækjast eftir sæti í öldungadeildinni og allir sem
einn, nema Biden, vissu hvað ríkið þeirra hét, enda
stóð það að auki á hundrað spjöldum sem blöstu við
um allan sal og Joe var sá eini sem vissi ekki af hverju
þau voru þarna.
Og svo kom veiran
En demókratar hrósuðu happi þegar veiran kom,
þótt þeir myndu aldrei segja það upphátt, enda voru
þeir svo sannarlega ekki að fagna henni sem slíkri.
Það var þó enn eitt sem hægt var að kenna Trump
um hvernig fór, þótt verst hafi útkoman verið í þeim
ríkjum sem demókratar stjórna. En best af öllu var
þó það, að þá var hægt að koma Joe Biden fyrir í
kjallaranum heima í eins konar sóttkví sem allir
gamlingjar sættu um þær mundir.
Þar gátu stuðningsstöðvarnar einar fengið aðkomu
og látið hann svara spurningum sem búið var að
senda honum tveimur dögum áður og æfa í heima-
gerðu stúdíói. Þótt hann réði ekki við allar þær
spurningar þá var hægt að koma í veg fyrir meiri
háttar slys og sýna þær vandræðalegu í mesta lagi
einu sinni. En í vikunni var þetta með „Biden in the
bunker“ orðið verulega pínlegt og því ákveðið að taka
nokkra áhættu og viðra hann stuttlega og varlega ut-
an dyra og í eins vernduðu umhverfi og fært var.
Það fór ekki vel
Tekin var sú áhætta að láta hann tala við fréttamenn
án þess að lesa hvert orð af blaði, þótt þess væri gætt
að hann þyrfti helst ekki að svara spurningum.
Biden tilkynnti nokkuð óvænt að nú hefðu 120 millj-
ónir Bandaríkjamanna látist af kórónuveirunni og
það væri Trump forseta algjörlega að kenna hvernig
haldið hefði verið á málum. Þetta var auðvitað rosa-
leg frétt og á heimsmælikvarða.
Nú eru dánartölurnar óneitanlega háar í Banda-
ríkjunum, en Biden tókst með sveiflu að gera þær að
Er karlinn á
báðum seðlunum?
’
Nú eru dánartölurnar óneitanlega
háar í Bandaríkjunum, en Biden tókst
með sveiflu að gera þær að hreinu smælki
og draga í leiðinni athyglina rækilega að
því, á hversu mjóum og ótraustum þveng
forsetaframboðið hans hangir.
Reykjavíkurbréf26.06.20