Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.6. 2020
LÍFSSTÍLL
Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is
HVARSEMÞÚERT
SAMSTARFSAÐILI
Öryggiskerfi
15:04 100%
Gæti verið að þú sért einn/ein af þeim sem gætu hugsað um heilsuna áannan hátt?Hvað myndi gerast ef þú færir bara hægt af stað og gerðir eitt-
hvað eitt lítið daglega sem gæti komið þér í formið sem þig dreymir um á
næsta ári?
Hér eru nokkrir góðir hlutir að hugsa um í þessu samhengi:
Farðu á staðinn
Ef þig hefur alltaf dreymt um að vera í þínu besta formi í sundi, með gyllta
húð, í fallegum sundfötum að synda eins og fiskur í lauginni; af hverju próf-
arðu ekki bara að pakka fallegum sundfötum í töskuna? Taktu með góðan
brúsa af kremi, vandað sjampó og einsettu þér að fara í laugina daglega.
Ekki hugsa um að synda heilan helling
Það að fara í laugina daglega, að fara í heita pottinn og kalda á víxl, synda
nokkrar ferðir og hafa það notalegt er staðurinn sem fólk þarf að byrja á.
Eitthvað sem þú gerir samviskusamlega daglega, sem er gott fyrir þig. Mun
hafa mikil áhrif og framkalla miklar breytingar í framtíðinni.
Farðu hægt af stað
Þeir sem þrá að keppa í Reykjavíkurmaraþoni ættu að leyfa sér að fara út
að ganga eða skokka daglega. Það er ekki spurningin um vegalengdina í upp-
hafi. Það tala allir um það að röskleg ganga í klukkustund á dag verði til þess
að fólk fari að hlaupa hægt og rólega með tímanum.
Það að ná upp þreki og að leyfa líkamanum að komast í form hægt og ró-
lega þykir eins mikilvægt og að leyfa líkamanum að jafna sig hægt og rólega
eftir æfingar.
Leyfðu þér að gera það sem þú gerðir áður
Ef þú ert einn af þeim sem spiluðu fótbolta hér á árum áður, eða þú varst
nemandi í klassískum ballett, þá gæti verið að líkaminn þinn sé að kalla á þá
æfingu sem hann er vanur.
Það þarf ekki að kosta miklu til að setja eina litla stöng og spegil inn á
heimilið. Ballett er einstaklega þægileg æfing fyrir líkamann og ætti alltaf að
gera með mýkt og fegurð í huga.
Það sama má segja um knattspyrnu. Það þarf ekki að fara of hratt af stað.
Stundum getur það að skjóta á markið og að hóa í nokkra gamla vini gert
gæfumuninn.
Sund er allra
meina bót.
Jeremy Bishop/Unsplash
Connor Coyne/Unsplas
Dragðu fram
ballettskóna.
Oswaldo Ibáñez/Unsplash
Viltu verða besta út-
gáfan af þér í sumar?
Fjölmargir þrá að komast í frábært form fyrir sumarfríið sitt. Þessir ein-
staklingar hafa ef til vill unnið baki brotnu síðastliðin ár og haft minni tíma
en þeir vildu fyrir sjálfa sig og heilsuna.
Elínrós Líndal elinros@mbl.is
Sparkaðu í bolta. Farðu í sund.
Haley Phelps/Unsplash